Morgunblaðið - 05.11.2009, Page 27

Morgunblaðið - 05.11.2009, Page 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 um sig og hlusta, en það mátti eng- inn annar gera það, þá varði hún mann út í eitt. Það er stórt skarð höggvið í miðj- an, stóran systkinahóp. Skarð sem aldrei verður fyllt í þessu lífi. Ein- hvern veginn var maður aldrei með það í huga að þetta skarð myndi myndast og kannski getur maður aldrei sætt sig við það, en maður verður að lifa við það, svona er lífið. Elsku litla yndislega systir mín. Ég kveð þig með þessum fátæk- legu orðum en minningin um ynd- islega systur lifir. Bjössi minn, Magga og fjölskylda, Björn, Fannar og Sandra, ég veit að missir ykkar er mikill. Guð blessi ykkur öll og styrki. Ég ætla að kveðja yndislega systur í þetta sinn með erindi úr ljóði eftir Harald Zóphaníasson. Bið ég með bljúgum hug – bæninni lyfti á flug: ófarin árastig alfaðir leiði þig. Endaðri ævitöf út fyrir dauða og gröf áfram til ljóssins lands lýsi þér blessun hans. Þinn bróðir, Gunnólfur. Það er með virðingu og þakklæti sem ég kveð systur mína, hana Svölu, í hinsta sinn. Það er óhjákvæmilegt að verða fyrir sorg ef maður er á lífi. Stund dauðans er ávallt sár. Lífið gefur og lífið tekur. Það er hringur lífsins og það eru allir sem taka þátt í þeim leik. Sumir fá að vera lengur við borðið en aðrir. Enginn nema hinn hæsti höfuðsmiður himins og jarðar skilur hvers vegna það er í þessari röð sem fólk fer frá borðinu og kveð- ur en ekki einhverri annarri röð. Nú er komið að Svölu. Svala hefur lokið erfiðri baráttu við krabbamein sem lagði hana að velli og hún hefur feng- ið hvíldina löngu. Ég á engar minningar um lífið án Svölu enda er hún fædd rúmum 12 árum á undan mér. Svala er fyrsta systkinið sem kveður þennan heim af okkur tíu sem upplifðum fullorðinsár. Við höfðum reiknað með að hafa hana hér hjá okkur í mörg ár enn, en vegir Guðs eru órannsakanlegir, en mál- tækið segir: „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir.“ Svala var kletturinn að öllum hin- um systkinunum ólöstuðum í okkar fjölskyldu eftir að mamma kvaddi þetta líf fyrir rúmum fimm árum. Margt væri hægt að rita um afrek Svölu en ég kýs frekar að lýsa henni eins og hún var. Vinátta er ekki met- in til fjár og hún telst ekki í magni heldur í gæðum. Svala átti góða fjöl- skyldu sem hún umvafði ást og kær- leika, hún fékk það líka goldið til baka. Það var hluti af hennar ríki- dæmi. Svala var björt, hlý, ósérhlíf- in, gefandi og einstaklega góð mann- eskja sem brosti út í lífið, en hún átti líka til að gefa manni „svipinn“ ef svo bar undir. Þessi svipur var einstakur og allir sem fengu hann vissu að þá mislíkaði henni eitthvað. Alltaf var Svala reiðubúin að lána öxl eða þerra tár ef einhver átti erfitt. Svala var okkur systkinunum stoð og stytta í öllu sem við gerðum. Ekkert mann- legt var henni óviðkomandi varðandi stórfjölskylduna, hún var alltaf fyrst ef einhvern vantaði aðstoð. Hún hafði ómælt dálæti á íslenskri tónlist og þá sérstaklega á Björgvini Hall- dórssyni og oftar en ekki þegar mað- ur droppaði í kaffi var hann í tækinu. Við sem eftir erum komum til með að minnast þín, tala um þig, hugsa um þig, segja frá þér, segja hversu góð þú varst, hversu trygg þú varst, hversu gott okkur þótti að tala við þig og hversu falleg þú varst. Kærleikurinn er markmið allra mark- miða. Fyrirgefningin veitir okkur frelsi. Þakklæti gerir okkur kleift að lifa lífinu til fulls. (Höf. ók.) Þakklæti er mér efst í huga núna þegar ég rita þessi orð um þig. Þakk- læti fyrir að hafa haft þig mér við hlið í fjörutíu og sex ár og aldrei vikið frá. Bjössi minn, Margrét, Björn Fannar og Sandra og allir sem sakna minnar ástkæru systur, megi minn- ingin um góða konu milda og sefa um ókomnar stundir. Með þessum orðum um þig, kæra systir, langar mig að enda þetta með þessu fallega ljóði. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Þinn bróðir Skjöldur Vattnar Árnason. Hún Svala mágkona mín var ein- stök. Ég var svo heppin að eiga sam- leið með henni í rúmlega þrjá áratugi. Minningarnar eru margar, þær kalla fram bros og eru mér ákaflega dýr- mætar. Það var alltaf gaman í návist hennar enda fylgdi henni svo mikill léttleiki og skemmtilegheit. Á meðan hún bjó í Keflavík var oft vakað fram undir morgun við spjall og hlátra- sköll. Eftir að hún flutti í bæinn var hún dugleg að renna hingað suður eftir og sagði sjálf að það væri lífs- nauðsynlegt að hitta fólkið sitt til að hlaða batteríin. Hún var óþreytandi við að finna upp á einhverju sem systkinin og makar gátu gert til að hressa upp á hversdagsleikann og lét sig aldrei vanta ef eitthvað stóð til. Fjölskyldutengslin voru Svölu alltaf dýrmæt. Henni fannst sjálfsagt að ef fólk var á ferðinni í Reykjavík kæmi það við og ítrekaði það margoft. Það var sama á hvaða tíma sólarhringsins og hvernig á stóð, hellt var á könn- una, tínt til það sem til var og glaðst saman. Frændgarðurinn var stór og vinahópurinn líka. Það var því alltaf líf og fjör í kringum hana. Foreldrar hennar, Helga og Árni, fóru norður á hverju sumri og alltaf komu einhver okkar í kjölfarið. Stór- fjölskyldan keypti Odda á Þórshöfn 1991. Þangað fórum við Sævar, Svala og Bjössi og fleiri nánast á hverju sumri, nutum lífsins með börnum okkar og styrktum tengslin við æsku- slóðir systkinanna og hvert annað. Þar þurfti líka lítið að sofa, enda alltaf sagt að það væri lítið mál að vaka eina vornótt. Oddi er beint á móti Skuld sem tengdapabbi byggði og þar sem Svala bjó til tólf ára aldurs. Þarna var því saga ættarinnar tengd hverri þúfu. Jólabarnið Svala var alveg sér kap- ítuli. Að koma til hennar í desember var bara skemmtilegt. Í gegnum tíð- ina safnaði hún að sér einstaklega fal- legu jólaskrauti af öllum stærðum og gerðum. Maður gekk inn í undraver- öld, með yndislega jólatónlist í bak- grunni. Þegar ljóst var að endalokin voru í nánd var hún líka ákveðin í að komast heim og setja upp jólin. Elsku Bjössi, Magga, Sverrir, Björn Fann- ar, Sandra, Hafþór og ömmuprins- arnir Bjarki og Björn Þór, þið voruð líf hennar og yndi. Þið stóðuð öll eins og klettar á bak við hana og gáfuð henni styrk síðasta spölinn. Undan- farnir mánuðir hafa verið erfiðir en inn á milli voru alltaf bjartir dagar og alltaf héldum við í vonina. Við eigum hana enn, þá von að einn daginn hitt- umst við öll aftur og þá vitum við að verður kátt í höllinni. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson.) Far þú í friði, elsku vinkona, hafðu þökk fyrir allt. Hildur. Við kveðjum nú kæra mág- og svil- konu til margra ára. Svala hugsaði vel um fólkið sitt, var í miklu og nánu sambandi við fjöl- skyldu sína og var afar rausnarleg. Heimili hennar og Björns bar merki þess að hún unni því sem var vandað, heilt og fágað. Einnig þannig var fata- smekkur hennar. Hún var alltaf fal- lega klædd og þannig voru börnin líka búin. Við minnumst skemmtilegra jólaboða hjá foreldrum Björns og Páls þar sem öll fjölskyldan kom sam- an, börnin mörg og líf og fjör. Heilt fjall af jólagjöfum. Síðustu ár hefur jólaboðum fækkað og samskiptin minnkað. Það er miður. Það var mikið áfall þegar Svala greindist með krabbamein og í ljós kom að öllu er markaður tími hér á jörð. ,Kenn oss að telja daga vora að við öðlumst viturt hjarta.’ [Sl 90] Fyrir góð kynni þökkum við nú, allt of snemma. Við sendum fjölskyldu Svölu og ástvinum okkar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur. Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg, það allt, er áttu í vonum, og allt, er veldur sorg. Hann bylgjur getur bundið og bugað storma her, hann fótstig getur fundið, sem fær sé handa þér. (Björn Halldórsson.) Páll Þór, Anna og fjölskylda. Elsku Svala frænka. Við viljum þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum með þér og allt það sem þú hefur gert fyrir okkur og foreldra okkar. Alltaf feng- um við svo hlýjar móttökur þegar við komum í heimsókn til ykkar Bjössa. Þú skilur eftir stórt skarð sem ekki verður hægt að fylla upp í. En allar þær minningar sem þú skilur eftir eru ljós í lífi okkar. Elsku Björn, Margrét Erla, Björn Fannar, Sandra Dögg og fjölskylda við vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð. Við viljum kveðja yndislega frænku okkar með þessum orðum: Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað.) Þínar frænkur Þórunn, Harpa, Dröfn og Guðlaug. Elsku frænka, áður en við kveðjum þig í hinsta sinn langar okkur að þakka allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þú varst hjartahlý manneskja og lést þig alla varða, gerðir engan mannamun, þótti vænt um alla. Þannig endurspeglast það svo í börnunum þínum. Elsku Svala, minninguna um þig munum við ávallt geyma í hjarta okk- ar þar til við hittumst á ný. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Við gætum sungið, gengið um, gleymt okkur með blómunum. Er rökkvar ráðið stjörnumál. Gengið saman hönd í hönd, hæglát farið niður á strönd. Fundið stað, sameinað beggja sál. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Elsku Bjössi, Margrét, Björn Fannar og Sandra, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum Farðu í friði, elsku Svala. Bylgja, Katrín og fjölskyldur. Elsku besta Svala, runnin er upp kveðjustundin og margs að minnast. Þó er þakklætið efst í huga fyrir samferðina með þér. Þú varst ekki nema átta ára þegar þú komst og dvaldir hjá okkur einn barnaskólavetur. Maður fann þá atorku, framtakssemi og gleði sem þú bjóst yfir, alla tíð. Bæði gagnvart fjölskyldu þinni og níu systkinum þínum sem þú ólst upp með og þóttir svo óendanlega vænt um. Alltaf héld- um við góðu og traustu sambandi. Heimili ykkar Bjössa stóð okkur allt- af opið, þar var gott að koma og ávallt tekið á móti okkur með hlýju og gleði. Þið hélduð vel utan um börnin ykkar og þú þráðir að fá að fylgjast meira með þeim og sjá sól- argeislana þína tvo vaxa úr grasi. Þær voru ófáar ferðirnar sem við fórum saman til Keflavíkur til að heimsækja fjölskyldu okkar, gleðin og léttleikinn var þar alltaf í fyrir- rúmi. Einnig áttum við margar góð- ar stundir á Þórshöfn, æskuslóðum okkar. Það er ekki ofsagt að eftir að Helga móðir þín kvaddi þennan heim, að þá hafir þú tekið við sem sameiningartákn fjölskyldna okkar, boðin og búin til allra verka. Þar sýndir þú hvað samheldnin gagnvart fjölskyldunni var þér mikils virði. Í upphafi þessa árs er þú greindist með þann illvíga sjúkdóm, sem lagt hefur þig nú að velli, sýndir þú og sannaðir hve sterkum persónuleika þú bjóst yfir og hversu yfirveguð þú varst allan tímann. Öll skiptin sem við komum í heimsókn varstu á bata- vegi, að eigin sögn, og ætlaðir að henda þessum fjanda aftur fyrir þig. Þannig að þegar þinn árstími, jóla- mánuðurinn, kæmi yrðir þú tilbúin í hvað sem væri, eins og þú orðaðir það. Önnur varð raunin, sorgin og söknuðurinn situr eftir. En von okk- ar er að þú hvílir nú í faðmi foreldra þinna, sem þú barst svo sterkar til- finningar til, það græðir þó örlítið dýpstu sárin. Aðdáunarvert var að sjá hve fjölskyldan þín öll stóð sem klettur við hlið þér í þínum erfiðum veikindum. Svala, hafðu þökk fyrir allt og allt, minning þín verður ljós í lífi okkar og von um endurfundi lifa með okkur. Elsku Björn, Margrét Erla, Björn Fannar, Sandra Dögg, systkini og fjölskyldur, hafið þökk fyrir allt sem þið voruð henni. Þú eina hjartans yndið mitt í örmum villtra stranda, þar aðeins bjarta brosið þitt mig ber til draumalanda. Í þinni finn ég frjálsa brá svo fagrar innri kenndir, er seiða til sín traust og þrá í trú, sem hærra bendir. (Guðmundur Geirdal.) Við vottum ykkur dýpstu samúð á sorgarstundu Adda og Gísli, Vestmannaeyjum. Komið er að kveðjustund. Við kveðjum góðan vin og samstarfs- konu, Svölu Árnadóttur, sem lést langt um aldur fram, eftir snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm. Svala hóf starf sem ritari hjá Augnlæknastöðinni í Kringlunni ár- ið 2004. Frá fyrsta degi sýndi hún hvern mann hún hafði að geyma. Af elju, samviskusemi, festu og alúð þjónaði hún þessu starfi. Aldrei vantaði hana til vinnu og var hún fljót að hlaupa í skarðið ef með þurfti. Þegar Svölu voru falin verk- efni var það vitað að þau yrðu leyst bæði fljótt og vel. Svala og eiginmaður hennar Björn Pálsson áttu sérlega fallegt og hlýlegt heimili þar sem gott var að koma. Við starfsfólk Augnlækna- stöðvarinnar minnumst með ánægju og þakklæti samverustundanna með þeim hjónum. Í byrjun árs 2009 uppgötvaðist hinn illvígi sjúkdómur. Svala byrjaði þá strax á viðeigandi læknismeðferð, en það dugði ekki til. Af æðruleysi og innri styrk tókst hún á við veik- indi sín, allt þar til hún andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 29. októ- ber. Starfsfólk Augnlæknastöðvarinn- ar þakkar Svölu Árnadóttur sam- starfið og við vottum eiginmanni, börnum, tengdabörnum og barna- börnum innilega samúð og biðjum Guð almáttugan að blessa þau og styrkja í sorginni. Fyrir hönd starfsfólks Augn- læknastöðvarinnar í Kringlunni, Kristján Þórðarson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, MARGRÉT SCHEVING, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis Hringbraut 45, Reykjavík, sem andaðist mánudaginn 2. nóvember, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 9. nóvember kl. 15.00. Ágústa Erlendsdóttir, Baldur Sveinn Scheving, Konný Hansen, Gylfi Guðmundur Scheving, Jóhanna Guðríður Hjelm, Knútur Örn Scheving, Anna Helga Kristinsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN TRYGGVADÓTTIR, Efstasundi 63, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 4. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Hörður Lárusson, Unnur Harðardóttir, Jón Eiríksson, Lárus Þórarinn Harðarson, Tina Hardarson, Tryggvi Harðarson, Harpa Jónsdóttir, Anna Guðrún Harðardóttir, Hallgrímur Guðmundsson, Hafdís Harðardóttir, Jóhann Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.