Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 8
8
DÆGRADVÖL
□ i 1 ■ =11—^ir= 1 Q Q Q i ■ ■ ni-^-iF= II- - ■■■= ■= m
Farseðillinn. [
] Saga frá Mexiko. |
S Eftir Kelvin Lindemann. \
Á þriðja degl byltingarinnar
brunnu mörg hús í borginni til
kaldra kola, og Robert Sinclair var
kominn á þá skoðun, að hann mætti
til að fara með lestinni, sem þá um
daginn áttí að fara út að landamær-
um Mexiko. Robert Sinclair var orð-
inn sá eini, sem eftir var af stjórn-
arerindrekum Englands í landinu.
Stjórnin hafði beðið sendiherrann og
alla hans aðstoðarmenn að fara burt
úr landi strax og byltingin brauzt
út, því að þeir gætu ekki verið ó-
hultir um líf sitt. Járnbrautin var
t höndum uppreisnarmannanna, en
foringi þeirra, José Alvarez, hafði
gefið útlendingum leyfi til að fara
úr landi. Á hverjum degi fór lestin
út að landamærunum, full af út-
lendingum, sem höfðu yfirgefið heim-
ili sín og eignir, til þess að geta
verið óhræddir um lxf sitt. Þeir gátu
allir, ef þeir ekki voru á „svarta
iistanum" keypt farseðil, sem þá
voru seldir hæstbjóðanda.
Robert Sinclair hafði heyrt um
margar fjölskyldur, sem höfðu veð-
sett eða selt eignir sínar, til þesa að
geta borgað farseðlana. Og þó gátu
menn lofað sig sæla fyrir að fá leyfi
til að kaupa farseðlana, því að
fjölda af ríkustu útlendingunum,
þeim sem höfðu tekið gullnámur á
leigu hjá stjórninni, var bannað að
fara úr landi. Alvarez hafði nefni-
lega ákveðið að draga þá fyrir lög
og dóm, þegar kyrð væri komin á í
landinu, og kæra þá fyrir að hafa
kúgað verkamenn sína. —
Sinclair ók til stöðvarinnar í einum
af bílum uppreisnarmannanna, rétt
áður en lestin átti að fara. Honum
var afhentur farseðill gegn ávísun,
sem Alvarez sjálfur hafði undirskrif-
að. •—
Og þar sem enn þá voru nokkrar
mínútur þangað til lestin átti að
fara, beið hann á stöðvarpallinum
og kveikti sér í vindlingi..
Alveg á sama augnablikinu, sem
lestin fór af stað, kom stúlka hlaup-
andi út úr stöðvardyrunum og hent-
ist yfir að lestinni. Einn af stöðvar-
þjónunum reyndi að stöðva hana
áður en hún næði lestinni, en hún
hratt honum til hliðar af ótrúlegu