Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 27

Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 27
VILJI 175 svari lítilmagnans, en lætur andlausar aurasálir kenna beiskju sinnar. I þessari bók hans er mikill fjöldi kvæða; eru þau misjafnlega löng og hygg jeg að Kjartani láti best smá- geðhrif og flokkar. Einkanlega vildi jeg benda á kvæðið: ,,Hann er giftur!“ sem sýnishorn hins síðara. Lætur hann þar vitskerta konu rekja raunir sínar, en um leið er kvæðið skörp ádeila. Hjer er ekki dúm til að fara frekar út í þá sálma, en vel væri kvæðið þess vert að alt væri efni þess rakið frá byrjun til enda, þó vil jeg geta þess hjer, að kvæði þetta virðist valið til flutnings (deklamation), enda má hið sama segja um flest kvæðin. Af smærri kvæðunum mætti nefna: ,,Ástu gömlu“, sem gerir samanburð á sínum æskudögum og nútímanum og þykist hafa verið eins fengsæl og þær yngri, þótt hún hafi aðeins haft rauða slaufu í hárinu, en ekki drengjakoll, að endingu segir hún: Eina spá jeg ætla að stíla: aðeins lítil mittisskýla síðan verður svannalín. Er þetta ekki nauðalíkt ýmsum gömlu. konunum?, en hvort mun ei bölsýni þeirra helst til mikið; það mun framtíðin sýna. Þá er kvæðið „Ekki má“ mjög snoturt; endar það svo. Já — það er ekki íslenskt happ að eiga skáldaþrá, en verða að hlýða harðri rödd, sem hrópar: Ekki má. „í kirkjugarði” er og fagurt kvæði. Talar skáldið þar um „hve misjafnt mönnum mælir, sá er gefur“, en þrátt fyrir ýlustráin ein, sem hylja leiði fátæk- linganna sjer skáldið: Húsgangsbeðinn hækka huldar skógargreinar.

x

Vilji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.