SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 8

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 8
8 25. október 2009 Framleiðsla og notkun áls Álframleiðsla eftir heimshlutum Álnotkun eftir iðnaði Samgöngur 26% Umbúðir 22% Byggingaframkvæmdir 22% Annað 14% Raftæki og -vörur 8% Vélahlutir 8% Asía 43% Evrópa 24% Ameríka 22% Eyjaálfa 6% Afríka 5% Asía Ameríka Eyjaálfa Afríka Evrópa Samgöngur Umbúðir Raftæki og -vörur Byggingaframkvæmdir Annað Véla- hlutir S taðgreiðsluverð á áli hefur hækkað mikið frá því í upphafi árs, þegar það náði lægstu lægðum í kjölfar þess að efnahags- lægðin dýpkaði á alþjóðamörkuðum. Verðið er nú rúmlega 1.900 dollarar en var þegar það fór lægst, í febrúar á þessu ári, 1.260 dollarar. Verðið hefur því hækkað um 65% á fyrrnefndu tímabili. Hækkanirnar hafa farið fram samhliða upp- gangstímum á hlutabréfamörkuðum. Þannig hefur hlutabréfavísitala Morgan Stanley hækkað um meira en 50% frá því í mars. En blikur eru þó á lofti. Í nýjasta hefti The Eco- nomist er því haldið fram að mikið ójafnvægi ein- kenni raunhagkerfið. Ekki sé orðið ljóst enn hvort hækkanir á hrávöru, þar á meðal áli, séu inni- stæðulausar eða ekki. Birgðir af áli eru enn í hæstu hæðum. Samkvæmt upplýsingum frá London Metal Exchange er talið að birgðir í heiminum séu nú um 4,6 milljónir tonna. Sem nemur fimm- til sexfaldri árlegri framleiðslu hér á landi. Hagsmunir skattgreiðenda Íslenskir skattgreiðendur eiga umtalsvert undir því að álverð haldist hátt þar sem söluverð á raf- orku til álvera, frá opinberum íslenskum orkufyr- irtækjum, sveiflast með álverðinu. Orkufyrirtækin eru í þeirra eigu og á endanum er ábyrgðin á við- skiptunum þeirra. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan, segir undanfarið ár hafa verið erfitt í áliðnaðinum. Þannig hafi álverið í Straumsvík verið rekið með tapi framan af ári en staðan batn- að eftir því sem á leið. „Við höfum framleitt upp í pantanir, sem er meira en mörg álver úti í heimi hafa verið gera. Auk þess framleiðum við margar vörutegundir og því er góður sveigjanleiki í fram- leiðslunni,“ segir Ólafur. Mun verðið lækka að nýju? Í ljósi þess að verðið hefur hækkað mikið án þess að gengið hafi á hið mikla offramboð sem nú er á mörkuðum hafa vaknað spurningar um hvort verðið kunni að lækka hratt að nýju. Stærstu ál- framleiðendur heims, þ.á m. Alcoa og Rio Tinto, hafa bæði gripið til viðmikilla hagræðingaraðgerða og skorið niður allt að 15% framleiðslu sinnar á heimsvísu. Þar ræður mestu að stórir kaupendur áls hafa átt í vandræðum vegna mikils samdráttar. Framleiðsla á bílum, flugvélum og öðrum farar- tækjum og vélarhlutum hefur minnkað gríðarlega hratt frá því heimskreppan dýpkaði mikið á haustmánuðum í fyrra. Framleiðendur sam- göngutækja og vélarhluta eru kaupendur 34% af öllu áli sem framleitt er í heiminum. Það munar því um minna. Hagræðing í bílaiðnaðinum er ekki sögð öll fram komin, að því er fram kom nýlega í grein í New York Times. Þar segir að samdrátt- arskeiði í bílaiðnaði sé enn ekki lokið. Álverin hér á landi hafa öll haldið sjó og ekki slakað á framleiðslu sinni þrátt fyrir erfitt árferði undanfarin misseri. Þar ræður miklu að raforku- samningar þeirra eru bundnir til áratuga. Auk þess hefur veiking krónunnar minnkað launakostnað við framleiðslu þar sem álverðið er í dollurum en launakostnaður í krónum. Framleiðslan hér á landi er því að öllum líkindum trygg þrátt fyrir að álverum víða um heim hafi verið lokað á und- anförnu ári. Alcan í Straumsvík Hér sést unnið í kerskála í Straumsvík. Morgunblaðið/Þorkell Álverð hækkar en birgðir safnast upp Álverð hefur hækkað samhliða hækkunum á hlutabréfamörkuð- um. Er hækkunin innistæðulaus? Í nýjasta hefti The Eco- nomist er því haldið fram að mikið ójafnvægi ein- kenni raunhagkerfið. Vikuspegill Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Sérstaða Íslands þegar kemur að raforkuframleiðslu er ekki síst sú að meira en 70% af allri raforku í landinu er selt á þrjá staði; í álver- ið í Straumsvík, á Reyðarfirði og á Grundartanga. Hlutfallið er líklegt til þess að hækka í allt að 90% ef frekari álversáform, þ.á m. í Helgu- vík, ganga eftir. Mörg þeirra landa sem berjast við orkuskort eiga fullt í fangi með að framleiða raforku sem notuð er fyrir heimili. Hér á landi er framleiðslan úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsorku að mestu, og þannig fæst nægt rafmagn fyrir heimili. Hins vegar fer meirihluti rafmagns- ins til álvera eins og áður segir. Arðsemin af þessum viðskiptum sem orkufyrirtækin, þar helst Landsvirkjun og Orkuveita Reykja- víkur (OR), standa fyrir sveiflast með gengi dollars og álverði. Ál- verðið er meiri áhrifavaldur þar sem skuldir orkufyrirtækjanna eru að mestu í erlendri mynt. Í tilfelli Landsvirkjunar skiptir gengi krón- unnar litlu sem engu máli þar sem uppgjörsmynt fyrirtækisins er doll- ari. Í tilfelli OR er skuldavandi fyr- irtækisins alvarlegri þar sem að- eins um 25% tekna fyrirtækisins eru í erlendri mynt en næstum all- ar skuldir fyrirtækisins erlendar. Sem þýðir að gengisfall íslensku krónunnar hefur haft mjög alvarleg áhrif á efnahag fyrirtækisins. Eig- infjárhlutfallið hefur lækkað úr nærri 50% í 15%. Arðsemin af raforkusölunni hef- ur aldrei fengist nákvæmlega upp- gefin þar sem leynd hvílir yfir sölu- verði á raforkunni. Hún er samningsbundin og byggist á sam- keppnissjónarmiðum. Ljóst er þó að salan á raforkunni skilar mik- ilvægum tekjum í þjóðarbúið, þótt stærstur hluti teknanna fari nú í að greiða niður skuldir vegna virkj- anaframkvæmda. Álver langstærsti kaupandi raforku í landinu Úr álverinu Viðskipti álveranna við íslensk orkufyrirtæki skipta miklu máli fyrir íslenskan efnahag.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.