Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 17

Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 17
DÆGRADVÖL 17 inn og landamærin". Jordon benti á svartan skóginn, eins og til þess að staðfesta orð sín. „Félagar þínir í einkaleyfisfélag- inu með gullframleiðslu sína við Iturifljótið", hélt hann áfram með fyrirlitningu, „þeir hafa ekki ann- að að gera en liggja og flatmaga og láta auðinn streyma í pyngjur sín- ar. Hvern fjandann vita þeir um, hvað gerist upp með ánni, eða hve margir láta lífið af allskonar pest- um, þegar þeir eru að þræla fyrir þá. Þeir vita ekki meira en við. Col- lins er síðasti unglingurinn, síðasta fórnardýrið; hinir hafa horfið með öllu. Þú veizt ekki ...“. „Nei!“ tók Skotinn gremjulega fram í; „en eg skal komast að því! Ekki sendi eg Collins. Hann vildi fára; en nú ætla eg að fara sjálfur". Ed Jordon þagði um stund, áður en hann svaraði, en þegar hann tók tíi máls, var auðheyrt á rödd hans, að hann var mjög hrærður. „Mac, þú ert bardagamaður, ef nokkur er til, sem má kalla því nafni, en svo lengi hefi eg verið í Kongo, að eg veit, að óvinir þínir munu ekki berjast drengilegri bar- áttu; þeir eru brögðóttir og svik- ulir. Þú getur ekki farið einn“. Þeir höfðu numið staðar meðan á samtalinu stóð; nú héldu þeir áfram. Þegar þeir komu að skrifstofubygg- ingunni, sáu þeir, hvar risavaxinn svertingi sat á hækjum sér fyrir neð- an þrepin. Hann hafði rauða húfu á höfði, samskonar og Múhameðstrú- armenn nota, og mittisskýlu, að öðru leyti var hann nakinn. Þegar Jordon kom auga á hann, hélt hann áfram: „Mac, það er að eins einn maður í Kongó, sem hægt er að gera sér vonir um, að komist upp með þessu hættulega fljóti, geti rannsakað, hvað veldur þessum ósköpum og komist hingað aftur til að segja frá því. En það kynlega er, að eg held, að hann vilji ekki fara“. „Hvern áttu við?“ spurði Mac, og nam staðar við þrepin á húsinu. Svertinginn hafði risið á fætur, er þeir komu, og stóð nú lotningarfullur hjá þeim. „Hvern áttu við?“ spurði Mae aftur. „Húsbónda þessa svertingja", svaraði Jordon. „Fílaveiðarann, sem gerði þér boð í gærkvöldi, og vildi tala við þig um sölu á fílabeini — Jeffrey Westman“. „Og hvers vegna vill hann ekki fara? Það hlýtur að vera hægt að fá hann til þess fyrir fimmtíu inxL- kúta", sagði Macrae. Jordon sneri sér að svertingjanum. „Kilimi, hvar er húsbóndi þinn?“ spurði hann svert- ingjann á Swahili-mállýzku. „Bwama fór í hús hvíta töfra- mannsins", svaraði Kilimi rólega og benti á byggingu trúboðanna, „hann sagðist koma fljótt aftur", „Segðu honum að koma inn, þeg- ar hann kemur, Kilimi". „Ndio, b'ioana. Hann er kominn!“

x

Dægradvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.