Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 21

Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 21
VIL J I 169 Blómasafn. (Rabindranatli Tagore). Skáldið Tulsidas var á gangi í þungum hugsunum hjá Ganges, á hinum hljóða stað, þar, sem líkin eru brend. Hann hitti þá konu eina, sem sat við fætur dáins eiginmanns og var klædd eins og brúður. Hún reis á fætur er hún sá hann og sagði: „Blessa þú mig, herra, og leyf mjer að fylgja eiginmanni mín- um til himna.“ „Hvað liggur þjer á?“ spurði Tulsidas. „Er þessi jörð ekki einnig hans, sem himininn gerði?“ „Jeg þrái himininn“, svaraði konan. „Jeg þrái eiginmanninn minn.“ Tulsidas brosti og sagði við hana: „Farðu heim til þín, barnið mitt. Áður en mánuður er liðinn muntu finna eiginmann þinn.“ Konan fór vonglöð heim. Tulsidas kom til hennar á degi hverjum og Ijet hana brjóta heilann um háleit viðfangsefni, þar til hjarta hennar var barmafult af guðlegri ást. Varla var mánuðurinn liðinn, er nábúar hennar komu og spurðu: „Kona, hefir þú hitt eiginmann þinn?“ Ekkjan brosti og sagði: „Það hefi jeg gert.“ „Hvar er hann?“ spurðu þeir ákafir. „I hjarta mínu býr herra minn einn hjá mjer“, svaraði konan. í morgun opnaðist gluggi hjarta míns skyndilega; glugginn, sem snýr út að þínu hjarta. Jeg undraðist er jeg sá, að nafnið, sem þú þekkir mig undir, er ritað í Apríl-blóm og -blöð, og jeg sat

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.