Morgunblaðið - 05.11.2009, Page 21

Morgunblaðið - 05.11.2009, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 JÁKVÆÐUSTU fréttir síðustu viku að mínu mati voru þær að okkur hefur tekist að halda vel utan um unga fólkið okkar í kreppunni eins og fram kom í niðurstöðum rann- sóknar um líðan barna sem Rannsókn og greining gerði í febrúar sl. Þar kemur fram að andleg líðan barna hefur batnað milli ára þrátt fyrir ástandið í efnahagslífinu. Skólamálin eru langstærsti málaflokkur sveitarfélaganna og eru skólarnir með stærstu vinnu- stöðum þeirra þegar horft er til fjölda nemenda og starfsfólks. Nemendur eyða stórum hluta dagsins í skólum og því er mik- ilvægt að þeim líði vel í skól- anum. Mikill metnaður hefur ver- ið lagður í skólastarf á Seltjarnarnesi í gegnum tíðina. Við höfum lagt mikið í að end- urbæta skólahúsnæði og aðstöðu nemenda og kennara og sér- kennsla er líklega hvergi öflugri hér á landi. Það hefur skilað sér í markvissari kennslu og betri þjónustu við alla nemendur hvort sem þeir eru hægfara eða bráð- gerir í námi. Við bjóðum upp á heitan mat í skólunum okkar gegn vægu gjaldi þar sem mat- seðlar eru samhæfðir milli skóla- stiga. Foreldrar geta nýtt sér lengda viðveru fyrir nemendur upp í 4. bekk þar sem lögð er áhersla á að allir notendur fái þjónustu við hæfi. Mikill metn- aður er einnig lagður í að hafa vinnudag nemenda samfelldan og fengum við sérstaka viðurkenn- ingu fyrir það frá Heimili og skóla. Mikið og gott samstarf er á milli leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla þannig að nem- endur geta farið úr tíma í grunn- skóla til að sinna tónlistarnámi að hluta og boðið er upp á kennslu í tónlist í leikskólunum. Það var mikil framsýni hjá þeim sem byggðu upp Seltjarn- arnesið að hafa alla þjónustu á einum og sama staðnum. Þannig eru grunnskóli, tónlistarskóli, íþróttaaðstaða, leikskólar, fé- lagsmiðstöð, sundlaug, bókasafn og heilsugæsla á sama svæðinu þannig að auðvelt og öruggt er fyrir nemendur að fara á milli stofnana. Þetta hefur gert okkur kleift að samtvinna skóla- og tómstundastarf barnanna þannig að þau klára sinn vinnudag í sam- fellu. Þar hefur líka skipt sköpum gott samstarf allra sem koma að umönnun, kennslu og þjálfun barna og unglinga á Seltjarn- arnesi. Án náins samstarfs þess- ara aðila væri fyrirkomulag sem þetta ógerlegt. Það skiptir okkur máli að foreldrar geti verið áhyggjulausir og við þurfum að geta treyst því að börn okkar og unglingar séu í góðum höndum hvort heldur sem er í skólanum, íþróttum eða því tómstundastarfi sem boðið er uppá í bæjarfélag- inu. Mikið hefur verið rætt um niðurskurð á ýmsum sviðum vegna efnahagsástandsins bæði hjá ríki og sveitarfélögum enda ekki vanþörf á að bregðast við aðsteðjandi vanda. Skólamál eru stærsti einstaki liður í útgjöldum Seltjarnarnesbæjar eins og í flestöllum öðrum sveitarfélögum á landinu eftir yf- irfærslu grunnskól- ans frá ríki. Þar er stærsti kostnaðarlið- urinn launakostnaður enda færi víst næsta lítið fram í skólum án kennara og annars starfsfólks. Það er því óhjákvæmilegt að sá málaflokkur komi fyrst upp í hugann þegar rætt er um niðurskurð á þjónustu. Það er að vissu leyti auðvelt að taka skólakerfið og skera þar niður enda þjónusta sveitarfélaga í skólamálum oft langt umfram lagaskyldu eins og reyndin er á Seltjarnarnesinu. Því er í lófa lagið að breyta þjón- ustustigi í skólunum með minni sérkennslu, breytingu á skipan í bekkjardeildir og öðrum aðgerð- um. En er ráðlegt að ganga of nærri þessari þjónustu? Er það ekki hátt menntunarstig þjóð- arinnar sem við bindum hvað mestar vonir við að muni koma okkur út úr kreppunni sem fyrst? Mikið hefur verið rætt um að það sé okkar helsta auðlind og er þá rétt að ganga að skólakerfinu og skera of mikið niður í skólum landsins? Það er mín skoðun að við eig- um að fara varlega og vanda til verks í þessum efnum. Grunn- skóli og leikskóli teljast til grunn- þjónustu sveitarfélaga og skipta miklu máli fyrir okkar yngstu borgara. Við eigum að standa vörð um þessa þjónustu og gæta þess að hún verði áfram til fyr- irmyndar og settur verði metn- aður í að gera skólana sem besta. Það er vissulega hægt að hag- ræða og er sjálfsagt að velta við öllum steinum til að gera rekst- urinn sem hagkvæmastan og má segja að það sé skylda okkar sveitarstjórnarmanna við íbúa að gera slíkt. Að sjálfsögðu eigum við jafnframt að gera kröfu um árangur í skólakerfinu. En stíg- um varlega til jarðar í hagræð- ingu í skólakerfinu og stöndum vörð um þessa grunnþjónustu við yngri íbúana. Menntunarstig þjóðarinnar, andleg og líkamleg velferð barnanna skiptir alla máli og til lengri tíma litið skilar alúð við þessa þjónustu okkur sterk- um, heilbrigðum og hæfum ein- staklingum út í þjóðfélagið öllum til góðs. Stöndum vörð um unga fólkið Eftir Sigrúnu Eddu Jónsdóttur Sigrún Edda Jónsdóttir »Er það ekki hátt menntunarstig þjóð- arinnar sem við bindum hvað mestar vonir við að muni koma okkur út úr kreppunni sem fyrst? Höfundur er formaður skólanefndar Seltjarnarness. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Vetrartilboð til Staðgreiðslukorthafa Þessi tilboð gilda til 31. des. 2009 Rúðusköfur Frostlögur Sómasamlokur og langlokur Quiznos-réttir Bílaperur Þurrkublöð Rúðuhreinsir Lásaspray og lásaolía 25% afsláttur 25% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 25% afsláttur 25% afsláttur 25% afsláttur 25% afsláttur Þú getur sótt um Staðgreiðslukortið á olis.is, á næstu Olís-stöð eða í síma 515 1141. 3 kr . af sl. a f eld sne ytis lítra num 2 kr . (1 ,5% ) af sl. í form i Vild arp unk ta I cela nda ir Allt af m eð Sta ðgr eiðs luko rtin u: PI PA R\ TB W A • SÍ A Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga er til húsa á 5. hæð í Hamrahlíð 17, Reykjavík. Þar er opið alla virka daga kl. 9–16. Tímapantanir og upplýsingar í síma 54 55 800 hjá ráðgjöfum, augnlækni og sjónfræðingum. Nánari fróðleikur á www.midstod.is AUGUN HVÍLA Á OKKUR Sjónin er nauðsynleg til að rata um í ys og þys nútímans. Þegar hana skortir, geta einföld verkefni orðið flókin. Þess vegna er mikilvægt að blindir, sjónskertir, aðstandendur þeirra og fagfólk, hafi aðgang að bestu hugsanlegu tækni, aðstoð, þjálfun og upplýsingum á einum stað. Miðstöðin er sá staður. ÍS L E N S K A S IA .I S S JO 47 63 1 11 /0 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.