Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 44

Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 44
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 124,34 205,54 117,22 24,654 21,72 17,608 121,42 1,3676 197,47 183,5 Gengisskráning 4. nóvember 2009 124,64 206,04 117,56 24,726 21,784 17,66 121,76 1,3716 198,06 184,01 236,5884 MiðKaup Sala 124,94 206,54 117,9 24,798 21,848 17,712 122,1 1,3756 198,65 184,52 Heitast 7°C | Kaldast 1°C  Víða hægviðri og úr- komulítið, en norð- austan 5-10 metrar á sekúndu með skúrum á Vestfjörðum. »10 Vel heppnað verk, slungið og læsilegt, saga fyrir börn í nú- tíð og þátíð, segir m.a. um Bókasafn Ömmu Huldar. »37 BÆKUR» Læsileg barnabók TÓN- OG LAGALISTINN» Friðrik Ómar, Jógvan og Muse. »40 Eru karlar ekki líka stundum hlutgerðir, er Smith Jarred eitt- hvað meira en vöðvastæltur leik- fangastrákur? »38 AF LISTUM» Karlar með kippur SJÓNVARP» Kunnugleg andlit í ára- mótaskaupinu. »41 TÓNLIST» Halla Vilhjálms í úrslit sænska Evróvisjón. »36 Menning VEÐUR» 1. Haldið sofandi í öndunarvél 2. Fitch um Ísland: Ekkert þróað … 3. Ævintýri á bílastæði 4. Íslenskir handboltaleikmenn …  Íslenska krónan veiktist um 0,2% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Á dögunum var Elín Björg Jóns- dóttir kjörin for- maður BSRB, fyrst kvenna. Af því til- efni færðu fulltrúar Kvenréttinda- félags Íslands El- ínu Björgu viðurkenningu í gær. Svo skemmtilega vildi til að einn fulltrúi Kvenréttindafélagsins, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, var fyrsta kon- an sem kjörin var varaforseti BSRB. Kvenréttindafélagið minnti á af þessu tilefni að það hefur ekki alltaf þótt sjálfsagt að konur gegndu ábyrgðarstöðum í samfélaginu. STÉTTARFÉLÖG Kvenréttindafélag Íslands heiðraði Elínu Björgu  „Ég iða í skinn- inu eftir að komast í leikinn á nýjan leik. Ég er með fiðring í maganum, mér líður eins og þegar ég var barn og gat varla sofið vegna spennu yfir að taka þátt í móti daginn eftir,“ segir landsliðsmað- urinn í handknattleik, Ásgeir Örn Hallgrímsson. „Silfurdrengurinn“ frá því í Peking hefur ekki keppt í handbolta í hálft ár vegna meiðsla en í kvöld lýkur biðinni hjá Ásgeiri sem leikur með GOG í dönsku úrvals- deildinni. HANDBOLTI „Silfurdrengurinn“ Ásgeir Örn með fiðring í maganum  Brúðuleik- húsmaðurinn Bernd Ogrodnik hefur undanfarnar tvær vikur verið að sýna valda kafla úr brúðusýningu sinni Umbreyting – ljóð á hreyfingu, í Michael Jay Fox leik- húsinu í Vancouver, fyrir um 600 börn á sýningu. Verkið var frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í maí 2006. Fullbókað er á sýningar Ogrodnik í einar átta vikur en hann sýnir um alla vesturströnd Kanada. Sýningar fara fram bæði í leikhúsum og grunnskólum. LEIKHÚS Ogrodnik sýnir brúðuleik- hús á vesturströnd Kanada STÚLKURNAR á frístundaheimilinu Hlíðaskjóli voru í óða önn að föndra fallega skartgripi fyrir fátæk börn í Úkraínu þegar ljósmyndara Morg- unblaðsins bar að garði. Föndrið er liður í verkefninu Jól í skókassa en jólagjöfunum er dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Á þremur frístundaheim- ilum í borginni hafa verið útbúnar á annað hundrað jólagjafir. Á annað hundrað jólagjafir útbúnar á þremur frístundaheimilum Morgunblaðið/Árni Sæberg Föndrað fyrir fátæku börnin ÍSLENDINGAR hafa þurft að gefa ýmislegt eftir vegna kreppunnar en eitt er það sem þjóðin ætlar greinilega ekki að sleppa tökunum á og það er jólaskapið. Jólatónleikar eru greinilega ómissandi liður í jóla- undirbúningnum í margra huga ef marka má miðasölu á tvenna stærstu tónleikana, Frostrósir og Jólagesti Björgvins Halldórssonar, því ætla má að um 30.000 Ís- lendingar muni sækja þessa tónleika. Þá eru ótaldir smærri tónleikar, s.s. árlegir jólatónleikar Fíladelfíu og tónleikar Mótettukórsins í Hallgrímskirkju. Tónleikahaldarar bæði Frostrósa og Jólagesta Björg- vins eru í skýjunum yfir viðtökunum og aukatónleikum hefur verið bætt við á báða vegu. Frostrósir munu syngja á sjö stöðum landið um kring og áætlar Samúel Kristjánsson, forsvarsmaður þeirra, að um 18-20 þús- und Íslendingar muni allt í allt hlýða á sönginn og segir hann það algjört met. „Þegar við gerðum okkar plön gerðum við ráð fyrir að þetta yrði á svipuðu róli og í fyrra en ekkert meira. Svo fórum við að finna mjög góða strauma og jákvæðni og í þessari viku hefur þetta farið fram úr björtustu von- um.“ Svipaða sögu segir Ísleifur Þórhallsson, skipu- leggjandi Jólagesta Björgvins. Uppselt er á tvenna tón- leika og hugsanlegt að þeim þriðju verði bætt við, en það þýðir að 9.000 manns munu hlýða á Björgvin. „Við erum alsæl með þetta því við vissum ekki alveg út í hvað við værum að fara út af þessu ástandi í þjóðfélaginu,“ segir Ísleifur. Eflaust má að hluta rekja þessa góðu að- sókn til þess að á hvorum tveggja tónleikanna hefur allt verið gert til að halda miðaverðinu niðri og hefur það t.a.m. ekki hækkað á tónleika Björgvins í 3 ár. Ísleifur bendir á að hundruð manna, bæði tæknimanna og lista- fólks, hafi vinnu af tónleikunum tveimur og veltan sé því mikil. „Þetta er bara rosalega gleðilegt fyrir bransann.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólin Söngvar og jólatónlist eru ómissandi hluti af jóla- haldi flestra Íslendinga enda flykkjast þeir á tónleika. Tugþúsundir Íslendinga flykkjast á jólatónleika Þjóðin sleppir ekki tökunum á jólaskapinu SJÓNVARPSMAÐURINN Sölvi Tryggvason hyggst færa í letur end- urminningar athafnakonunnar Jón- ínu Benediktsdóttur en ekki er enn ljóst hvenær bókin kemur út og ekki hefur enn verið samið við forleggj- ara. Þau áttu fund í gær og er Sölvi þegar kominn með mikið af gögnum til að vinna úr. Jónína var sem kunnugt er frum- kvöðull í rekstri líkamsræktarstöðva hér á landi og haslaði sér einnig völl í Svíþjóð við mikinn orðstír. Hún er einnig þjóðkunn vegna bloggs og blaðaskrifa sinna þar sem hún hef- urt meðal annars gagnrýnt harka- lega viðskiptahætti Baugsfeðganna og fleiri útrásarvíkinga. Ritar sögu Jónínu Ben Sölvi Tryggvason Jónína Benediktsdóttir Sölvi Tryggvason kominn með gögn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.