Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009
LÖGREGLUMENN beittu kylfum og táragasi til
að kveða niður mótmæli stjórnarandstæðinga í
miðborg Teheran í gær þegar þúsundir manna
gengu um götur borgarinnar til að minnast þess
að 30 ár eru liðin frá því að íranskir námsmenn
tóku 52 Bandaríkjamenn í gíslingu í bandaríska
sendiráðinu og héldu þeim í 444 daga. Íranskir
stjórnarandstæðingar hafa notað hvert tækifæri
til að mótmæla endurkjöri Mahmouds Ahmad-
inejads í umdeildum forsetakosningum í júní.
Hermt er að leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
Mehdi Karroubi, hafi tekið þátt í mótmælum
hennar á torgi í miðborg Teheran en forðað sér
þaðan eftir að lögreglumenn réðust með kylfum
og táragasi á stjórnarandstæðingana.
Íranskir námsmenn efndu til mótmæla gegn
Bandaríkjunum í tilefni af gíslatökuafmælinu og
héldu á skopmyndum af Barack Obama.
Reuters
MÓTMÆLI STJÓRNARANDSTÆÐINGA BÆLD NIÐUR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
SIGUR repúblikana í ríkisstjóra-
kosningum í New Jersey og Virginíu
í fyrradag er álitinn áfall fyrir
Barack Obama og demókrata nú
þegar ár er liðið frá því að hann var
kjörinn forseti Bandaríkjanna.
Repúblikaninn Bob McDonnell
var kjörinn ríkisstjóri Virginíu, ríkis
þar sem Obama sigraði í forseta-
kosningunum fyrir ári, fyrstur for-
setaefna demókrata í fjóra áratugi.
Sigur repúblikanans Chris Christ-
ies í New Jersey er álitinn meira
áfall fyrir Obama sem hafði tekið
þátt í kosningabaráttu ríkisstjóra-
efnis demókrata í ríkinu. Demókrat-
ar hafa verið öflugir í New Jersey.
Skoðanakannanir fyrir utan kjör-
staði benda til þess að deilur um
stefnu Obama hafi ekki haft mikil
áhrif á ríkisstjórakosningarnar. Um
55% aðspurðra í Virginíu og 60% í
New Jersey sögðu að stefna Obama
hefði ekki haft áhrif á ákvörðun
þeirra í kjörklefanum.
Kannanirnar leiddu í ljós að lítil
kjörsókn var meðal kjósendahópa,
svo sem ungra kjósenda og blökku-
manna, sem áttu stóran þátt í sigri
Obama fyrir ári. Þetta bendir til
þess að erfitt verði fyrir demókrata
að fá stuðning þessara hópa í næstu
þingkosningum sem fram fara á
miðju kjörtímabili forsetans.
Obama naut mikils stuðnings
meðal óháðra kjósenda í Virginíu og
New Jersey fyrir ári en margir
þeirra kusu repúblikana í ríkis-
stjórakosningunum. Þetta kann að
hafa áhrif á miðjumenn úr röðum
þingmanna demókrata sem sækjast
eftir endurkjöri á næsta ári. Líklegt
er að þeir verði tregir til að styðja
Obama í erfiðum málum á þinginu af
ótta við að styggja þennan kjósenda-
hóp.
Áhersla lögð á efnahagsmál
Úrslit kosninganna eru þó ekki
talin sigur fyrir íhaldssömustu öflin í
flokki repúblikana. Christie og
McDonnell lögðu báðir áherslu á
efnahags- og atvinnumál í kosninga-
baráttunni og forðuðust að flíka
íhaldssömum skoðunum sínum í
samfélagsmálum, m.a. í deilunni um
fóstureyðingar.
Kosningaúrslitin benda til þess að
repúblikanar eigi góða möguleika á
sigri í þingkosningunum á næsta ári
ef þeir leggja áherslu á efnahags-
málin og forðast að bjóða fram menn
sem eru of íhaldssamir til að fá at-
kvæði kjósenda á miðjunni.
Úrslitin viðvörun til demókrata
Ósigurinn gæti orðið til þess að miðjumenn úr röðum demókrata yrðu tregir til að styðja Obama í
erfiðum málum á þingi Repúblikanarnir forðuðust að ræða íhaldssöm viðhorf sín í samfélagsmálum
Úrslit ríkisstjórakosninga í
Bandaríkjunum í fyrradag eru
álitin viðvörun til demókrata um
að þeir geti ekki reitt sig á stuðn-
ing hópa sem tryggðu Obama
forsetaembættið fyrir ári.
Bob McDonnell Chris Christie
Madríd. AFP. | Pólitísk spilling, sem
rakin er til viðamikils fast-
eignabrasks síðustu fimmtán árin,
hefur vakið reiði margra Spánverja.
Vart líður vika án þess að nýtt
hneykslismál komi upp vegna póli-
tískrar spillingar sem kom í ljós
þegar hrun varð á fasteignamark-
aðnum á Spáni í fyrra. Flest spill-
ingarmálin komu upp í bæjum eða
héruðum við Miðjarðarhafsströnd-
ina, á Kanaríeyjum og Madrídsvæð-
inu. Spænskir fjölmiðlar segja að yf-
ir 300 manns – kjörnir
embættismenn eða verktakar –
verði sóttir til saka á næsta ári
vegna spillingarmálanna.
„Eftir fasteignafyllirí síðustu ára
höfum við vaknað með spilling-
artimburmenn,“ sagði Gaspar
Llamazares, leiðtogi Sameinaðra
vinstrimanna.
Nýleg skoðanakönnun bendir til
þess að Spánverjar telji að „stjórn-
málaflokkar og stjórnmálamenn“
séu nú meira áhyggjuefni en ofbeldi
baskneskra aðskilnaðarsinna.
Stjórnmálamennirnir, sem eru við-
riðnir spillingarmálin, koma úr öll-
um flokkum þótt athyglin hafi eink-
um beinst að Þjóðarflokknum þar
sem margir forystumanna hans í
Valensíu og Madríd eru grunaðir
um að hafa þegið mútur frá verk-
tökum fyrir að greiða fyrir bygging-
arframkvæmdum.
Spænskir fjölmiðlar hafa eftir
heimildarmönnum í lögreglunni að
spillingin hafi getið af sér meira illa
fengið fé en fíkniefnasmygl sem er
mjög umfangsmikið á Spáni. Nokkr-
ir stjórnmálamenn virðast hafa
stórauðgast á skömmum tíma og
sankað að sér glæsihúsum, lúxus-
bílum, dýrum listaverkum og veð-
hlaupahestum.
„Margir stjórnmálamenn kunna
ekki lengur að skammast sín og
biðja um peninga án milligöngu-
manna,“ hafði dagblaðið ABC eftir
verktaka. „Þeir biðja um 100.000
evrur, allt að tíu milljónir evra ef
þeir greiða fyrir mjög gróðavæn-
legum framkvæmdum.“ bogi@mbl.is
Pólitísk spilling afhjúpuð á
Spáni eftir að bólan sprakk
Spillingarmál rannsökuð eftir hrun fasteignamarkaðar
STJÓRNVÖLD
á Ítalíu brugðust
í gær ókvæða
við úrskurði
Mannréttinda-
dómstóls Evrópu
um að krossar í
skólastofum
væru brot á
reglum um trú-
frelsi í ríkisreknum skólum.
Mannréttindadómstóllinn gekk
ekki svo langt að fyrirskipa
ítölskum yfirvöldum að fjarlægja
krossa úr öllum ríkisreknum skól-
um landsins og óljóst er hvaða
áhrif úrskurðurinn hefur.
Finnsk kona, sem býr á Ítalíu,
leitaði til dómstólsins og kvartaði
yfir því að krossar væru í öllum
stofunum í skóla barna hennar í
bæ nálægt Feneyjum. Dómstóllinn
úrskurðaði að greiða bæri kon-
unni skaðabætur að andvirði
5.000 evra, jafnvirði 925.000
króna.
Menntamálaráðherra Ítalíu,
Mariastella Gelmini, mótmælti
úrskurðinum og sagði að krossinn
væri ekki aðeins tákn kaþólsku
kirkjunnar heldur einnig hluti af
menningarlegri sjálfsmynd ítölsku
þjóðarinnar.
Aðrir ráðherrar í ríkisstjórn
Silvios Berlusconis forsætisráð-
herra sögðu að úrskurðurinn væri
„fáránlegur“, „svívirðilegur“ og
„móðgun“. bogi@mbl.is
Ítalir mótmæla
úrskurði gegn
krossum
Sigur demókrata í aukaþing-
kosningum í New York-ríki var
nokkur sárabót fyrir þá. Kosn-
ingarnar í ríkinu endurspegluðu
ágreining meðal repúblikana
um hvernig þeir eigi að bregð-
ast við ósigri þeirra í forseta- og
þingkosningunum fyrir ári.
Demókratinn Bill Owens sigr-
aði helsta keppinaut sinn, Doug
Hoffman, sem var í framboði
fyrir Íhaldsflokkinn en naut
stuðnings þekktra íhaldsmanna
úr röðum repúblikana. Fram-
bjóðandi Repúblikanaflokksins
dró framboð sitt til baka um
helgina og studdi demókratann
frekar en Hoffman.
Flokkurinn klofnaði
holar@holabok.is
Einfalt en fallegt
og ódýrt jólaföndur.
Upp með skærin og
límið!
Skrautlegt og
skemmtilegt jólaföndur