Morgunblaðið - 05.11.2009, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009
Ferfætlingar heilsast Hundarnir sem stundum hittast á Geirsnefinu kunna sig vel og heilsast gjarnan eins og hunda er siður. Enda er kurteislegt að kynna sig og lyktin eflaust allrar athygli verð!
Árni Sæberg
Samkeppniseftirlitið
sagði 2008 um samruna
stærstu bókaforlaga
landsins árið áður:
„… er það niðurstaða
Samkeppniseftirlitsins
að JPV og M&M muni
eftir samruna njóta
markaðsráðandi stöðu á
markaði …“ Hið nýja
fyrirtæki hlaut nafnið
Forlagið. Til að sporna
við markaðsráðandi stöðu þess var
því gert auk annars að selja útgáfu-
réttinn á Íslensku orðabókinni og
verkum Halldórs Laxness. Það
gerðist aldrei. Síðan hefur markaðs-
staða Forlagsins styrkst á öllum
sviðum.
Ástandið
Í krafti stærðar og margskonar
tengsla við starfsmenn er Forlagið
ráðandi í Félagi íslenskra bókaút-
gefenda. Félagið skipar til að mynda
mann í dómnefnd Íslensku bók-
menntaverðlaunanna, sem vel mætti
kalla verðlaun Forlagshöfunda: Árið
2007 voru átta af tíu bókum sem til-
nefndar voru til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna frá Forlaginu,
eða 80%, og var það í engu hlutfalli
við fjölda titla sem Forlagið átti á
markaði, eða innan við þriðjung.
Forlagið er aldrei með undir 60% til-
nefninga til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna og fær þau svo til und-
antekningarlaust.
Í stjórn Rithöfundasambandsins,
sem einnig skipar mann í dómnefnd
Íslensku bókmenntaverðlaunanna,
eru nánast bara höfundar útgefnir
hjá Forlaginu og sinnir Rithöfunda-
sambandið þeim höfundum óhjá-
kvæmilega mest.
Menn tengdir Forlaginu eru að
minnsta kosti 60% af stjórn Bók-
menntahátíðar í Reykjavík enda
koma aðrir höfundar of lítið nálægt
þeirri hátíð Forlagsins meðan for-
lagshöfundar koma
þar ár eftir ár.
Jafnvel helsta
bókabúð landsins,
Mál og menning við
Laugaveg, er komin í
óeðlilega náin tengsl
við Forlagið í gegnum
eignarhaldsfélagið
sem á helminginn í
Forlaginu.
Þegar kemur að
tímaritum um bók-
menntir er Tímarit
Máls og menningar í
eigu Forlagsins og Skírni er ritstýrt
af öðrum helsta áhrifamanni For-
lagsins.
Þegar kemur að gagnrýnendum
er einn helsti menningarritstjórinn
vinur útgáfustjóra Forlagsins sem
leiðir til þess að Fréttablaðið er
nokkurs konar kynningarblað fyrir
Forlagið og sumir gagnrýnendur
eru í vinnu hjá Forlaginu eða hafa
verið það. Í krafti þessara tengsla og
auglýsingaútgjalda til fjölmiðla á
Forlagið mikið til bókmennta-
umræðuna. Einn áhrifamesti menn-
ingarritstjórinn er líka einn helsti
bókmenntagagnrýnandi sjónvarps-
ins þótt tengslin við Forlagið geri
hann marklausan. Hinn gagnrýn-
andi þar er höfundur hjá Forlaginu.
Ef nöfnum þessara gagnrýnenda er
slegið upp á síðu Forlagsins koma
upp fimmtíu dómar þar sem jafn
mörg verk Forlagsins eru dásömuð.
Merkilegt má teljast að einn besti
fjölmiðlamaður Íslands skuli ein-
ungis hleypa tengdustu gagnrýn-
endum þjóðarinnar í þáttinn hjá sér.
Svo virðist sem hann átti sig ekki á
að menningarheimurinn lýtur ná-
kvæmlega sömu hagsmunagæslu-
lögmálum og aðrir hagsmunaheimar
og er langtum spilltari en til dæmis
matvörumarkaðurinn sem þó er í
umræðunni. Samkeppniseftirlitið
taldi að samruni M&M og JPV
mundi hindra virka samkeppni og nú
sést að það var rétt til getið í fjöl-
miðli okkar allra sem á þó lögum
samkvæmt að stuðla að tjáning-
arfrelsi og því að fram komi í dag-
skrá rök fyrir mismunandi málum.
Formaður kynningardeildar
menntamálaráðuneytisins fyrir
Bókamessuna í Frankfurt 2011, for-
lagshöfundurinn Halldór Guð-
mundsson, er svo nátengdur Forlag-
inu að hann getur ekki verið annað
en umboðsmaður Forlagshöfunda,
þar með talið sín sjálfs. Maðurinn
sem á að gæta hags allra höfunda til
jafns var á tímabili stjórnarformað-
ur Forlagsins samtímis því að vera
framkvæmdastjóri Sögueyjunnar,
en hefur nú vikið af fundi um stund,
svo notað sé kunnuglegt orðalag úr
bankaheiminum. Áherslan á For-
lagshöfunda sést strax á kynning-
arvef Sögueyjunnar. Eftirfarandi
dæmi má gefa um misbeitingu Hall-
dórs á valdi sínu: Höfundur frá litlu
íslensku forlagi er í tengslum við
mjög áhugasaman þýskuþýðanda og
þýskt forlag hefur áhuga á honum.
Höfundurinn biður Halldór skriflega
um að koma á fundi milli þýðandans
og þýska forlagsins í Frankfurt og
beita sér starfinu samkvæmt til að
klára dæmið með samningi. Halldór
tekur vel í það skriflega. Það sem
síðan gerist er að fundurinn fer aldr-
ei fram og Halldór fær þýðandann
þess í stað til að þýða verk eftir virt-
an höfund á vegum Forlagsins.
Þannig leggur hann stein í götu höf-
unda frá litlum forlögum, fyrir For-
lagshöfunda, og misbeitir valdi í op-
inberri stöðu í hag fyrirtækis sem
hann er nátengdur.
Þegar ástandið á litlum markaði
er svona einsleitt þegar kemur að
öllum hliðum íslensks bókamarkaðar
má vel tala um eigendur íslenskra
bókmennta. Og þegar fáir ein-
staklingar ráða svona miklu, í þessu
tilfelli Jóhann Páll Valdimarsson,
Halldór Guðmundsson og aðilar
þeim tengdir, þá ríkir þöggun og
skoðanaþvingandi fámennisveldi.
Eigendurnir eru fulltrúar gamalla
tíma og valda engan veginn ofvöxn-
um hlutverkum sínum þegar krafist
er í senn skapandi og gagnrýninnar
hugsunar á öllum sviðum samfélags-
ins. Ein afleiðing þessa ástands er sú
að menningarlegri umræðu um bók-
menntir er ekki treystandi vegna
hagsmunatengsla. Önnur áhrif eru
að bókmenntirnar eru að of stórum
hluta fastar í úreltum þjóðern-
ishugmyndum sem áttu sinn þátt í
hruni samfélagsins. Þjóðernisróm-
antískum hugmyndum sem þó er
verið að leggja áherslu á í kynningu
á íslenskum bókmenntum fyrir
Frankfurt og selja sem íslenska bók-
menntahugsun.
Á Forlagið hlut í
Samkeppniseftirlitinu?
Eitt skilyrðið fyrir samruna JPV
og M&M var að Forlagið seldi frá
sér Íslensku orðabókina, og er það
gott dæmi um hvernig eftirlitið læt-
ur fara með sig. Fyrst heimila þeir
sameiningu fyrirtækjanna sem ger-
breytir bókamarkaðnum. Síðan set-
ur Forlagið Íslensku orðabókina á
sölu og fær sanngjarnt tilboð frá
eina forlaginu sem eftir er á markaði
sem ræður við verkefnið. Þá hafnar
Forlagið tilboðinu enda telja þeir
það ekki í samhengi við markaðs-
virði verksins. En málið er að það
voru þeir sjálfir sem með hjálp Sam-
keppniseftirlitsins röskuðu jafnvæði
á markaðnum, og byggja svo rök sín
á þeim sama óeðlilega markaði til að
hafna tilboðinu. Að eftirlitið skuli
láta draga sig svona á asnaeyrunum
sýnir algert máttleysi stofnunar-
innar í málinu. Trú smærri forlaga á
Samkeppniseftirlitið er það lítil að
þegar eftirlitið biður útgefendur um
upplýsingar um hvernig þeir telja
stöðuna vera þá nenna margir
hverjir ekki að svara því þeir vita að
ekkert gerist hvort sem er. Sam-
keppniseftirlitið hefur reynst öfl-
ugasti andstæðingur frjáls mark-
aðar í bókmenntaheiminum.
Stærsta einstaka aðgerðin sem
mundi skapa viðunandi valddreif-
ingu í bókmenntaheiminum væri ef
Samkeppniseftirlitið sæi til þess að
Forlaginu væri skipt upp í að
minnsta kosti tvö sjálfstæð fyr-
irtæki á markaði. Einveldisstaða
fyrirtækisins hefur styrkst, það er
sameiningarrisi í anda 2007 yf-
irtökubákna og menn haga sér í
samræmi við það. Löngu er ljóst
orðið að staða Forlagsins brýtur í
bága við almennt siðgæði. Ekki þarf
að blaða lengi í samkeppnislögum til
að sjá að starfsemi Forlagsins er
vægast sagt á gráu svæði. Áhrifa-
menn í bókmenntaheiminum ættu
að láta reyna á það fyrir dómstólum
hvort staða Forlagsins á markaði
brjóti í bága við lög, gjarnan með
aðkomu Rithöfundasambandsins og
Félags íslenskra bókaútgefanda.
Samkeppniseftirlitið sem samþykkti
samruna tveggja fyrirtækja sem þá
þegar voru of stór á markaði er ekki
stofnun sem neinn tekur alvarlega
ef það er dæmt út frá stöðunni eins
og hún er í bókmenntaheiminum.
Því er hér áskorun til smærri for-
leggjara að fara í mál við Forlagið
með tugmilljóna skaðabætur í huga
og til Samkeppniseftirlitsins að
grípa til skynsamlegra aðgerða
gegn Forlaginu. Slíkt yki trúverð-
ugleika stofnunarinnar, og stuðlaði
að fjörugri og heilbrigðari bók-
menntaumræðu. Í þessu máli getur
Samkeppniseftirlitið bæði sinnt því
hlutverki sínu að koma á eðlilegum
viðskiptaháttum öllum í hag og um
leið haft gríðargóð óbein áhrif á and-
legt líf í landinu.
Eftir Bjarna
Bjarnason » Í þessu máli getur
Samkeppniseftirlitið
bæði sinnt því hlutverki
sínu að koma á eðlileg-
um viðskiptaháttum öll-
um í hag og um leið haft
gríðargóð óbein áhrif á
andlegt líf í landinu.
Bjarni Bjarnason
Höfundur er rithöfundur.
Einveldi á bókamarkaði