Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 29

Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 29
Y ILJ I 177 Jón Björnsson: Ungar ástir. Höfundur bókar þessarar er kornungur maður, sem litla lífsreynslu hefir fengið, en er ritfær vel og bersýni- lega efni í sagnaskáld. Hann er úr sveit og tekur því yrkisefni sín þaðan. Gefur hann rjettar og oft ágætar lýsingar af sveitalífinu og náttúrunni, en frá sálfræðilegu sjónarmiði skoðað er vafasamt hvort honum tekst að túlka svo tilfinningar söguhetja sinna sem skyldi. Höf. er bersýnilega hugsjónamaður, sem alist hefir upp í and- rúmslofti, sem )>rungið er af hagsýnni efnishyggju ís- lenskra bænda, og það sjer hann sjálfur vel. Hann dáist að því er unnustinn heldur trygð við unnustu sína er tæring hremmir hana. Þetta kann að vera fágætt, en þó myndi líklega hver maður, sem lítur ekki eingöngu á það hersu konan muni verða nýt búinu og afkasta miklu, haga sjer eitthvað svipað. Höfundur skemmir seinni sög- una með kvæði einu, er hann lætur fólk syngja á sveitar- samkomu, sem haldin er. Mikið hefir smekk manna hrak- að ef þeir hafa ekki betri kvæði um hönd við slík tæki- færi, og varla trúi jeg því, að í sveitunum finnist ekki betri ljóðskáld, en ])að er höf. leiðir fram; sagan hefði orðið mun skemtilegri ef kvæði þessu hefði verið slept. Annars eru sögur þessar mjög snotrar er menn taka tillit til æsku höf. og jeg efast ekki um, að hann muni gera betur er aldur og þroski vex, — og að síðustu — höfundur verður að halda áfram að rita og setja sjer að ná aitaf feti framar við hverja sögu. Fuílkominni frá- sagnarlist verður ekki náð á augnabliki, heldur á árum. K. G. Með þessu hefti lætur Kristján Guðlaugsson af rit- stjórninni, en þó skulu brjef og greinir, sem ritinu kunna að berast, sendar til hans þar til öðruvísi verður ákveðið.

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.