SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Side 18

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Side 18
18 25. október 2009 E milíana Torrini er af tónlistarættum, afi hennar var píanóleik- arinn Aage R. Lorange, einn af brautryðjendum í íslenskri tón- listarsögu og stofnandi fyrstu íslensku djasssveitarinnar, Jazz- bands Reykjavíkur, 1923. Emilíana byrjaði líka snemma að syngja, sagði svo frá í viðtali við Morgunblaðið fyrir mörgum árum að sjö ára gömul hefði hún farið með vinkonu sinni á elliheimili að syngja fyrir gamla fólkið. Hún söng síðar með Skólakór Kársness, en hætti svo að syngja op- inberlega þar til kunningjar hennar í Kópavoginum báðu hana um að syngja með sér í Músíktilraunum vorið 1993. Hljómsveitin hét Tjalz Gizur og gekk ekki ýkja vel í tilraununum; Emilíana varð sveitinni ekki sú hjálp sem sveitarmenn höfðu vænst og í kjölfarið var hún rekin úr sveitinni, eða réttara sagt menn hættu að boða hana á æfingar. Árið hennar Emilíönu Ekki var sögu söngkonunnar lokið því árið 1994 var ár Emilíönu Torrini. Hún byrjaði árið með því að sigra í Söngvakeppni framhaldsskólanna í mars með íslenskri útgáfu á I Will Survive. Í kjölfarið var henni boðið í aðra hljómsveit, Spoon, og söng hana á toppinn á vinsældalistum hér heima um haustið og söng líka í Hárinu þetta haust við góðan orðstír. Emilíana var áberandi í íslensku músíklífi næstu árin, en gekk þó erf- iðlega að finna fjölina sína. Hún sendi frá sér tvær breiðskífur sem urðu gríðarlega vinsælar, Crouçie D’où Là, sem kom út 1995, og Merman, sem kom út ári síðar. Hún var aðeins sextán ára þegar hún sló í gegn, varð að stjörnu á Íslandi, og í viðtali fyrir áratug sagði hún að hún hefði ekki átt- Með ein- lægnina að vopni Á undanförnum mánuðum hefur Emilíana Torrini ferðast um Evrópu með hljómsveit sína og lagt álfuna að fótum sér. Tónlist Árni Matthíasson arnim@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.