Morgunblaðið - 02.11.2009, Page 32

Morgunblaðið - 02.11.2009, Page 32
Í HNOTSKURN »Er verkefnið hófst fyrir jólin 2004 söfnuðust500 skókassar, árið eftir voru þeir um 2.600 og sl. þrjú ár hafa skókassarnir verið um 5.000 tals- ins. »Lokaskiladagur í Reykjavík er 7. nóvember.Tekið er á móti jólagjöfum í skókössum í aðal- stöðvum KFUM og KFUK, Holtavegi 28, virka daga frá kl. 8-17. Síðasti skiladagur í Reykjavík er laugardaginn 7. nóvember frá kl. 11-16. Þá fer fram kynning á verkefninu, léttar veitingar verða í boði og eru allir velkomnir. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is „MÁ gefa sleikjó?“ var fyrsta fyrirspurnin sem Einari Helga Ragnarssyni barst frá stelpunum sem tóku þátt í starfi KFUK í Lindakirkju á föstudag. Jú, Einar Helgi fullvissaði þær um að það væri í góðu lagi að gefa sleikjó líkt og annað nammi – bara ef hófs væri gætt. Stelpurnar höfðu mætt til fundarins vel birgar af leikföngum, fatnaði, sælgæti og svo að sjálfsögðu með tannbursta og tann- krem, sem samviskusamlega var skipt niður í skókassa sem nú verða færðir munaðarlausum börnum í Úkraínu í sjötta skipti. Margir hafa lagt verkefninu lið og er það m.a. orðið fast- ur liður í starfi deilda KFUM og KFUK á Íslandi, grunn- skólar og leikskólar hafa einnig lagt söfnuninni lið, þótt Einar Helgi segi að e.t.v. verði eitthvað minna um það þetta árið. „Við höfum svolítið verið að fá þau skilaboð að skólarnir vilji ekki taka þátt í verkefnum sem kosta pen- ing,“ segir hann og kveður ómögulegt að segja fyrir hversu vel söfnunin gangi þetta árið. Landsbyggðin hafi einnig staðið sig vel undanfarin ár. Bratz, barbí og sætindi Í Lindakirkju pakka stelpurnar gjöfum sínum inn af mikilli vandvirkni, fyrst kassanum og svo lokinu – svona ef vera skyldi að tollurinn vildi kynna sér innihald kassanna. Sumar láta sér heldur ekki nægja bara einn kassa, heldur pakka jafnvel ofan í fleiri kassa heima. Og þær eru ekki allar nýliðar í þessu starfi. Þær Laufey, 10 ára, og Diljá, 11 ára, sem tóku m.a. þátt í verkefninu í fyrra, segja gaman að geta látið gott af sér leiða. Í kassana rata vel með farnar bratzdúkkur sem Diljá kveðst hætt að leika sér með, litir, fatnaður af systur Laufeyjar og svo smásætindi. Sigrún, 10 ára, virðist ekki síður áhugasöm þar sem hún kemur forláta barbídúkku fyrir í sínum kassa. „Ég á fullan poka af þeim heima,“ segir hún og fannst sjálfsagt að deila því með öðrum. Margrét, 9 ára, er ekki síður gjafmild á sín leikföng, er hún kemur bleikri tösku og skopparabolta fyr- ir í kassanum. „Það er skemmtilegt að gefa,“ segir hún og hefur lítinn tíma fyrir blaðamann og ljósmyndara. „Skemmtilegt að gefa“  Verkefnið Jól í skókassa orðinn fastur liður í starfi deilda KFUM og KFUK  Þátttaka skóla gæti orðið minni í ár Gjafmildar Fjölmörg leikföng rata í pakkana. Morgunblaðið/RAX Láta gott af sér leiða Sumar stelpurnar útbúa einnig pakka heima fyrir börnin í Úkraínu. MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 306. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Heitast 8°C | Kaldast 0°C Austlæg átt, 10-15 m/s og rigning við SV- ströndina. Hægari vindur og úrkomulítið annars staðar. »10 „Mér finnst æðislegt þegar Nat King Cole kemur með „Chest- nuts Roasting“,“ segir Frostrósin Margrét Eir. »25 TÓNLIST» Jól að hætti Frostrósa BÓKMENNTIR» Alvöru konur loks orðnar söguhetjur. »23 Dustin Hoffman að fá sér í svanginn og Paris Hilton í íþróttagalla að láta snyrta á sér negl- urnar. »29 FÓLK» Enginn sori, bara slúður MYNDLIST» Sequences hófst með miklum gjörningi. »27 FLUGAN» Flugan í leikhúsi, Hafn- arhúsi og teiti. »24 Menning VEÐUR» 1. Drap leðurblöku í miðjum leik … 2. Hluti af starfinu að sofa hjá Jagger 3. Getur ekki samþykkt Icesave 4. Fundu sex lík í húsi »MEST LESIÐ Á mbl.is Engar skuldir verið afskrifaðar  Engin ákvörðun hefur verið tek- in um afskriftir á skuldum eignar- haldsfélags Haga, 1998 ehf., sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu hans. Skuld 1998 við Nýja Kaupþing nemur ríflega 48 milljörðum króna, en eina eign fé- lagsins er Hagar. »Forsíða Höftin afnumin  Seðlabankinn hefur tekið fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishafta. Búið er að heimila innstreymi er- lends gjaldeyris til nýfjárfestinga. Þá hefur Seðlabankinn vísað 20 málum, þar sem grunur leikur á að lög um gjaldeyrishöft hafi verið brotin, til Fjármálaeftirlitsins. »8 Gagnsætt kjör útilokað  Abdullah Abdullah, andstæð- ingur Hamids Karzais í forseta- kosningunum í Afganistan, hefur dregið sig í hlé. Hann segir úti- lokað að kosningarnar sem halda átti nk. laugardag yrðu gagnsæjar. »12 Verðtryggingin síðasta hálmstráið  Helgi Tómasson, prófessor í töl- fræði við Háskóla Íslands, telur það afleita hugmynd að afnema verð- tryggingu í dag. Hún sé síðasta hálmstrá trausts á íslenskum fjár- málamarkaði. »11 Örúttektir meira áberandi  Meira mun bera á örúttektum en stórum og viðamiklum úttektum í verkefnavali hjá stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar næstu miss- erin. »7 „ÞAÐ að ég hafi fengið neitun í 19 skipti á þeim 20 árum sem ég hef sótt um starfslaun listamanna segir sína sögu. Á tyllidögum talar sama röddin um að það verði að örva unglinga til að lesa. En það má alls ekki styðja við bakið á þeim höf- undi sem nær einna best til ung- linga. Hugsanlega eru unglinga- bækur ekki nógu fínar bókmenntir. En mér leyfist alls ekki að tala um þetta því þá mála ég mig enn meira út í horn í þessum bókmennta- heimi.“ Þetta segir rithöfundurinn Þor- grímur Þráinsson meðal annars í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Þor- grímur fagnar í ár 20 ára rithöf- undarafmæli og gaf nýverið út ung- lingabókina Núll núll 9, tuttugustu og þriðju skáldsögu sína. Núll núll 9 er sjálfstætt framhald tveggja ung- lingabóka Þorgríms, Svölustu 7unnar og Undir 4 augu. | 23 Neitað 19 sinnum um listamannalaun 20 ár Þorgrímur Þráinsson. „ARNALDUR stendur fremstur íslenskra spennu- sagnahöfunda og verður að segja eins og er að enginn kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana. Víst státa keppinautar hans stundum af flott- ari morðum, hraðari atburðarás og flottari búnaði, sumt eins og end- urrit úr CSI-þáttum. Málið er bara að Arnaldur kann að búa til alvöru fólk sem okkur, lesendum, er ekki sama um, fólk sem við viljum vita hvað verður um og hvernig reiðir af,“ segir m.a. í gagnrýni Árna Matthíassonar um nýjustu spennu- sögu Arnalds Indriðasonar, Svörtu- loft. Árni segir bókina sýna að Arn- aldur sé enn að bæta sig sem höf- undur. „Eitt það besta við bæk- urnar um Erlend og félaga hans er að í þeim öllum eru margar sögur samtímis, ekki bara málið eina sem glímt er við,“ segir Árni einnig í af- ar jákvæðum bókardómi. | 29 Arnaldur enn að bæta sig sem höfundur Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.