Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 20
20 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 FÖRGUN sorps hef- ur verið vandamál sem fylgt hefur manninum frá örófi alda. Fyrst voru menn með sorp- hauga rétt við bæj- arhúsin, svo var sorp- inu hent í ár og sjó samkvæmt máltækinu „lengi tekur sjórinn við“. Slíkt gekk auðvit- að ekki til lengdar og var farið að safna sorpinu með skipu- legum hætti (Elliðaár, Gufunes o.fl.), því næst með því að brenna það og nú er það urðað (t.d. Álfsnes og Kirkju- ferjuhjáleiga). Flokkun er framtíðarlausn Allt frá stofnun Sorpu bs. hafa menn reynt að örva flokkun en með takmörkuðum árangri, t.d. með blaðagámum, endurvinnslugámum og móttökustöðum. Megnið af sorp- inu lenti samt sem áður á urðunar- stöðum. Þá sáu menn að hægt væri að framleiða metangas (CH4) til þess að knýja áfram bifreiðar og flokkunará- huginn dvínaði. Hvati til flokkunar var t.d. útflutn- ingur á pappa, blöðum, fernum o.fl. Því hærra verð, þeim mun meiri hvati. Þessi útflutningur hefur gengið upp og nið- ur þar til síðustu árin að einkafyrirtæki í sorp- hirðu hafa sinnt þessum mikilvæga útflutnings- markaði í auknum mæli. Með því að flokka sorpið betur minnkar sá hluti sem fer í urðun og verðmætasköpun eykst með aukinni endur- vinnslu. Tilraun í Kópavogi – Hugsum áður en við hendum Nokkur sveitarfélög hafa í sam- vinnu við einkaaðila farið út í að flokka allt sorp sem til fellur í bæjarfélögum og hefur það skilað góðum árangri. Kópavogsbær ákvað að fara í til- raunaverkefni í samvinnu við Íslenska gámafélagið, sem sér um sorphirðu í Kópavogi, um flokkun á sorpi í Nón- hæð í Kópavogsdal þar sem er blönd- uð 1.500 manna byggð. Fyrstu tölur sýna að árangurinn af flokkun er ald- eilis frábær, þ.e. um 60% af sorpinu eru flokkuð. Það fer ekki í urðun held- ur verður að útflutningsverðmætum eða næringarríkum áburði. Með áframhaldandi flokkun held ég að það eigi að nást frekari árangur og það magn sem fer í urðun verði mun minna. Aukin flokkun gæti lækkað sorphirðugjald Það er ljóst að aukin flokkun þýðir lægri urðunarkostnað og lægri sorp- hirðugjöld. Sorpa bs. hefur verið með hugmyndir um rándýra brennslustöð sem á að framleiða rafmagn án þess að vitað sé hvernig það reiknings- dæmi lítur út. Stofnkostnaður er tal- inn í mörgum milljörðum króna. Með aukinni flokkun mun kostn- aður íbúa lækka, aukin útflutnings- verðmæti skapast fyrir þjóðarbúið og hlutfall þess sem urðað er lækka að mun. Þar af leiðandi minnkar kostn- aðurinn við land undir urðun og vökt- un þess. Þegar tilrauninni með flokkun á Nónhæð verður lokið vonast ég til að allt sorp verði flokkað í Kópavogi og það verkefni verði boðið strax út á næsta ári. Flokkun er framtíðin í sorphirðu Eftir Gunnar I. Birgisson » Fyrstu tölur sýna að árangurinn af flokk- un er aldeilis frábær, þ.e. um 60% af sorpinu eru flokkuð. Gunnar I. Birgisson Höfundur er fv. bæjarstjóri í Kópavogi. SÖKUM núverandi efnahagsörðuleika á Íslandi er nauðsyn- legt að skoða alla mögulega valkosti sem gætu hjálpað til við að styðja upp- byggingu á efnahags- kerfinu og íslensku krónunni. Ein leið sem hefur kannski ekki verið skoðuð í þaula er sú hugmynd að bjóða ein- staklingum rétt á dvalarleyfi gegn beinni fjárfestingu á Íslandi. Slík hugmynd var framkvæmd í Hong Kong árið 2003, þegar Hong Kong var að berjast við sína eigin kreppu sem hafði skollið á sökum SARS-veirunnar. Til að fá inn fjármagn til borgarinnar byrjaði Hong Kong að bjóða upp á svo- kallað „Captial Entrant Residency Scheme“ sem mætti þýða sem „dvalarleyfi gegn fjármagni“. Dvalarleyfi gegn fjármagni gefur einstaklingum frá flestum löndum möguleika á að fá dvalarleyfi í Hong Kong, gegn því að fjárfesta að minnsta kosti US$ 833.000 (ca. 104 milljónir íslenskar) í fyrirfram skilgreindum eignaflokkum í Hong Kong. Frá og með 30. júní 2009 hafði Hong Kong gefið 4.350 ein- staklingum slík dvalarleyfi og á móti tekið inn um 4 milljarða Bandaríkjadollara (ca. 500 millj- arða íslenskra) og skapað mörg störfum í Hong Kong. Að auki hafa 1.241 ein- staklingar fengið bráðabirgðasamþykki fyrir slíku dvalarleyfi, sem mun taka inn 1 milljarð Bandaríkja- dala til viðbótar. Hug- myndin sem slík er ekki ný af nálinni. Fleiri þjóðir hafa boð- ið upp á dvalarleyfi gegn fjárfestingu, með mismunandi ár- angri. Til að mynda kynntu Bandaríkin svipað kerfi ár- ið 1992 (EB-5 Program), sem gef- ur einstaklingum sem fjárfesta á milli US$500.000-1.000.000 að fá græna kortið, gegn því skilyrði að einstaklingurinn geti sannað að fjárfestingin skapi í það minnsta 10 störf. Ameríska kerfið hefur ekki verið eins árangursríkt og kerfið í Hong Kong sökum strangra reglna og einstaklega flókins umsóknarferlis. Eingöngu 6.000 græn kort hafa verið gefin út á þessu ameríska kerfi síðan 1992. Ísland ætti að íhuga það vandlega að setja á fætur svipað dvalarleyfiskerfi og Hong Kong þar sem hagur Íslands gæti verið verulegur. Til að reyna að áætla hversu mikið fjármagn slíkt kerfi gæti laðað til Íslands er vert að skoða eftirfarandi dæmi. Ef við gefum okkur þær forsendur að Ísland gæfi út jafn mörg dvalarleyfi og Hong Kong, reiknað út frá stærð vergrar landsframleiðslu hvers ríkis, ætti Ísland að geta laðað til sín um það bil 36 milljarða á næstu 6 árum, gegn því að gefa út 300-350 dval- arleyfi á sama tímabili. Dvalarleyfi gegn beinni fjárfestingu á Íslandi gæti verið markaðssett til er- lendra fjárfesta frá löndum þar sem mikill árlegur hagvöxtur á sér stað, t.d í Kína, Brasilíu, Rúss- landi og öðrum þróunarlöndum. Kerfið gæti verið markaðssett sem „Réttur til dvalarleyfis“ sem mundi ekki endilega þýða að ein- staklingar sem fjárfestu á Íslandi þyrftu að nýta sér réttinn til dvalarleyfis strax, þó að þeir fjár- festu strax. Öruggur og áskilinn réttur til dvalarleyfis á Íslandi, ásamt þeim möguleika að geta orðið íslenskur ríkisborgari myndi ekki eingöngu veita efnuðum fjár- festum í þróunarlöndum töluverða öryggistilfinningu. Réttur til dval- arleyfis mun einnig veita fjárfest- inum og hans fjölskyldu þann aukaávinning að geta búið, unnið og stundað nám, hvar sem er í Evrópu. Það er ávinningur sem fjárfestar frá flestum ríkum þróunarlöndum hafa ekki í dag. Búsetuleyfi á Íslandi – leið til að fá inn erlent fjármagn Eftir Þröst Jóhannsson » Ísland ætti að íhuga það vandlega að setja á fætur svipað dvalarleyfiskerfi og Hong Kong. Þröstur Jóhannsson Höfundur er framkvæmdastjóri í Hong Kong. MIKIÐ hefur geng- ið á í samfélaginu á undanförnum mán- uðum. Ljóst er að mikið fjárlagagat blasir við ríkisvaldinu og stefnt er að því að loka því með aukinni skattlagningu bæði á atvinnulíf og almenn- ing. Á undanförnum mánuðum hefur al- menningur stórlega dregið úr neyslu og ljóst að margir eru að undirbúa enn frekari niðurskurð þar sem almenningur óttast enn krappari kjör í kjölfar aukinnar skattlagningar á næsta ári. Fyrir nokkrum árum var ákveð- ið að bjóða upp á séreignarlífeyr- issparnað til að auka sparnað al- mennings og tókst þessi framkvæmd með ágætum. Und- irritaður hefur tekið þátt í þessu og bendir margt til þess að tekjur undirritaðs hækki vegna þess þeg- ar 60 ára aldrinum verður náð, þ.e. að því gefnu að vinnu sé enn að hafa. Ein leið sem nefnd hefur verið er að skattleggja inn- greiðslur lífeyrisgreiðslna í al- menna kerfinu. Önnur leið að skattleggja núverandi eign í séreignarsparnaði og inngreiðslur í slíkan sparnað til framtíðar. Fyrri leiðin er eflaust flókin og gera má ráð fyrir að lífeyrissjóð- irnir finni henni allt til foráttu. Síðari leiðin er hins vegar fé sem þeir sem borgað hafa inn eiga og mun alltaf fást að fullu greitt út. Undirritaður hefur engan hitt enn sem hefur verið ósammála um að fara þá leið, né hef ég heyrt nein rök gegn því að fara þessa leið. Nokkrar tölur hafa verið nefndar hversu háar upphæðir þetta eru, allt frá 30-60 millj- arðar í skatttekjur. Þetta færi langt með að loka fjár- lagagati næsta árs sem virðist vera þungt fjárlagaár. Slík skatt- lagning ætti og að hafa jákvæð áhrif á mörg sveitarfélög sem berjast nú í bökkum. Þetta er mun vænlegri leið en að auka skatta á almenning, eða segja fólki upp hjá hinu opinbera, sem mun þá draga enn frekar úr neyslu. Enn minni neysla veldur enn frek- ara atvinnuleysi og kreppan frek- ar dýpkar en hitt. Ef búið er að skattleggja sér- eignarsparnaðinn fæst hann greiddur út á efri árum en verður þá ekki skattlagður. Það er flest- um sem ég þekki hulin ráðgáta hvers vegna þessi leið er ekki rædd frekar og ég skora á stjórn- völd, lífeyrissjóði, verkalýðsfélög eða hvern þann sem telur þessa leið ekki færa að koma með rök sem almenningur skilur. Fjöl- miðlar ættu einnig að gera skoð- annakönnun á því hvort ekki sé mikill meirihluti fyrir slíkum að- gerðum því þó að skattur yrði tek- inn af öllum mínum séreign- arsparnaði hefði það engin áhrif á mitt daglega líf – hvorki nú né í framtíðinni. Ég skora á stjórnvöld að taka við sköttum af mínum sér- eignarsjóði strax í dag. Skattlagning séreignar- sparnaðar, já takk Eftir Jón Björn Skúlason »Ef búið er að skatt- leggja séreign- arsparnaðinn fæst hann greiddur út á efri árum en verður þá ekki skatt- lagður. Jón Björn Skúlason Höfundur er landfræðingur. Sími 551 3010 Hárgreiðslustofan TAKTU VEL Á MÓTI SÖLUFÓLKI OKKARReykjavík Sími 588 9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Sérhæð eða hæð og ris óskast – góðar greiðslur í boði Traustur kaupandi óskar eftir 150-200 fm sérhæð eða hæð og risi. Þessir staðir koma vel til greina: Vesturbærinn, Hlíðar eða nágrenni Miklatúns. Allar nánari uppl. veita Sverrir Kristinsson og Hilmar Þór Hafsteinsson. Reykjavík Sími 588 9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Einbýlishús í Þingholtunum óskast – góðar greiðslur í boði Höfum kaupanda að 300-400 fm einbýlishúsi í Þingholtunum. Sterkar greiðslur í boði. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.