Vilji - 01.12.1928, Side 31
VI L J I
179
11111 og búa til úr þeim guðsríki, þótt lítil sjeu. Þetta kostar
stundum talsverðar breytingar frá daglegri venju, einnig í
veraldlegum efnum. Þvi er það, að dagurinn fyrir jól heitir
aðfangadagur. Og því eru kaupmennirnir, sem sjá oss fyrir
föngunum, æðstu verur jarðarinnar um jólin. Ekki einungis
frá veraldlegu sjónarmiði, heldur og frá andlegu. Þeirra jól
eru miklu stærri og lengri en okkar jól. Þeir byrja að
hugsa til Quðs og jólanna einhvern tíma á sumrin og panta
skraut og gersemar og góðan mat. Þeir breyta sölubúðum
sínum í dýrlegar æfintýrahallir, guði til dýrðar, löngu áð-
ur en surnir byrja að hugsa til Krists og jólanna. Gefa þeir
þannig þjónum sínum dýrmæt og sjaldgæf tækifæri til að
efla og prýða guðs ríki hjer í bænum, — því að á öðrum
tímum munu flestar vörur vera seldar og keyptar með ver-
aldlegum skilningi, sem von er til. Jeg hefi oft óskað þess*
að mega taka til hendi fyrir Drottin hjer á jörðu og öf-
undað verslunarmenn af þessum sjerstöku tækifærum til
að sýna honum vinsemd og kurteisi, enda verður þess ekki
vart, að þeir telji á sig þessar fáu vökunætur. Fyrir þær
munu þeir fá að sofa svefni rjettlátra í miklu fleiri nætur
annars heims. Sumir vondir menn halda því fram, að þess-
ar vörusýningar sjeu tálbeita kaupmanna til þess að geta
selt vörur í gróðaskyni. Þetta er hin mesta lygi. Því skyldu
þeir þá hafa hvað mest um dýrðir á sjálfri hátíðinni, þeg-
ar allir eru orðnir »knekkaðir« og »rúineraðir« af kaupun-
um fyrir jólin? Ekki verður þeim heldur líkt við þessa
karla, sem Kristur rak út úr musterinu, þegar þeir voru að
»kaupslaga« þar í gróðaskyni. Hann sagði, að þeir gerðu
hús föður síns að ræningjabæli. (Mjer lá við að snúa setn-
ingunni við i þessu sambandi, en sá í tima, að það var
vitleysa og hætti við). Ekki gengur þeim heldur metnaðar-
girni til nje löngun til að varpa meiri ljóma en aðrir starfs-
bræður þeirra. Það sjest best á látleysi því og sannleiks-
ást, sem skin út úr auglýsingunum, sem þeir láta í blöðin.
Fallegheitin og ljósadýrðin er auðvitað fyrst og fremst fórn