Vilji - 01.12.1928, Síða 25
V IL J I
173
Bókafregn.
Kjartan Gíslason: Næturlog’ar.
Kjartan Gíslason er þegar þektur manna á meöal
fyrir kvæði sín, en það er dálítið einkennilegt, að það
er eins og hann hafi hlífst við að birta þau bestu, og
því hafa sumir fengið ranga hugmynd um hann sem
skáld, en ef menn gá að því, að flest, sem hann hefir
látið frá sjer fara eru tækifærisljóð, sem hann hefir
birt fyrir áskorun annara, skilst þeim það, að þau muni
ekki gefa rjetta hugmynd um skáldið. Því er nú svo
farið með skáldin, að þau eru ekki eins og grammó-
fónar, sem ganga fyrir rafmagni, þau þurfa að verða
fyrir geðhrifum (Stemningum), sem framleiða fagr-
ar hugsanir, en hitt að setjast niður og yrkja eftir-
mæli og minni, hvenær sem er, er ógerningur og verð-
ur framleiðslan því altaf ljettmeti nema, að skáldið
sje vel fyrir kallað.
Ef menn eiga að dæma kvæði rjett verða menn
að setja sig í spor höfundarins og leitast við að skilja
á rjettan hátt líkingar hans og tilfinningar, ennfrem-
ur getur verið gott að þekkja aðstæður þær, sem
skáldið á við að búa, þótt ritdómarar ættu ekki að
gera það, því að listinni er þannig farið, að hún verð-
ur ekki dæmd eftir því hvort maðurinn er fátækur
eða ríkur, mentaður eða ómentaður, atvinnumaður eða
,,amateur“ heldur verður hún einungis metin eftir
innihaldi, — en maðurinn stendur langt fyrir utan.
Jeg vil þó leyfa mjer að kynna höfund bókar
þessarar fyrir lesendum vorum áður enn jeg kem að
sjálfum kvæðunum.
Kjartan er sonur sjera Gísla Kjartanssonar, sem
bjó á Mosfelli eystra. Átti Kjartan að ganga menta-
veginn, en af því varð þó ekki, því sama vor og
hann átti að fara til Reykjavíkur og ganga undir gagn-