Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 6

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 6
6 DÆGRADVÖL IÐ00I □ ffl Við gluggann •— Maður nokkur kom um daginn inn í sportvöruhús, til að sækja þangað mynd, sem átti að framkalla. Myndin var af fjölskyldu hans. Þeg- ar hann.fór að skoða myndina, varð hann óánægður með hana og neit- aði að borga. Búðarmaðurinn varð hissa við, og sagði eins og í hugs- unarleysi: „Hvernig getið þér líka ætlast til, að maður geti búið til engla úr öpum“. — Ræðismanni nokkrum var orð- ið.illt í maganum og fyrir hjartanu; fór hann því til læknisins. Læknir- inn skoðaði hann vel og vandlega og spurði hann spjörunum úr. Jú, ræðis- maðurinn hafði tekið þátt í veizlum næstum annan hvern dag í tvö ár. Ja-á, sagði læknirinn, ef þév haldið þannig áfram í nokkur ár, þá lendið þér í kirkjugarðinum eftir fáa mán- uði. — — Það eru fáir dagar til jóla. Pró- fessorinn stendur á stöðvarpallin- um, og horfir í þönkum á brautar- lestina. Frú Wizlum er að bíða eftir lestinni, sér prófessorinn og gengur til hans. „Já“, segir hún, „hugsið yð- ur, prófessor, eg á von á dóttur minni í dag“. Prófessorinn lítur undrandi á hana og segir: „En hvernig í ósköp- unum getið þér vitað, frú Wizlum, að það verði stúlka?“ — Jón Pálsson liggur í sjúkrahús- inu, næstum kominn að dauða. Hann hafði lent í ógurlegum slagsmálum við Þórð Þórðarson, sem hafði sleg- ið hann í hausinn og brotið hauskúp- una. — Áður en hann andast, segir hann við elzta son sinn: — Auðæfi get eg ekki látið þér eftir, sonur minn, en stóru tóbakspontuna mína •* skalt þú eiga, og eg ætla að biðja þig að slá hann Þórð Þórðarson, duglega með henni, og skila til hans frá mér ium leið, að eg hafi fyrirgefið hon- um áður en eg dó. — Eiginkonan: Fyrir tveim árum sagðir þú að eg væri þér allur heim- urinn. Nú ert þú úti öll kvöld og lætur mig vera eina heima. Maðurinn: Maður getur nú lært mikið í landafræði á tveim árum, góða mín. Frú Jónsson: Hver er mesti upp- fyndingamaður aldarinnar? - Frú Magnússon: Áreiðanlega mað- urinn minn. Þú ættir að heyra þær sögur, sem hann finnur upp, þegar hann kemur heim á næturnar. *

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.