Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 26

Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 26
.174 y ilji fræðapróf, druknaði faðir hans, og þá varð hann að standa fyrir búinu um nokkurt skeið, en láta prófið farast fyrir. Frá þeim degi mun Kjartan hafa verið að miklu leyti forsjá yngri systkina sinna og móður og lagt dyggilega fram starfskrafta sína í þeirra þágu. Kjartan er útskrifaður af verslunarskólanum, og hefir unnið á skrifstofum hjer í bæ um alllangt skeið. Hefir hann því haft nauman tíma til ljóðagerðar, enda munu þau flest vera til orðin um nætur eins og nafnið gefur í skin. Fyrst er jeg sá ljóð eftir Kjartan fanst mjer lít- ið til þeirra koma; að vísu voru víða skáldleg tilþrif í hugsunum hans, en rímið var ekki sem best, en hjer sannast orð Laurentsíusar biskups: „... Versificatura nihil est nisi maxima cura“. Nú er rím hans orðið alt annað. Með mikilli elju og iðkun hefir Kjartani tekist að verða góður rímari, eru flest kvæði hans gallalaus skoðuð frá því sjónarmiði, þó kemur fyrir að hann lætur tvö orð með aðaláherslu, sem byrja á sama upphafsstaf, vera í jöfnu vísuorðunum, en slíkt er ekki leyfilegt samkvæmt íslenskri rímfræði, (sbr.: Aldrei skyggja aldaský | á hann Franz frá Assisi). Ennfremur er áhersla ekki rjett hjá honum sumstað- ar og orðaröð dálítið rugluð, en það er ekki beinlínis hægt að kalla galla, þótt skemtilegra sje að ljóðin væru eins og töluð af munni fram. Að endingu skal þess getið að á einstaka stað hefir höfundi orðið á, að setja of hversdagslegar athuganir og setningar í fög- ur kvæði, og þar með held jeg, að allir gallar sjeu taldir. En um hitt er meira vert að Kjartan hefir veitt okkur mörg skemtileg, gallalaus og fögur ltvæði, enda er hann tilfinningaríkur hugsjónamaður, sem virðist hata alla hleypidóma og hversdagshjal, en leggur meiri áherslu á hreint hjartalag og umburðarlyndi við þá, sem smásyndir kunna að drýgja; hann er mál-

x

Vilji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.