Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 34

Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 34
182 V IL J I og rikið biður ómetanlegt tjón i hvert sinn, er slíkt ber við. Einkanlega hefir borið mikið á þessu eftir striðið, enda er það bein afleiðing af óstöðugleika og ringulreið þeirri, sem ríkt hefir frá því, er hörmungum þessum lauk. Við íslendingar höfum einungis haft af verkföllum að segja, sem risið hafa út af kaupdeilum; máske ekki af því, að kaupið hafi verið of lágt, heldur af hinu, að angurgap- ar hafa blásið í glóðirnar, án þess að athuga, tve örlaga- ríkar afleiðingar slíkt getur haft í för með sjer fyrir þjóð- ina. Ávinningur þessara verkfalla virðist og harla lítill, þar eð verkamenn tapa meiru þann timann, sem þeir ganga iðjulausir, en launahækkun þeirra nemur alt árið, enda er fjöldi verkamanna mótfallinn slíku; einkanlega munu þeir margir nú, sem kunna ekki að meta þann greiða, sem þeim er gerður, ef þeir missa atvinnu sína nú um nýár, án vilja síns, þar eð þeir hafa mjög sæmileg laun eins og sakir standa og eru ánægðir með þau. Hvað á ríkið að gera til að vernda hag sinn og þegna sinna? Einhverra varúðar-ráðstafana verður að gripa til. Við skulum athuga eina leið, sem farin hefir verið og reynst hefir vel. Hún er sú, að setja gerðardóm í málin, sem hefir fult úrskurðarvald i þeim, og aðilar skulu skyldir til að hlýða honum að fullu. Gerðardóm þennan skipa fimm menn: Tveir verkamanna-fulltrúar, tveir fulltrúar vinnuveitenda og einn oddamaður, sem utan við málin stendur og skipaður er af stjórninni. Dómstólar í slíkum málum skulu vera í hjeraði hverju og bæjum, sem þeirra er þörf. Ennfremur skal til frekara öryggis setja dómstól á stofn fyrir land alt, sem verður nokkurskonar yfirrjettur eða hæstirjettur, sem aðllar skjóta málum sínum til, ef þeir álíta þess þörf. Úr- skurður þessa dómstóls skal gilda sem lög í eitt ár í senn, og ef hvorki vinnuveitendur nje þiggjendur mótmæla hon- um við lok ársins, skal úrskurðurinn gilda sem lög þar til mótmæli koma og nýr úrskurður hefir verið kveðinn upp.

x

Vilji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.