Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 5

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 5
DÆGRADVÖL 5 „Hefir þú penna, Tom?“ spurði Blair eftir stundarkorn. „Það er búið blekið úr mínum“. „Því miður“, svaraði læknirinn. „Eg get notað þennan“, sagði Blair, um Ieið og hann tók sjálfblek- unginn, sem líkið hélt á. Honum brá, er hann byrjaði að skrifa. Hann áttaði sig samt fljótt, tók upp skammbyssu sína og miðaði á Rutter. „Þér hafið frá meiru að segja, Rutter. Ekki hefir hinn látni skrif- að svarta stafi, með rauðu bleki“, mælti hann um leið og hann sýndi Rutter penna hins látna og hristi úr honum rautt blek. Rutter' varð sem þrumu lostinn. „Eg verð að meðganga“, mælti hann lok* með titrandi rödd. „Eg var seiidur með bréfið, með þessum 20 þúsund pundum, en kom því ekki til skila. Eg gaf honum eitur í rúss- neska teið. Eg stal ...“. Áð svo mæltu leið yfir Rutter. „Litlu munaði“, mælti læknirinn. „Við verðum að ná í vatn eða brenni- vín“. Þeir flýttu sér fram í eldhús til að ná í vatn. Varla voru þeir komnir fram, er þeir heyrðu þrusk inni. Báðir hlupu inn aftur. — Rutter var horfinn. — Þeim var litið til gluggans. Hann var opinn. Teljið höfuðhárin. „Jafnvel öll yðar höfuðhár eru talin“, stendur einhversstaðar skrif- að. Þess vegna hefir margur spurt hve mörg þau væru, og fáir hafa getað svarað. En eftir sögn þeirra, sem bezt vita, eru þau talin 80 þúsundir að tölu, eða mjög nálægt því. Það hefir líka verið rannsakað, hve mikill vöxtur hársins sé á ein- um degi, og hafa menn koniist að þeirri niðurstöðu, að hárið vaxi um 0,2—0,3 millimetra á dag, hvort sem það er oft klippt eða sjaldan. Sömuleiðis er sagt, að við missum frá 40 til 100 hár á dag, og að ald- ur háranna sé frá tveim árum og upp í fjögur. Sterkir sokkar. Verslunarhús eitt í Oslo auglýsti nýlega sína sterku sokka með því að láta bifreið, sem var 600 kíló á þyngd, hanga á fjórum silkisokkum í glugga sínum. Allir sokkar verzl- unarinnar seldust upp sama daginn. Þetta er að kunna að auglýsa! Kennarinn: Getur þú nefnt vökva, sem getur ekki frosið? J6i: Já, heitt vatn getur ekki fros-

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.