Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 12

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 12
12 DÆGRADVÖL r □ ffl i =^ii it—]. .. :■eoe■ ' 11 11 11 | Afbrotamaður og skáld. § 24 ár á flótta. | Jean Fleaudoux er maður nefnd- ur. Hann er fæddur í Montmarte í París. Þegar hann var 19 ára gam- all, gerðist hann rithöfundur og skrifaði þá fyrstu bók sína, er hann nefndi „Saga skækjunnar", og varð hún fræg víðsvegar um Evrópu. En hið unga skáld kunni ekki að meta hamingju sína. Hann lenti í slæmum félagsskap, sem varð honum til ó- gæfu og eyðilagði framtíð hans. Dag nokkurn var hann orðinn meðlimur í harðvítugum glæpamannaflokki, sem aðallega stundaði vasaþjófnað og innbrotsþjófnað. Og tæpu hálfu ári seinna var hann tekinn fastur fyrir innbrot og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Meðan hann var í fangelsinu skrif- aði hann tvö leikrit, sem hann seldi, þegar hann var látinn laus, fyrir 100.000 franka. 1 stað þess nú að sjá að sér og byrja að lifa heiðarlegu lífi sem rit- höfundur, lagðist hann í svall og saurlifnað, þangað til þessir 100 þúsund frankar voru horfnir með öllu. Og þegar hann átti ekki eyri eftir, lagði hann út á glæpabrautina aftur. Ekki leið á löngu, áður en hann lenti í höndym lögreglunnar í annað sinn og voru þá sannaðir á hann 35 innbrotsþjófnaðir. Og í þetta skifti var ekki dregið úr refsingunni, því að hann var dæmdur til æfilangrar fangelsisvistar og fluttur til hinnar alræmdu Djöflaeyjar. Þetta var árið 1907. Strax einu ári seinna tókst honum og þrem félögum hans að flýja úr Djöflaeyjunni, og komust þeir loks, eftir mikla erfiðleika og raunir, til Marseille í nóvember 1908. Þar hélt Fleaudoux kyrru fyrir um tíma. Vann hann niður við höfn- ina á daginn, en skrifaði skáldsögu, sem hann hafði byrjað á í Djöfla- eyjunni, á næturnar. Nú hafði hann snúið við blaðinu og ákveðið að lifa heiðarlegu líferni. Vorið 1910 kom bók hans út og var höfundurinn skrifaður Maurice Flilieau. Hún vakti feikna athygli og voru gefin út af henni 400.000 eintök á einum mánuði. Flilileau ferðaðist þá til Ameríku, siðan til Englands, til Japan, Kína og Egipta- lands. Frægð hans jókst með hverjum deginum og tekjur hans eftir því.

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.