Dægradvöl - 14.01.1932, Page 15
DÆGRADVÖL
15
m -=1I , \nnnF= ■-ii—=ii "=^[ ——=1C
Þorp dauðans. I
íll
S Eftir Jacland Marmur.
I. KAPÍTULI.
Skuggarnir af hinum háa tré-
krossi, sem Afríku-trúboðarnir
höfðu reist í Murumwa í Kongo,
féllu á kofana, sem voru fléttaðir
úr tágum. Mjór slóði lá í gegn um
þorpið, það var aðal gatan. Fyrir
enda götunnar stóð stjórnarbygging
Kongo einkaleyfismélagsins.
Scotty Macrae og Ed Jordon sátu
á svölunum og nutu þeir hins ó--
vanalega svala í ríkum mæli. Það
var sjaldgæft að fá að anda að sér
hressandi lofti á daginn. Scotty
rar miðaldra maður, hraustlegur,
þrekinn og kinnbeinabreiður. Hann
var skozkur að ætt. Ed Jordon var
yngri en Scotty, langur og horaður,
en beinn og hvasseygður. Hann var
amerískur. — Hvorugur talaði orð
frá munni.
Allt í kring um þorpið lá Ituri-
skógurinn. Hann var þéttur, dimmur
og dulai'fullur. Trén voru margvafin
af skriðplöntum.
Dauðaþögn var yfir þorpinu og-
skóginum.
— Jordon hrökk við, hann heyi'ði
þrusk inni í skóginum rétt hjá.
Hljóðið nálgaðist. Þeir biðu í eftir-
væntingu. Loks sáu þeir svertingja
koma út úr skugganum, hann rið-
aði undir þungri byrði sinni og var
auðsjáanlega aðfram kominn. Hann
stefndi í áttina til þeirra. Þeir
stukku á fætur og niður af svölun-
um.
„Það var Tamwa!“ mælti Macrae
ákafur, „og hann er með Collins á
bakinu“. Þeir hlupu til svertingj-
ans, og var hann að hníga niður, er
þeir komu að honum. Macrae tók
Collins á bakið og bar hann inn á
skrifstofu, en Jordon studdi svert-
ingjann á eftir. Scotty lagði Collins
á legubekk, náði í whisky og vætti
varir hans. Hann var ataður blóði og
óhreinindum frá hvirfli til ilja. And-
litið var bólgið og óþekkjanlegt, og
föt hans voru rifin í tætlur.
Jordon kom nú inn með svertingj-
ann, lagði hann á stól, og gaf hon-
um vatn að drekka.
Collins opnaði augun og leit í
kring um sig. Hann var auðsjáan-
lega ruglaður, og vissi ekki, hvar
hann var.
Voðaleg hræðsla skein úr augum