Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 ✝ Arndís Ágústs-dóttir fæddist á Bíldudal 5. september 1917. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 29. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Ágúst Sigurðs- son, f. á Desjarmýri í Borgarfirði eystra 3. ágúst 1886, og Jak- obína Pálsdóttir, f. á Prestbakka við Hrútafjörð 5. október 1892. Þau létust 18. febrúar 1943, þegar vélskipið Þor- móður fórst við Garðskaga. Arndís var ein sjö systkina og tveggja fóst- ursystra og eru nú þrjú þeirra á lífi Jakob, Hrafnhildur, og Ingibjörg, en látin eru Sigríður, Unnur, Hjálmar, Páll og Karolína. Arndís giftist 23. maí 1942 Jóni Jóhannssyni, f. á Bíldudal 27. júlí 1915, d. 23. maí 2006. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Eiríksson bóndi, f. 5. maí 1874, d. 10. sept. 1937 og Salóme Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1888, d. 18. og c) Elías og á hann eitt barn, Em- ilíu Rós. 3) Kolbrún Dröfn, f. 22. sept. 1959, maki Kristófer Krist- jánsson, f. 19.11. 1957. Börn þeirra eru Kristófer, Kristrún og Kristján Arnar. Arndís og Jón bjuggu lengst af í Valhöll á Bíldudal. Arndís ólst uppá Bíldudal og vann við ýmis störf þar til hún gift- ist, en helgaði sig þá að mestu heimilinu, en vann allmörg ár í Rækjuverksmiðjunni á Bíldudal. Arndís vann einnig með manni sín- um við heyskap á sumrin, en þau voru með töluverðan fjárbúskap í fjölda ára. Arndís tók virkan þátt í starfi Kvenfélagsins þar sem hún var kjörin heiðursfélagi og slysa- varnardeild kvenna á Bíldudal. Arndís söng í kirkjukór Bíldudals- kirkju frá fermingu og fram á sjö- tugsaldur Arndís og Jón fluttu til Reykjavíkur þegar aldur færðist yfir og bjuggu í tíu ár á Kleppsvegi 62 í Reykjavík og studdu hvort annað í ellinni. Eftir að Jón lést 2006 flutti Arndís á Skjól og naut síðustu árin frábærrar umönnunar þess góða starfsfólks sem starfar á Skjóli. Útför Arndísar verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 5. nóvember, og hefst athöfnin klukk- an 13. febrúar 1943. Jón og Arndís eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Gústaf Adolf, f. 5. okt. 1944, kvæntur Erlu Árnadóttur, f. 28. sept. 1946. Börn þeirra eru; a) Hulda, gift Hinriki Braga- syni, þau eiga tvö börn, Eddu Hrund og Gústaf Ásgeir, b) Árni, kvæntur Krist- rúnu Ástvaldsdóttur, þau eiga þrjú börn, Emil, Ársól Erlu og Kára, c) Ómar, kvæntur Jóhönnu Guðrúnu Guðmundsdóttur, þau eiga þrjár dætur, Agnesi, Eyvöru og Ragnhildi, og d) Arnar. 2) Jak- obína, f. 17. nóv. 1948, maki Sig- urþór Lúðvík Sigurðsson, f. 21. apríl 1948. Börn þeirra eru; a) Jón Arnar, kvæntur Margréti Katrínu Guðnadóttur, þau eiga þrjú börn, Helenu Jakobínu, Ólaf Vernharð og Katrínu Jóhönnu, b) Ólafur Hrafn, kvæntur Ragnheiði Gunn- arsdóttur, þau eiga þrjú börn, Dag, Arndísi Dóru og Guðrúnu Salvöru, Elsku mamma mín, mig langar til að kveðja þig með nokkrum orðum. Þú sem hefur alltaf verið fastur punktur í lífi mínu, fyrst mínu og svo seinna þegar við Kristófer vorum komin með fjölskyldu. Það var ynd- islegt að eiga þig og pabba að. Þú hefur kennt mér svo margt enda bjartsýn og jákvæð. Það var gott að alast upp í Valhöllinni okkar á Bíldu- dal og í næsta nágrenni við ættingja. Það var kært á milli ykkar systkina og því samgangur mikill á milli húsa. Og svo seinna meir þegar skólaárin fyrir sunnan tóku við hlakkaði ég alltaf til að koma heim. Þá voru Bíbí systir og hennar fjölskylda einnig búsett á Bíldudal. Svo seinna meir þegar þið pabbi fluttuð í litlu íbúðina á Bíldudal nutu börnin okkar Krist- ófer og Dúdda góðs af. Og þegar við fluttum svo í Grundarfjörð var erfitt að kveðja afa og ömmu. Samveru- stundirnar urðu fleiri þegar þið fluttuð til Reykjavíkur og settust að á Kleppsveginum. Það fór vel um ykkur þar. Og ekki var nú verra að þið voruð komin nær honum Gústa bróður og Erlu hans sem voru ykkar stoð og stytta. Þannig að Litla Val- höll var oft full af vinum og ætt- ingjum. Grundarfjarðarfjölskyldan okkar, börnin okkar voru nú orðin þrjú því að sá yngsti Kristján Arnar sem var skírður í höfuðið á ömmu sinni hafði nú bæst við, kom þar æði oft við. Þú þurftir þó oft á jákvæðninni að halda því að líf þitt var ekki alltaf dans á rósum, misstir mjög ung for- eldra og fleiri ættingja í Þormóðs- lysinu og sást einnig á eftir ungum börnum þínum og svo seinna systk- inum. Einnig hrjáðu þig um skeið mjög erfið veikindi. Árið sem pabbi lést var þér einnig erfitt, þá varst þú einnig veik. Þá heimsóttum við þig á sjúkrahúsið og pabba á Kleppsveginn. Öllu þessu tókst þú af sama æðruleysinu þó að þú saknaðir sárt ættingja, góðra vina og elskulegs eiginmanns. Síðustu árin þín bjóst þú á Skjóli v/Kleppsveg þar sem þú naust góðr- ar umhyggju starfsfólks. Alltaf var jafngott að heimsækja þig og þú varst svo dugleg að sækja föndrið og leikfimi en hafðir einnig tíma til að spjalla við þá sem til þín sóttu. Við og börnin okkar sóttum til þín og þú heimsóttir okkur og alltaf var það svo notaleg stund. Núna í september þegar ég hélt upp á afmælið mitt varst þú auðvitað með mér ásamt ættingjum og vinum og þá grunaði mig ekki að þetta væri síðasta veislan okkar. Þarna varst þú eins og alltaf, eins og drottning og naust þín vel. Þegar þú svo veiktist núna í lok október og varst lögð inn á Land- spítalann fannst mér gott að geta verið hjá þér og haldið í höndina á þér. Við fengum flest tækifæri til að kveðja þig en Dúdda mín sem er bú- sett í Kaupmannahöfn og hann Diddó tengdasonur þinn sakna einn- ig kærrar ömmu og tengdamömmu. Nú ertu farin úr þessum heimi en ég trúi því að þú sért komin til pabba og allra ættingjanna þinna hinum megin og þau fagni þér. Við eigum þér svo margt að þakka við börnin þín, tengdabörnin, barna- börnin og barnabarnabörnin. Þú varst svo yndisleg við okkur öll! Kolbrún Dröfn og fjölskylda. Hún Dídí, tengdamóðir mín, er öll. Allt fram í síðustu viku var hún ótrúlega hress. Fyrir rúmum mán- uði lét hún sig ekki vanta þegar „stelpurnar“ frá Bíldudal hittust á Jómfrúnni, en það er árlegur við- burður. Þar naut hún sín best innan um sínar gömlu vinkonur að ógleymdri systur sinni Hrafnhildi sem var hennar stoð og stytta og heimsótti hana oft í viku, allan þann tíma sem hún var á Skjóli og eftir að hún missti hann Jón sinn fyrir þremur árum. Ég kynntist Dídi þegar ég kom í Valhöll haustið 1967, en sonur henn- ar Gústi hafði boðið mér á ball. Vorið eftir kom ég aftur og þá sem kær- asta sonar hennar með dóttur mína Huldu. Mér var tekið sem prinsessu og hlýjan frá þeim báðum Jóni og Dídi var einlæg, bæði gagnvart mér og dóttur minni Huldu, sem varð þar með þeirra fyrsta barnabarn og var það alla tíð. Aldrei bar skugga á þessa væntumþykju og jókst hún með árunum og var gagnkvæm frá fyrstu stundu. Dídi var einstaklega óeigingjörn, jákvæð og heil kona. Alltaf var hún að hugsa um að gera öðrum til góða í veitingum og var ekki í rónni nema eiga eitthvað gott í gogginn handa öllum sem í Valhöll komu. Mjög gestkvæmt var á heim- ili þeirra og voru allir velkomnir þar. Sonur hennar man að eitt sumarið svaf hann oft í tjaldi á túninu við húsið þar sem öll rúm voru fullskip- uð. Við hjónin fórum í nokkur ferða- lög um landið með þeim hjónum, oft- ast í tilefni stórafmæla þeirra. Þá var Dídí í essinu sínu og áttum við ógleymanlegar samverustundir í þessum ferðum. Árið 1995 fluttu þau hjón suður til Reykjavíkur, en Jón var þá orðinn 80 ára og heilsutæpur. Þau bjuggu sér fallegt heimili á Kleppsvegi 62 og áttu þar saman 11 góð ár. Þar var líka gestkvæmt og alltaf eitthvað til í búrinu ef gesti bar að garði. Þau voru ákaflega vinamörg, enda tóku þau öllum af sömu hlýjunni sem umlukti þau hjón alla tíð. Í mörg ár eftir að þau fluttu suður var það fastur liður í tilver- unni hjá okkur hjónum að borða með þeim á fimmtudögum. Þá var alltaf þjóðlegur matur á borðum og nóg af honum. Eftir að Jón féll frá fékk Dídí pláss á Skjóli og var það síðustu ár- in, en hún hafði fótbrotnað illa tvisv- ar sinnum og gat því ekki búin ein í íbúðinni á Kleppsvegi. Á Skjóli leið henni vel og naut þar öryggis og ein- staklega góðrar umönnunar hjá elskulegu starfsfólki þar, sem hér er þakkað fyrir. Dídí bar börnin okkar á höndum sér og ekkert var henni kærara en að halda á litlu barni, þá brosti hún út að eyrum. Afkomend- ur hennar eru nú 28 og þar af eru barnabarnabörnin 15. Hennar fyrsta spurning þegar maður kom til henn- ar var hvort allir væru frískir, og börnin okkar og barnabörnin væru hress. Já, hennar er sárt saknað en við huggum okkur við það að nú er hún komin til hans Jóns síns og litla drengsins sem hún missti í fæðingu 1943. Ég held að enginn geti óskað sér betri tengdamóður en hana Dídí, guð blessi minningu hennar og takk fyrir að fá að kynnast henni og verða henni samferða í 41 ár. Elsku Kolla, Bíbí og makar, ég samhryggist ykkur innilega og tek þátt í sorg ykkar. Erla Árnadóttir. Ég ætla hér að minnast ömmu Dídíar í örfáum orðum. Amma Dídí lést aðfaranótt fimmtudagsins 29. nóvember síðast- liðins eftir stutta sjúkdómslegu. Réttum tveimur vikum fyrr hringdi í hún í mig stálhress, seint að kvöldi eins og hennar var stundum siður og spurði hvort við hefðum það ekki gott sem endranær, hvort ekki væru allir frískir og sagði mér um leið að hún væri hress og kát og hefði það gott. Ekki var þá nokkurn bilbug á henni að merkja en svona gerast hlutirnir stundum hratt. Síðustu ár- unum, eftir að afi Jón dó, varði hún á Skjóli þar sem vel fór um hana. Í Valhöll á Bíldudal bjuggu þau afi Jón annars mestallan sinn búskap en fluttu í bæinn fyrir 14 árum. Eftir það bjuggu þau á Kleppsveginum í notalegri íbúð sem bar öll merki Val- hallarinnar, skiltið á hurðinni og uppstoppuðu dýrin hans afa upp um alla veggi. Og myndir af börnum, barnabörnum og hinum óteljandi vinum þeirra. Amma Dídí var alla tíð óskaplega góð við mig. Ég var elsta barnabarnið og varði öllum sumrum sem barn á Bíldudal hjá og á Þingeyri hjá ömmu og var það mikið ævintýri og á ég þaðan ynd- islegar minningar. Amma og afi voru höfðingjar heim að sækja og sérstaklega minnist ég kvöldkaffi- sins hjá þeim; baunasalat og tekex og brúnterta með hvítu kremi. Og að kíkja í kalda búrið hjá ömmu var ævintýri, alltaf eitthvert namm- inamm í uppsiglingu. Veislur alltaf hreint. Og ef eitthvað vantaði skaust ég í Jónsbúð og sótti það um hæl. Amma gaf mér líka alvöru kakó og búðingsduft til að drullumalla með í kofanum mínum fyrir ofan Valhöll. Hún var hlý og góð og alltaf mundi hún eftir afmælinu mínu, hringdi í mig og óskaði mér til hamingju. Gaf mér stundum pakka sem enginn annar mátti vita um, svona laumaði að mér smáræði og kyssti mig um leið. Þetta hefur hún örugglega gert við öll barnabörnin í laumi og haft gaman af. Eftir að afi dó árið 2006 var hún á Skjóli og fór vel um hana þar þótt mikið vantaði. Amma kom tvisvar að heimsækja okkur hingað austur á Árbakka og sýndi öllu hér áhuga þótt ekki deildi hún hinum mikla dýraáhuga afa. Elsku amma mín, ég veit að þú hefur það gott núna með afa en við söknum þín samt og ég þakka allar góðu stundirnar sem við áttum. Hulda Gústafsdóttir. Arndís Ágústsdóttir, móðursystir mín, er látin. Dídí frænka átti far- sælt lífshlaup, fædd og uppalin á Bíldudal og bjó þar lengst af ásamt manni sínum Jóni Jóhannssyni. Dídí var ein sjö Valhallarsystkina á Bíldudal. Ég sagði að Dídí hefði átt farsælt líf og held að svo hafi verið. En þar bar þó stóran skugga á sem var Þormóðsslysið, þar fórust tugir manna. Það var hræðilegt högg fyrir allar þær fjölskyldur sem áttu um sárt að binda eftir það slys á Bíldu- dal. Dídí frænka mín missti þar báða foreldra sína, tengdaforeldra og tvo mága í þessu slysi. Höggið var gríð- arlegt og furðu gegnir að fólk skuli standa upprétt eftir slíka atburði. Ef slíkur ætti sér stað í dag væri í boði ýmis fagleg áfallaaðstoð til að takast á við slíkt. En á þessum tíma var ekkert slíkt í boði, fólk þurfti að vinna úr slíku sjálft og að mestu ein- samalt. En það er ekki þar með sagt að það falli öllum til að geta unnið sig út úr slíku áfalli einir og óstudd- ir. Mér fannst ég ávallt sjá á Dídí og systkinum hennar hversu áfallið var þungt. Ávallt er þessi atburður var rifjaður upp báru tilfinningarnar þau ofurliði sem sýnir hve sorgin hefur hvílt þungt í brjósti þeirra eins og margra annarra Bílddæl- inga. En minningar mínar um Dídí frænku fyrstu árin sem ég man eftir henni eru allt aðrar og ljúfari. Ég man hana sem einstaklega glæsilega ljúfa og hlýja manneskju sem var gott að vera hjá sem drengur. Ég og Bæring bróðir minn dvöldum oft á sumrum hjá Dídí frænku eða hjá Sirrý sem ól mömmu upp eftir slys- ið. Það rifjast upp að við gengum þar í skóla vorið ’62 mamma var ófrísk, meðgangan erfið og hún hafði gefist upp á okkur og við verið send- ir á Bíldudal. Upphaflega dvöldum við báðir hjá Sirrý, en ég fór í Val- höllina til Dídí eftir að við vorum reknir úr skóla á Bíldudal fyrir dólgslæti og dónaskap. Þá þótti rétt að skilja okkur að. Frændgarðurinn hló, Dídí kímdi svo lítið bar á en Sirrý ekki. Mér er minnisstætt að á þessum tíma leigðu þau út kjallar- ann í Valhöll. Þar voru mjög sér- kennilegir menn í rúmi, Leifi og Lási. Dídí var ákaflega góð við karl- ana en hafði áhyggjur af því að atast væri í þeim. Þeir voru ólíkir karl- arnir, Leifi rólegur og ljúfur, en Lási styggari. Dídí og Jón höfðu fé í Tófuhúsunum og við vorum ráðnir í það hlutverk að smala og vorum í engum vafa um að við værum bestir á þessu sviði og héraðsbrestur yrði er við létum af störfum. Þegar ég fór að fullorðnast hafði ég það sem reglu að koma við hjá Dídí þegar ég kom á Bíldudal meðan þau bjuggu þar. Eftir að Dídí og Jón fluttu til Reykjavíkur ’95 heimsótti ég þau þegar ég kom því við. Ég hefði getað tekið mér móður mína Hrafnhildi til fyrirmyndar í því sem heimsótti Dídí og Jón nánast daglega eftir að þau fluttu til Reykjavíkur og síðan Dídí eftir að hún fór á Skjól. Dídí og Jón urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að börn þeirra Gústaf, Jakobína og Kolbrún hafa verið þeim ákaflega góð og hugulsöm alla tíð og borið þau á höndum sér, ekki síst eftir að þau fluttu til Reykjavíkur. Votta ég þeim samúð mína. Guð blessi þig, frænka mín. Gísli Ólafsson. Arndís Ágústsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, KRISTRÚNAR BIRGITTU KRISTJÁNSDÓTTUR, Víp, áður til heimilis Hellubraut 3, Hafnarfirði. Starfsfólk hjúkrunarheimilisins Grundar fær sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun og góða framkomu. Steindór Olsen, Árný S. Steindórsdóttir, Bragi Jóhannsson, Ásrún S. Steindórsdóttir, Rögnvaldur Þ. Höskuldsson og barnabörn. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓLI JÚLÍUS BJÖRNSSON frá Siglufirði, til heimilis á Urðarbraut 2, Blönduósi, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugar- daginn 7. nóvember kl. 14.00. Sigríður G. Pálsdóttir, Sverrir S. Ólason, Björg V. Zophoníasdóttir, Birna Óladóttir, Arnar E. Ólafsson, Helga Óladóttir, Óskar B. Elefsen, Júlía Óladóttir, Reynir Karlsson, afa- og langafabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skila- frests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.