Morgunblaðið - 05.11.2009, Side 29

Morgunblaðið - 05.11.2009, Side 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 ✝ Sigurlaug Helga-dóttir fæddist á Háreksstöðum í Norðurárdal 24. mars 1916. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 21. októ- ber sl. Foreldrar Sig- urlaugar voru Helgi Þórðarson, f. 3. febr- úar 1877, d. 11. des- ember 1951, og seinni kona hans, Ingibjörg Skarphéðinsdóttir húsmóðir, f. 1. júlí 1890, d. 11. mars 1965. Systkini Sigurlaugar; Rögn- valdur Ingvar, f. 17. júní 1911, d. 14. janúar 1990, Sigurþór, f. 19. febrúar 1913, d. 4. apríl 1995, Laufey, f. 6. ágúst 1914, d. 4. jan- og Ragnheiður Kristín Jónsdóttir, f. 17. maí 1867, d. 4. júlí 1935. Systkini Gunnars voru Jón, f. 2. september 1896, d. 2. október 1984, og Stefanía, f. 7. september 1899, d. 17. janúar 1993. Kjörsonur Sigurlaugar og Gunn- ars er Gunnar Gauti Gunnarsson, f. 6. janúar 1952, sambýliskona Edda Soffía Karlsdóttir, f. 15. október 1961. Börn hans eru Guðbjörg Lilja, f. 12. nóvember 1975, sonur hennar er Gauti Gunnarsson, f. 13. desember 2000, Sigurlaug Tanja, f. 10. júní 1978, sonur hennar er Daði Kárason, f. 23. ágúst 2001, Árni, f. 30. september 1986, sambýliskona Sigríður Eva Magnúsdóttir, f. 23. október 1984, sonur þeirra er Birkir Árni, f. 5. maí 2008, Sólveig, f. 26. júní 1996, og Margrét, f. 6. desember 1997. Útför Sigurlaugar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 5. nóv- ember, klukkan 15. úar 1983, Óskar, f. 14. september 1917, d. 2. júní 1993, Sig- ríður, f. 11. ágúst 1921, Gunnar, f. 23. september 1924, d. 19. október 2007, og hálfsystir Sig- urlaugar, samfeðra, Lára Kristín Helga- dóttir Golden, f. 12. júlí 1902, d. 13. ágúst 1985. Sigurlaug giftist 19. október 1934 Gunnari Hermanni Grímssyni frá Húsavík í Stein- grímsfirði, f. 9. febrúar 1907, d. 11. september 2003. Foreldrar hans voru Grímur Stefánsson bóndi, f. 25. desember 1865, d. 27. maí 1924, „Aldrei deyr þótt allt um þrotni endurminning, þess sem var. “ Í dag kveð ég þig, elskulega móðir mín. Það er sárt til þess að hugsa að nú sértu farin úr þessari jarðvist fyrir fullt og allt. En dauð- ann flýr enginn og við sem eftir lif- um eigum svo oft erfitt með að sætta okkur við þegar ástvinir deyja og eru kvaddir burtu of fljótt. Elskulega mamma mín, mjúk var jafnan höndin þín. Þú leiddir mig um lífsins vegi lítinn dreng, sem skildi eigi, að þroskaleið varst þú að sýna og þráðinn spinna í gæfu mína. Mildin þín er mér svo kær og minning um þig fagurtær. Þú kveður okkur kyrr að sjá. Ég kann því vart að segja frá. Hérna skiljast lífsins leiðir litla stund – en Drottinn greiðir veginn okkar endurfunda. Ég til þeirra hlakka stunda. Sú er ósk mín sælust nú, að sjáumst aftur ég og þú. Þinn sonur, Gunnar Gauti Gunnarsson. Elsku amma. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir okkur, það var svo yndislegt að fá að eiga þig. Við getum ekki heimsótt þig á dvaló lengur, mikið finnst okkur það erfitt. Þú verður alltaf sú kona sem okkur þótti svo vænt um því þú kenndir okkur svo ótal margt gott sem við minnumst alla tíð. Takk, elsku amma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Sólveig og Margrét. Allt í lífinu á sitt upphaf og sinn endi. Móðursystir mín, Sigurlaug Helgadóttir, endaði sína jarðvist hinn 21. október, hálöldruð. Bless- uð sé minning hennar. Líf hennar einkenndist af góðmennsku, vinnu- semi og ræktarsemi við allt og alla. Hún var trúuð og sannfærð um að framhald væri á lífi eftir að jarðvist myndi ljúka, þessi trú hjálpaði henni án efa yfir marga þá örðugleika – veikindi – sem settu svo oft svip á hennar jarð- neska líf, en glaðlyndið hjálpaði líka mjög mikið og margar voru gleðistundirnar. Eftirsjá er fyrir mig að þessari góðu konu, en ég ólst upp í sama húsi þar sem bjuggu hún og mað- ur hennar, Gunnar Grímsson, mik- ill ágætismaður, sem er látinn, áttu þau þá heimili á Skagaströnd. Móðir mín fékk á besta aldri berkla og var í marga mánuði á Vífilsstöðum þegar ég var 5-6 ára. Annaðist þá Sigurlaug mig sem móðir ásamt ömmu minni og föð- ur, gat ég ekki fengið betri umönnun. Ótal góðar minningar eru tengdar þessum tíma á Skaga- strönd og ekki síður seinni sam- vistartímum. Sonurinn Gauti var þeim mikils virði og augasteinn þeirra beggja og reyndist þeim ætíð svo vel og fagurt var að sjá umönnun hans og hans fjölskyldu á síðustu dögum Sigurlaugar og ljóst að samband þeirra einkenndist af ást og um- hyggju. Kæri Gauti og fjölskylda. Megi allt hið góða gefa ykkur styrk í ykkar sorg og ég veit að minning- arnar eru það sem lifir hjá okkur öllum og munu koma oft í hugann á okkar lífsferli Ennfremur hlýjar samúðar- kveðjur til systurinnar Sigríðar Helgadóttur, sem nú er ein eftir af stórum systkinahópi, en þær syst- ur voru nánar. Sigurlaug Helgadóttir er ekki farin frá okkur, hún er aðeins komin lengra en við. Helgi Ingi Sigurðsson. Nú er hún látin, elsku frænka mín, Sigurlaug. Alltaf kallaði ég hana Laugu frænku. Ég var send til hennar aðeins 15 ára gömul, til Reykjavíkur. Átti ég að fara að vinna. Þau hjónin tóku mig inn á sitt heimili sem mér fannst alltaf svo fallegt og vel til haft. Kenndi frænka mín mér ýmsa góða siði sem ég met mikils enn í dag. Hún var ákveðin og vildi hafa hlutina í lagi. Alltaf svo smart og flott. Þetta sumar sem ég var hjá henni var hún oft á Bifröst að vinna og átti ég að gera ákveðin verk heima á meðan. Þar á meðal elda hafra- grautinn á morgnana fyrir hús- bóndann. Fannst mér það mikil ábyrgð. Þetta var mjög gaman og mikil upplifun fyrir ungling utan af landi. Eftir að ég fór að búa hafði ég alltaf samband við Laugu öðru hvoru en það jókst eftir að ég flutti sjálf til Reykjavíkur. Lauga hafði gaman af því að taka myndir og oft fékk ég senda mynd eftir að ég kom í heimsókn. Svo fór að hún flutti á Dvalarheim- ilið í Borgarnesi. Þá fór ég í skemmtilegar ferðir upp á Nes. Alltaf var hún hress og kát þegar ég kom og var oft mikið hlegið. Vildi hún iðulega bjóða í mat og kaffi. Rausnarskapurinn minnkaði ekkert þó að á dvalarheimili væri komin. Laugu þótti ofurvænt um fjöl- skyldu sína. Þegar ég kom í heim- sókn sýndi hún mér nýjustu mynd- irnar af ömmubörnunum og langömmubörnunum og var albúm- inu flett fram og til baka. Einu at- riði gleymi ég seint. Rétt áður en þau fóru á dvalarheimilið fórum við út að borða saman. Það var að kvöldi 17. júní. Mér þótti svo ósköp vænt um það. Kvöldið var svo ynd- islegt. Elsku frænka mín, ég þakka þér samfylgdina. Þú varst mér alltaf svo góð. Gauti minn og fjölskylda, ég votta ykkur mína innilegustu samúð. Minningin lifir, elsku Lauga mín. Anna Inga og fjölskylda. Sigurlaug Helgadóttir ✝ Jón Jónsson fædd-ist á Skriðustekk í Breiðdalshreppi í S- Múl. 31.12. 1922. Hann lést á Landspít- alanum 27.10. 2009. Foreldrar hans voru hjónin Jón Guðnason söðlasmiður, f. á Randversstöðum í Breiðdal 6.6. 1890, d. 6.6. 1939, og Maren Jónsdóttir, húsfreyja og verkakona, f. á Vogum í Vopnafirði 7.5. 1901, d. 11.12. 1996. Jón var næstelstur af níu systkinum, hin eru Hilmar Eyjólfur, f. 1920, d. 2006, Gunnar, f. 1924, d. 1978, Sjöfn, f. 1925, Inga Þórunn, f. 1928, d. 2008, Geir Marinó, f. 1930, d. 1990, Vöggur, f. 1932, Gestur, f. 1933, d. 1977, Óli Kristinn, f. 1935. Um tveggja ára aldur flutti Jón með foreldrum sínum til Eskifjarðar, ólst hann þar að mestu upp. Jón kvæntist 27.10. 1951 Björgu Bjarndísi Sigurðardóttur, f. í Reka- vík bak Höfn 17.9. 1933, foreldrar hennar voru Sigurður Hjálmarsson bóndi, f. í Rekavík í Sléttuhr. 1894, d. 1969, og Ingibjörg Bárðlína Ás- geirsdóttir húsfreyja, f. í Bolung- arvík 1898, d. 1935. Þegar Björg Bjarndís missti móður sína var hún sett í fóstur til frænda síns Guð- mundar Jóns Guðmundssonar bónda, f. 1881, d. 1971, og Soffíu Vagnsdóttur húsfreyju, f. 1897, d. 1986, búsett á Heimabæ á Hesteyri við Ísafjarðardjúp, þar ólst hún upp. Árið 1952 fluttu þau hjónin í Kópa- vog og bjuggu þar til ársins 1996, síðustu árin hafa þau búið í Garða- bæ. Jón og Björg Bjarndís áttu 58 ára brúðkaupsafmæli þegar hann lést, þau eignuðust sex börn, þau eru 1) Soffía Margrét, f. 1951, börn hennar, a) Rose Marie, f. 1970, maki Mitchell Plitnik, sonur þeirra Ian Huginn, og b) Holly Andrea, f. 1975. 2) Guðmundur Jón, f. 1952, maki Hjördís Alexandersdóttir, f. 1954, börn þeirra a) Alexander, f. 1974, börn hans Erla Ösp, Hjördís, Þórhildur, Sædís, og b) Björg, f. 1978. 3) Marín, f. 1954, börn hennar a) Bryndís Eva, f. 1973, maki Unnar Valby Gunnarsson, börn þeirra Jakob Valby, Ármann Kári Valby, Benedikt Karl Valby, Jónatan Valby, b) Ásdís Björg, f. 1980, og c) Þórdís Guðrún, f. 1982, sambýlismaður Davíð Freyr Guðmundsson, synir þeirra Ólafur Dagur, Ían Óliver. 4) Gunnar, f. 1956, maki Guðrún Ósk Ólafsdóttir, f. 1954, d. 1994. 5) Steinar Skarp- héðinn, f. 1959, maki Sigrún Giss- urardóttir, f. 1961, börn þeirra Skarphéðinn, f. 1984, Sandra, f. 1989, og Gissur Orri, f. 1993. 6) Rósa Ingibjörg, f. 1963, maki Odd- geir Björnsson, f. 1957, börn þeirra a) Jón Leopold, f. 1980, b) Sigurður Björn, f. 1981, c) Sigrún, f. 1985, sambýlismaður Andrés Smári Magnússon, og d) Oddgeir Hlífar, f. 1994. Jón stundaði sjómennsku frá unga aldri en fluttist til Reykjavíkur um 25 ára aldur og hóf nám í múr- iðn, hann lauk sveinsprófi við Iðn- skólann í Reykjavík 1950, fékk meistararéttindi 1963, stundaði skrifstofutækninám í Tölvuskól- anum 1986 og varð löggiltur vigt- armaður 1987. Jón starfaði sem múrari í 40 ár, síðar hjá Samband- inu þar til hann fór á eftirlaun. Jón verður jarðsunginn frá Garðakirkju á Garðaholti í dag, 5. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 13. Meira: mbl.is/minningar Kveðja frá eiginkonu Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Elsku Jón minn, þakka þér fyrir öll 60 árin. Þín, Björg Bjarndís Sigurðardóttir. Afi, þú varst mér mikil gjöf, þú dróst aldrei úr mér dug, heldur hvattir til dáða, þú sýndir því sem ég tók mér fyrir hendur ávallt áhuga. Manngerð þín hefur alltaf verið mér fyrirmynd og ég er þakklát fyrir að fá að vera afabarn þitt. Ég gæti skrifað endalaust um minningar mínar um þig en ég læt duga að segja að þú varst merkilegur maður og hetja í mínum augum. Takk fyrir mig. Þín, Sigrún. Jón Jónsson AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey. Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst af stærð blaðsins hverju sinni. Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag, verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu. Netgreinarnar eru öllum opnar. Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu, er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.: Birtingardagur Skilatími Mánudagsblað Hádegi föstudag Þriðjudagsblað Hádegi föstudag Miðvikudagsblað Hádegi mánudag Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag Föstudagsblað Hádegi miðvikudag Laugardagsblað Hádegi fimmtudag ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR J. S. FLÓVENZ fyrrv. framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, Kópavogsbraut 88, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz, Ólafur G. Flóvenz, Sigurrós Jónasdóttir, Brynhildur G. Flóvenz, Daníel Friðriksson, Margret G. Flóvenz, Tryggvi Stefánsson, Gunnar Gunnarsson, Bera Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.