Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 Eftir Kristrúnu Karlsdóttur kriskar@hi.is STUTTMYNDAHÁTÍÐIN Ljós- vakaljóð verður haldin í Norræna húsinu í dag. Þetta er í fjórða sinn sem Ljósvakaljóð er haldin, en þetta er stuttmyndakeppni ungs fólks á aldrinum 15 – 25 ára. Keppnisflokk- arnar í ár eru þrír. Fyrstu tvö ár keppninnar var keppt um bestu stuttmyndina, en í fyrra var bætt við keppni um besta „pitchið“, en hún gengur út á það að kepp- endur segja frá sínum hug- myndum að kvik- myndum. Á móti fá keppendur upp- byggilegar og gagnlegar athugasemdir frá dóm- nefndinni. Í ár bættist enn einn flokkurinn við en það er handritakeppnin. „Við erum mjög spennt fyrir handrita- keppninni, þetta er í fyrsta skipti sem við erum með þennan flokk og við renndum svolítið blint í sjóinn með hann. En við fengum send inn um tuttugu handrit sem dómnefndin er að fara vandlega yfir núna,“ segir Björg Magnúsdóttir, verkefnisstjóri Ljósvakaljóða. Fjörutíu stuttmyndir Keppendur verða fleiri og yngri með árunum. „Áhuginn hjá unga fólkinu virðist vera mjög mikill sem er mjög gaman,“ segir Björg. „Það voru sendar inn fjörutíu stuttmyndir þetta árið, sem er gríðarleg aukning frá því í fyrra. Þetta eru myndir frá öllum landshlutum og krakkar niður í 15 ára og upp úr senda inn stutt- myndir.“ Dómnefndirnar eru tvær þetta ár- ið og eru þetta þjóðþekktir fagaðilar. „Silja Hauksdóttir, Ragnar Braga- son og Otto Geir Borg dæma stutt- myndirnar og „pitchið“, en handritin verða dæmd af Friðriki Þór Frið- riksyni, Bergi Ebba Benediktssyni og Yrsu Sigurðardóttur,“ segir Björg. Dagskráin hefst kl. 17.30, sjálf stuttmyndakeppnin fer fram kl. 20 en þá verða sýndar þær myndir sem keppa um aðalverðlaunin. Aðgangur er ókeypis. Fleiri myndir sendar inn Stuttmynda- keppni ungs fólks fer fram í dag Bergur Ebbi Benediktsson TÖKUR á Áramótaskaupinu hófust mánudaginn sl. undir öruggri leik- stjórn Gunnars B. Guðmundssonar sem á m.a. að baki kvikmyndirnar Astrópíu, Konunglegt bros og hlaut jafnframt Edduverðlaunin árið 2003 fyrir bestu stuttmyndina, Karamellumyndina. Gunnar vildi eðlilega sem minnst segja um skaupið þegar blaðamað- ur ræddi við hann í gær, enda venj- an sú að halda sem allra mestri leynd yfir efnistökum allt fram að frumsýningu á gamlárskvöld. Þó er líklegt að kreppan komi eitthvað við sögu. Áramótaskaup Sjónvarpsins er án efa vinsælasta sjónvarpsefni árs- ins og það efni sem allir virðast hafa skoðun á og ætlast til að sé fyndið. Gunnar er ekkert stress- aður yfir þessu og segist hlakka til frumsýningarinnar. Meðfylgjandi myndir voru teknar við Bæjarins beztu í miðbæ Reykjavíkur í gær- morgun og verða lesendur að geta sér til um hvers konar atriði var verið að taka upp. helgisnaer@mbl.is Algjört leyndó Gunnar leikstjóri Sést hugsi fyrir miðju með svarta húfu á höfði. Eina með öllu? Tvær persónur Áramótaskaupsins, önnur kunnuglegri en hin. Örn Árnason Einn þeirra fjölmörgu sem leika í skaupinu, með kollu í hendi. Morgunblaðið/RAX BEIN ÚTSENDING LAUGARDAGINN 7. NÓVEMBER KL. 18.00 (ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR) ENDURSÝND MIÐVIKUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 18.30 NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.OPERUBIO.IS TURANDOT MARIA - GULEGHINA LIÙ MARINA - POPLAVSKAYA CALÀF MARCELLO - GIORDANI TIMUR SAMUEL - RAMEY PUCCINI TURNADOT Í REYKJAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI FRÁ LEIKSTJÓRA 40 YEAR OLD VIRGIN OG KNOCKED UP. STÓRKOSLEG GRÍNMYND MEÐ ÞEIM ADAM SANDLER, SETH ROGEN OG ERIC BANA HHHH - S.V. MBL ÞÚ S PILA R TIL AÐ L IFA ÞESSI KEMUR ÞÉR Í „FEELING“ Frábær tónlist, frábær dans, frábær mynd! DRAUMAR GETA RÆST! SURROGATES SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI EIN VINSÆLASTA TEIKNIMYND ALLRA TÍMA ER LOKSINS KOMIN Í ÞRÍVÍDD SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI / SELFOSSI STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 8 - 10 16 JÓHANNES kl. 8 L GAMER kl. 10:40 16 / KEFLAVÍK JÓHANNES kl. 8 L STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 10 16 MORE THAN A GAME kl. 8 7 FUNNY PEOPLE kl. 10:10 12 / AKUREYRI kl. 8 12 kl. 8 16 25. janúar 2010. WWW.NOMA.NU Stórfréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.