Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 20

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL „Westman", sagði Skotinn, er hann rauf þögnina, „það eru góð laun boðin þeim, sem auðnast að hjálpa okkur úr þessum vandræðum. Yiljið þér ...?“ Jeffrey tók rólega fram í fyrir honum: „Eg tek ekki við borgun fyr- ir að komast að, hverjir hafa myrt hvíta menn hér í Kongó. Eg var bú- inn að segja, að Collins var vinur minn“. Macre stóð á fætur og rétti hon- um hönd sína. „Eg ætla að fara með yður“, sagði hann ákveðinn. Westman ætlaði að mótmæla, en er hann leit í augu hans, hætti hann við það og kinkaði kolli. „Kilimi og hinir sex Wambuba avertingar verða tilbúnir eftir rúm- an klukkutíma. Verðið þér þá til- búinn, Macrae?“ „Eg skal verða tilbúinn“, mælti Mac um leið og hann fylgdi West- man til dyra. III. KAPÍTULI. Eftir að hafa borist í gegn um frumskóginn í heila viku, voru þeir loks komnir í Ituridalinn. Þeir voru nú saman í hóp, Macrae og West- mann, Kilimi þjónn hans og sex Wambuba svertingjar, sem allir voru vanir bardagamenn. Westman var sá eini, sem ekki virtist vera þreytt- ur, hann var vanur skóginum. Mac- rae var heldur engin læpa, en á •••••••••••••••••••••••••••••• Ef þér viljið láta skófatnað yðar endast vel, þá látið mig annast við- gerðina. Athugið, að það er ekki sama, hvernig gert er við skóna. Gúmmíviðgerðir mínar eru al- þekktar fyrir gæði og góða endingu. Lágt verð. Vönduð vinna. Fljót afgreiðsla, — AHt sótt og sent heim. Skósmíðaverkstæðið Klapparstíg 44 ÞORLÁKUR GUÐMUNDSSON. Sími 1444. Sími 1444. kvöldin, eftir látlausa göngu í þess- um ógurlega hita, hafði honum fund- ist eins og allir vöðvar sínir æptu eftir hvíld. Hann verkjaði i allan líkamann á morgnana þegar lagt var af stað, en hann hafði náð markinu. Stundum hafði Westman litið á hann eins og til að sjá hvort hann væri ekki að örmagnast af þreytu, en þá hafði hann harkrð af sér og reynt að láta á engu bera. Hitinn hafði verið afskaplegur, jafnvel þar sem skógurinn var dimmastur. Als- konar eiturflugur höfðu stungið þá svo um allan líkamann, að þeir voru þaktir blöðrum og bólum. Næturnar

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.