Dægradvöl - 14.01.1932, Page 9
DÆGRADVÖL
Sögusafnið.
bezta, ódýrasta og útbreiddasta sögurit Iandsins. Kemur út einu
sinni í viku, 32 blaðsíður í senn, og kostar að eins 35 aura hvert
hefti. — Nýja sagan, sem nú er að byrja að koma í Sögusafn-
inu, heitir Tvífarinn, afbragðs góð og skemmtileg skáldsaga,
eftir Charles Garvice. — Gerist áskrifendur að Sögusafninu á
afgreiðslu þessa blaðs, Laugaveg 68. Þar fást þær sögur, sem
komið hafa í Sögusafninu frá byrjun, mjög ódýrar.
afli og hljóp áfram. Og ef Sinclair
hefði ekki staðið á stigbrettinu og
hjálpað henni upp í lestina, þegar
hún kom að henni, hefði hún orðið
eftir, því að lestin var komin á ferð.
Hún ætlaði að fara að þakka Sin-
clair fyrir hjálpina, en þegar hún
leit framan í hann, brosti hún og
roðnaði.
„Nei, eruð það þér, Robert", sagði
hún undrandi; „eg þekkti yður ekki.
En hvað það er gaman að hitta yður
aftur“.
„Þakka yður fyrir, ungfrú Tomp-
son“, sagði Robert, „mér þykir vænt
um að sjá yður, þó að eg hefði held-
ur óskað að hitta yður undir skemti-
legri kringumstæðum".
„Eg hefi hugsað mikið um yður“,
sagði hún lágt.
„Þakka yður fyrir, það gleður
mig“, mælti Sinclair og roðnaði.
Allt það, sem Robert hafði reynt
að gleyma, sá hann nú fyrir hug-
skotsjónum sínum.
Ungfrú Tompson hafði verið í
borginni síðastliðinn vetur, og þauj
höfðu verið mikið saman. Bráðlega
hafði honum orðið ljóst, að hann
elskaði hana; og á dansleik einum,
sem haldinn var, daginn áður en hún
átti að fara heim til hallar föður
hennar, hafði hann beðið hennar.
Hún hafði orðið hrygg og sagt hon-
um með tárin í augunum, að hún
væri bundin með loforði, sem hún