Dægradvöl - 14.01.1932, Síða 4
4
DÆGRADVÖL
meðalaglasið og rússneskt te. Hann
drakk alltaf rússneskt te á eftir
meðalinu, til að fá meðalabragðið
úr munninum á sér. Eg kom aftur
eftir tæpan klukkutíma. JÞegar eg
kom inn, sá eg hann liggja í þess-
um stellingum fram á borðið, og
hélt eg þá fyrst, að hann hefði sofn-
að, en þegar eg komst að raun um,
að hann var látinn, hringdi eg strax
á lögreglustöðina".
„Þér hafið þá ekkert hi'eyft?“
„Nei“.
„Hafið þér lesið þetta?“ spurði
Blair og sýndi Rutter blað með fá-
einum setningum, sem skrifaðar
voru með svörtu bleki.
„Nei, hvað er það?“ spurðí Rutter.
Blair las upphátt: „Eg er orðinn
þreyttur á þessu. Hjartverkurinn fer
allt af versnandi. Eg hefi gert upp.
Nú bind eg enda á allt. Eg hefi tek-
ið ...“.
„Hvað hefir hann átt við með
þessu: „Eg hefi gert upp“ Rutter?“
spurði Blair.
Rutter virtist detta eitthvað í
hug, gekk að skáp úti í horni,
opnaði hann og kom aftur með stórt
umslag og var það merkt „Halli-
day“.
„Eftir því, sem eg bezt veit, herrar
mínir, mun húsbóndi minn á yngri
árum hafa lent á einhverjum villi-
götum. Seinna mun hann hafa séð
sig um hönd og gerst veðlánari. Á
þeim árum mun ekkert hafa truflað
samvizku hans, en síðan hann fór
að þjást af þessum hjartasjúkdómi
og hugsa til dauðans, hefir hann
gert allt sem hann hefir getað, til
að bæta það upp, sem hann gerði
illt áður. í þesum skáp getið þér
fundið afrit af mörgum bréfum til
þeirra, sem hann á yngri árum hef-
ir haft fé út úr, og hefir hann sent
meira og minna af peningum með
hverju þeirra, með innilegri bæn um
fyrirgefningu. 1 þessu umslagi er
afrit af síðasta bréfinu, og með því
sendi hann 20.000 sterlingspund“.
Blair opnaði umslagið og tók úr
því úrklippu úr dagblaði, var það
auglýsing, svohljóðandi: „Ef frú
Edna Halliday, eða dóttir hennar, er
á lífi ennþá, er hún vinsamlega beð-
in að skrifa mér, hvar hún sé niður
komin. W. A. D. P.O. Box 3260“.
Blair gáði betur í umslagið og
fann svar við auglýsingunni og var
það frá dóttur frú Halliday.
„Þetta bréf er frá dóttur herra
Dawson", mælti Rutter, „hann vildi
ekki láta hana vita, að hann væri
faðir hennar, en hann sendi henni
20.000 sterlingspund í fyrradag.
Það voru síðustu peningarnir sem
hann sendi. Það er þetta, sem hann
á við, þegar hann skrifar: „Eg
hefi gert upp“.
„Þá höfum við víst ekki meira að
gera hér“, mælti Blair, um leið og
hann hélt áfram að skrifa niður frá-
sögu Rutters.