Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 7

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 7
DÆGRADVÖL 7 Anna: Sigga hefir sagt mér, að þú hafir sagt sér leyndarmálið, sem eg bað þig að segja henni ekki. Magga: Já, hún er óttaleg þvaður- skjóða. Eg bað hana einmitt að segja þér það ekki. Anna: Já, en eg lofaði henni að segja þér ekki að hún hefði sagt mér það, svo að þú mátt ekki segja henni, að eg hafi gert það. Kennarinn: Er Palli litli veikur? Hann kom ekki í skólann í dag? Móðir Palla litla: Er ekki von að börn verði veik af hinni heimskulegu kennslu yðar. Þér báðuð hann að segja yður, hve lengi hann væri' að borða 20 epli, ef hann gæti borðað eitt á V/z mínútu. Hann reyndi, og gafst upp á því sextánda. „Heyrðu, hvað ertu að gera með epli á önglinum?" „Eg er að veiða“. „Já, en til hvers hefir þú eplið?“ „Eg beiti með eplinu“. „Þú átt að beita með ormi“. „Ormurinn er í eplinu, maður“. Fyrsta söngvjelin. Eins og menn muna, var það Edison sem fann upp söngvélina. Hann var þá ungur maður og vann við ritsíma. Dag nokkurn var hann að gera tilraunir með ritsímann. Var hann í góðu skapi og raulandi gamla vísu fyrir munni sér. Allt í einu kippti hann að sér hendinni og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Oddhvass nagli, sem var á áhaldinu hafði stungist í hendina á honum og blæddi úr. Hann fó’r nú að athuga hverju þetta sætti og komst að raun um, að það voru hljóðbylgjur úr áhald- inu, sem höfou rekið naglann í hendina á honum. „Hér er komið nokkuð nýtt til sögunnar“, sagði hann við sjálfan sig. „þar sem oddurinn getur stungið mig til blóðs, hlýtur hann að geta stungið holur í eitthvað sem er harðara“. Hann gerði nú tilraunir með pappa og lét naglann strjúkast eft- ir pappanum um leið og hann hljóð- aði mismunandi hátt inn í tækið. Síðan dró hann naglann eða odd- inn eftir hrufunum sem komu í papp- ann og hlustaði. Og sér til undrunar og gleði heyrði hann aftur hljóðin sem hann hafði gefið frá sér, aðeins miklu daufari. Á stuttum tíma tókst honum svo að smíða söngvél og hafði plötur úr vaxblöndu. Plötunni var snúið með því að snúa sveif og á henni var: „Góðan daginn! Hvernig líst þér á söngvél- ina?“ og „María átti lítið lamb“, sungið af Edisn sjálfum.

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.