Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 Síðastliðið vor furðuðu margir sigá að forsætisráðherra Íslands hefði ekki krafist fundar með starfsbræðrum sínum í Bretlandi og Hollandi vegna óbilgjarnra krafna, sem þeir gerðu á hendur Ís- landi án fullnægjandi lagastoðar. Mörgum vikum síðar lét Jóhanna Sigurðardóttir undan kröfum og hneykslun landa sinna og sendi bréf með beiðni um fundi. Það var hinn 28. ágúst s.l.     Nú hefur húnverið spurð hvers vegna þessir fundir hafi ekki farið fram og hvenær þeir séu fyrirhugaðir. Þá er upplýst að hvorki forsætis- ráðherra Breta né Hollendinga hefur séð ástæðu til að svara bréfum hennar!     Ekki að þeir hafi ákveðið að hafnafundarbeiðni, heldur hafa þeir ekki virt forsætisráðherra Íslands svars. Þessi ókurteisi er dæmafá.     Getur verið að reynsla þessaraþjóða af samninganefnd um Icesave sé slík að þær telji öruggt að þessi framkoma muni ekki hafa neinar afleiðingar? Hver hafa við- brögð forsætisráðherrans verið við meðvituðum dónaskap í hennar garð og þar með Íslendinga?     Var það aldrei rætt innan rík-isstjórnar að bíða með frekari viðræður um Icesave þar til að um- beðnir fundir á milli forystumanna ríkjanna hefðu farið fram?     Fóru sendiherrar Íslands í við-komandi ríkjum á fundi í utan- ríkisráðuneytum til að biðja um skýringar? Eða var samninga- nefndinni um Icesave falið að at- huga málið með öðrum smámálum á hennar dagskrá? Jóhanna Sigurðardóttir Ekki virt svars Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is „FJARVERA formanns Framsókn- arflokksins [Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar] í skipulagsráði er einsdæmi í borginni og full ástæða í framhaldi af því að endurskoða regl- ur borgarinnar,“ létu fulltrúar Sam- fylkingarinnar og Vinstri grænna bóka á fundi skipulagsráðs í gær. Eftir að Sigmundur var kjörinn í ráðið í ágúst 2008 hefur hann mætt á 19 fundi, verið sjö sinnum í leyfi frá fundarstörfum og verið fjarverandi og kallað út varamann á 19 fundi. Meira en fundarseta „Út frá upplýsingum um laun fyrir setu í skipulagsráði má reikna að Sigmundur Davíð hefur haft 1.006.276 í tekjur fyrir tímabilið. Þar sem hann hefur mætt á 19 fundi ger- ir það 52.962 kr. fyrir hvern fund. Viðbótarkostnaður Reykjavíkur- borgar við að kalla út varamenn á sama tíma eru rétt tæpar 200 þús- und,“ segir einnig í bókuninni. Sigmundur Davíð gagnrýnir útreikningana og segir að síðustu mánuði hafi hann undantekningar- laust misst af fundum í skipu- lagsráði vegna umræðu um Evr- ópusambandið eða Icesave á Alþingi. „Ríkisstjórnin í mestu efnahags- krísu í sögu þjóðarinnar heldur því sjálf fram að hún hafi ekki komist í önnur mál þrátt fyrir allt sitt emb- ættismannakerfi. Að gera ráð fyrir því að ég geti truflunarlaust sinnt skipulagsmálum í Reykjavík við þessar aðstæður er dálítið skrýtið.“ Þá segir Benedikt Sigurðsson, að- stoðarmaður Sigmundar Davíðs, að seta í skipulagsráði feli töluvert meiri vinnu í sér en svo að mæta á vikulega fundi, svo það sé villandi að setja málið upp með þeim hætti sem fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna gera. Í skipulagsráði létu fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins bóka: „Eins og flestum er kunnugt hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nefndarmaður í Skipulagsráði Reykjavíkur, tekið að sér formennsku í stjórnmálaflokki og hefur af þeim sökum mætt minna á fundi en efni stóðu til í upphafi. Það er hins vegar hefð fyrir því í stjórn- kerfi Reykjavíkurborgar að fulltrúar gegna trúnaðarstörfum víða og hafa ekki verið gerðar athugasemdir við það fyrr en núna. Nýjasta dæmið er án efa fjarvera oddvita Samfylking- arinnar, Dags B. Eggertssonar, síð- astliðið ár þar sem hann hefur tekið virkan þátt í stjórn landsmála á með- an hann var á launum hjá borginni. Ef Samfylkingin er að leggja til að reglur verði skýrari en verið hefur er réttast að hún byrji á sjálfri sér.“ Segja fund með Sigmundi dýran Missti af fundum í skipulagsráði vegna umræðna um ESB og Icesave á Alþingi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 3 heiðskírt Lúxemborg 7 skýjað Algarve 24 léttskýjað Bolungarvík 2 alskýjað Brussel 9 léttskýjað Madríd 15 léttskýjað Akureyri 5 alskýjað Dublin 8 skúrir Barcelona 20 léttskýjað Egilsstaðir 6 rigning Glasgow 8 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 8 skýjað London 12 léttskýjað Róm 13 skýjað Nuuk -4 heiðskírt París 10 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 9 léttskýjað Winnipeg 1 léttskýjað Ósló 1 skýjað Hamborg 3 þoka Montreal 3 skýjað Kaupmannahöfn 3 skúrir Berlín 3 þoka New York 9 heiðskírt Stokkhólmur 2 snjókoma Vín 3 skúrir Chicago 8 skýjað Helsinki 1 alskýjað Moskva -2 skýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 5. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 1.21 0,4 7.31 4,2 13.51 0,5 19.53 3,8 9:25 16:59 ÍSAFJÖRÐUR 3.31 0,2 9.31 2,3 16.04 0,2 21.55 1,9 9:45 16:49 SIGLUFJÖRÐUR 5.37 0,2 11.51 1,3 18.12 0,1 9:28 16:32 DJÚPIVOGUR 4.46 2,3 11.06 0,4 17.00 1,9 23.10 0,3 8:58 16:24 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á föstudag Austan 10-18 m/s, hvassast við suðurströndina og norðvest- anlands. Rigning, einkum suð- austantil. Hiti víða 2 til 7 stig. Á laugardag Norðaustlæg átt, 5-10 m/s með vætu um tíma í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á sunnudag Gengur í vaxandi suðaustanátt með rigningu sunnan- og vest- anlands, en þurrt fram eftir degi norðaustantil. Hiti 2 til 8 stig. Á mánudag Suðlægar áttir með vætu, eink- um suðaustanlands, en snýst til norðlægrar áttar, fyrst vest- anlands, síðdegis. Á þriðjudag Lítur út fyrir norðanátt með élj- um og kólnandi veðri. Tunglfylling: 89.55% fylling, minnkandi (= ca. mínus 90%) VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða hægviðri og úrkomulítið, en norðaustan 5-10 með skúr- um á Vestfjörðum. Hiti víða 1 til 7 stig. Opið hús í Árbæjarskóla, fimmtud. 5. nóvember, kl. 17.00 - 18.30 Umræður um framtíðarskipulag í þínu hverfi Vinnuhópar með aðferðum Air Opera. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, kynnir stuttlega vinnu við nýtt aðalskipulag áður en umræður hefjast. Hugmyndasmiðja Hugmynda- og teiknivinna með ungum arkitektum. Vinnustofa fyrir börn Undir stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík. www.adalskipulag.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.