Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 13

Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 13
VILJ I 161 holurnar, en kæra sig lítið um dagsljósið, og hafa sig því ekki eins mikið í frammi. Margir eru þeir, sem líta upp til þessara afburða- manna í lotningu, og álíta, að guð almáttugur hafi valið þá til að göfga mannkynið og leiða það að lindum þekk- ingar og fróðleiks. Þessir menn eiga því að vera yfir- mannlegir, ef svo mætti segja. Yfir galla þeirra er hylmt að þeim látnum, og þá verður gæska þeirra og einræni þyngst á metunum. Menn vorkenna þessum veslingum, sem fórnað hafa heill sinni fyrir aðra; þess- um mönnum, sem hlotið hafa vanþakklæti og ádeilur samtíðar sinnar, í stað fjár og frama, en ef menn vildu láta svo lítið, að svipast um í nágrenni sínu og meta og virða rjettilega þá menn, sem með þeim lifa, myndu þeir komast að raun um að nú á dögum finnast einnig margir, sem kallaðir eru, ef ekki útvaldir. Ef þeir at- huguðu svo eðli þessara manna og bæru þá saman við hina, sem rómaðir eru og dánir, kynnu þeir að sjá að hjá þeim finnast sameiginlegir ágallar, sem verða þess- um manntegundum örlagaríkari, en öðrum, sem hvers- dagsmenn ei’u. Til eru nákvæmar æfisögur ýmsra af- burðamanna, ýmist ritaðar af þeim sjálfum, eða öðrum, áem þá hafa þekt; hvorttveggja sögurnar geta aldrei verið rjettar, skal það lauslega sýnt. Eigingirnin á djúpar rætur í hjörtum manna, máske miklu dýpri en þá sjálfa grunar, því geta menn aldrei sýnt rjett hið sanna eðli sitt, því samúðin, sem menn hafa með sjálfum sjer, íklæðir þá purpuraskikkju í- myndananna í stað snjáðra baðmullarklæða veru- leikans. Æfisögur, sem aðrir rita geta heldur ekki verið rjettar. Menn hafa ýmist samúð eða andúð gegn ná- unganum. Samúðin betrar hann, andúðin færir alt til verri vegar, en þó eru hinar síðastnefndu sagnir betri að því leyti, að þar er máske nokkurnveginn rjett lýst ytri hlið manna, og orsakir gæfu þeirra eða ógæfu verða frekar skýrðar, en innri maðurinn verður óráðin L

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.