Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 21

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21 voru draugalegar, kolamyrkur og þögn, nema hvað við og við heyrð- ist skrjáfa í vafningsviðnum sem slóst til í næturgolunni. Stöku sinn- um heyrðu þeir fótatak fólksins ein- hverstaðar inni í skóginum. — Þeir voru nú komnir inn á svæði óvinanna, og eftir þeirra ófullkomna landabréfi, áttu þeir ekki eftir nema eina dagleið að gullnámum einkaleyf- isfélagsins. Þeir héldu áfram og gengu eftir fílaslóð, sem lá upp dal- inn. Kilimi gekk fyrstur, hann hafði fílabyssu húsbónda síns í hendinni og var tilbúinn að bregða henni upp ef á þyrfti að halda. Næstur gekk Westman og Macrae á eftir honum, en Wambuba-svert- ingjarnir ráku lestina. Allt í einu nam Kilimi staðar, gaf hinum merki og hlustaði. Hann hafði heyrt skrjáfa í grasinu, ekki langt frá þeim. Eins og örskot reif hann rauðu húfuna af sér og stakk henni undir beltið. Westman gat ekki stillt sig um að brosa, þetta var ekki í fyrsta skiftið, sem Kilimi hafði tek- ið af sér húfuna, þegar hann hafði haldið að hætta væri á ferðum. Síðan hljóp hann á tánum að tré einu, og benti Westman að koma til sín. Vestman gaf hinum merki um, að hafa hljótt og læddist til hans. Kilimi afhenti honum byssu hans og tók upp kúlurnar svo að allt væri tilbúið ef á þyrfti að halda. Þeir heyrðu þruskið aftur, og hreyfing kom á greinarnar á trjánum rétt hjá þeim. „Ghui!“ sagði Kilimi lágt. Westman hristi höfuðið. „Nei, pardusdýrið veiðir ekki í dagsbirtu", hvíslaði hann á Swahili-mállýskunni, „það hlýtur að vera eitthvað annað". Allt í einu benti svertinginn inn í dimmuna. Westman reyndi að sjá það, sem hann var að benda á, en gat ekki komið auga á það. Þeir skriðu því varlega áfram, og sáu þá einhverja þúst inni í myrkrinu. „Mannshöfuð!“ hvíslaði sverting- inn, um leið og hann greip í hand- legg Westmans. Þeir biðu nokkra stund og hlustuðu, það var um að gera að fara varlega. Þegar þeir höfðu beðið góða stund, og ekki heyrt neitt, skriðu þeir áfram, en vöruðust að láta heyra hið minnsta til sín. Jú, svertinginn hafði séð rétt; þarna lá mannshöfuð á grasinu. Andlitið var afskræmt og óþekkjanlegt. Hör- undsliturinn var svartur; það var það eina, sem hægt var að sjá á því. Þeir litu í kring um sig, og leituðu að sjálfum líkamanum, en fundu ekkert. Nú komu Macrae og svert- ingjarnir líka; þeir höfðu beðið, eins og þeim var sagt, en Macrae vildi ógjarnan vera mjög langt frá West- man, ef eitthvað kæmi fyrir, enda, vissi hann að það var betra að halda hópinn, ef ráðist yrði á þá. West- man rétti honum byssu sína, og fór að athuga höfuðið. Hann þuklaði á

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.