Dægradvöl - 14.01.1932, Side 2
2
DÆGRADVÖL
Umhverfis jörðina.
Fyrsti maðui'inn, sem fór í kring
um jörðina var siglingamaðurinn
Magelháens, og sannaði hann þar
með að jörðin væri hnöttótt.
Hann var 1083 daga á leiðinni.
Árið 1889 fór amerísk kona, Nelly
Bly blaðamaður, í kring um jörðina
á 72 dögum og 6 klukkustundum.
Árið 19,13 var það amerískur maður
Mr. Mears, sem sló metið niður í 35
daga og 21 kl.stund. Árið 1924 flugu
nokkrar flugvélar úr her Bandaríkj-
anna í kring um hnöttinn á 14 dög-
um og 15 kl.stundum.
„Graf Zeppelin“ var 14 daga og
4 klst. á leiðinni, en hinir amerísku
fluggarpar, Post og Gatty, færðu
metið niður 18 daga og 16 klst.
Hvenær skyldi Verða hægt að
fara umhverfis jörðina á einum
degi?
Hinir rauðhærðu.
1 Englandi hefir lengi verið ríkj-
andi sú hjátrú, að ekki sé hægt að
reiða sig á rauðhærða menn.
Af gefnu tilefni var þess vegna
upplýst nýlega í ensku dagblaði, að
hjátrúin væri frá þeim tíma, er hin-
ir norrænu víkingar herjuðu þar í
landi, því að meirihlutinn af þeim
munu hafa verið rauðhærðir.
Einkennileg atvinna.
Nú á þessum kreppu- og atvinnu-
leysistímum, er um að gera að finna
sjer eitthvað til að hafa atvinnu af.
Stúlka nokkur í London fann upp
á því, núna nýlega, að auglýsa að
hún væri sérfræðingur í matartil-
búningi og að hún gengi í hús og
bragðaði á mat fynr húsmæður, sem
ætluðu að' halda matarveislur og
gæfi þeim góð ráð ef að eitthvað
væri að matnum. Nú hefir hún svo
mikið að gera, að hún sér ekki út
úr því og lætur borga sér ærna pen-
inga fyrir að borða hjá öðrum.
önnur stúlka í London gerðist ný-
lega hundahárskeri. Setti hún á stofn
hárskerastofu fyrir hunda.
Strax sama daginn kom til henn-
ar fjöldinn allur af hefðarfrúm með
kjöltuhunda sína til klippingar. Hún
hefir mikið meir en nóg að gera,
en æðrast út af því, að hún skyldi
ekki láta sér detta þetta snjall-
ræði í hug fyr.
Stúlka ein í New York fann upp
annað snjallræði þegar hún var orð-
in atvinnulaus. Hún gengur heim
til ríkra hefðarkvenna eða pipar-
kvenna og les fyrir þær eða spilar
við þær þegar þeim leiðist og hefir
af því góðar tekjur.