Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 Flúðir | Þess var minnst á Flúðum hinn 30. október að 80 ár og þremur dögum betur er síðan Flúðaskóli tók til starfa. Skólinn var jafnframt fyrsta húsið á Flúðum. Fjölsótt há- tíðardagskrá var í Félagsheimilinu þar sem sungið var og saga skólans tengd ákveðnum árum og atburðum. Helgu Teitsdóttur var færður blómvöndur fyrir farsælt starf við skólann. Á milli atriða fóru nemendur með kúnstug svör sem nemendur hafa svarað í tímum og vöktu svörin kátínu. Kvenfélag Hrunamannahrepps gaf skól- anum 80 þúsund kr. og foreldrafélagið gaf 100 þúsund kr. Þá var opið hús í skólanum þar sem nemendur sýndu verk sín. Boðið var upp á átta metra langa rjómatertu, Mjólk- urbú Flóamanna gaf rjómann sem fór í tert- una. Nú eru 172 nemendur í skólanum sem tek- inn var í notkun árið 1966. Nemendur í 8.-10. bekk koma einnig úr Skeiða- og Gnúpverja- hreppi. Kennarar eru um 20. Fyrsti skóla- stjóri skólans var Ingimar Jóhannesson, en alls hafa verið 14 skólastjórar við skólann. Núverandi skólastjóri er Guðrún Péturs- dóttir. Átta metra rjómaterta í afmælisveislu Flúðaskóla Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson Gaman saman Nemendur í 1.-5. bekk og skólakór Flúðaskóla sungu nokkur lög. Rjúpnaskyttur eru hvattar til að koma vængjum af þeim fuglum sem þær veiða til Náttúrufræði- stofnunar svo hægt sé að ald- ursgreina þá. Heimilisfangið er: Náttúru- fræðistofnun Ís- lands, Pósthólf 5320, 125 Reykja- vík. Fyrir þá sem koma með pokana er Náttúrufræðistofnun við Hlemm í Reykjavík. Pokarnir skulu merkt- ir með nafni og netfangi. Einnig skal halda aðskildum fuglum af mismunandi svæðum. Vængina má klippa eða slíta af við ysta lið (úln- liðinn), þannig pakkast þetta vel og eins haldast flugfjaðrirnar saman, en það eru einmitt þær sem þarf til að aldursgreina. Rjúpnaskyttur skili vængjum til Nátt- úrufræðistofnunar Rjúpa Safna á vængjunum. SÝNINGIN „Við þjónum þér“ verð- ur haldin í sýningar- og reiðhöllinni í Borgarnesi dagana 6. og 7. nóv- ember nk. Á sýningunni munu fyr- irtæki kynna vörur og þjónustu fyr- ir forráðamönnum sveitarfélaga, stofnana þeirra og fyrirtækja. Mikil breidd einkennir sýninguna þar sem fyrirtæki úr mörgum greinum viðskiptalífsins kynna vörur sínar og þjónustu, en yfir 30 fyrirtæki taka þátt í sýningunni. Framkvæmdarstjórn sýningar- innar er í höndum Seláss ehf. í Borgarnesi en skipuleggjandi er Markfell ehf. í Reykjavík. Vörur og þjónusta kynnt sveitarfélögum Breidd Fjölbreytni er á sýningunni. SAMTÖK at- vinnulífsins, Heimili og skóli, og Félag leik- skólakennara standa nk. þriðju- dag, kl. 8-11, fyr- ir ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík um barnvænt sam- félag. Markmiðið er að vekja samfélagið til vitundar um hversu mikilvægt er að hlúa að börnum og gera samfélagið barn- vænt. Einn mikilvægasti þátturinn í því er samstarf við atvinnulífið. Skráning fer fram á vef Samtaka at- vinnulífsins og er þátttaka ókeypis. Hvatt til barnvæns samfélags Börn að leik í Kópavogi. GRÆNN TILBÚINN TIL NOTKUNAR . RAUÐU RTILBÚ INN TIL NOTKU NAR hálsi 3 - 110 R. HVÍTUR TILBÚINN TIL NOTKUNAR . GULUR TILBÚINN TIL NOTK UNAR lsi 3 - 11 0 R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.