SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Síða 23
25.október 2009 23
www.besta.is
Besta
Ármúla 23
Reykjavík
Sími 510 0000
Besta
Brekkustíg 39
Njarðvík
Sími 420 0000
Besta
Grundargötu 61
Grundarfirði
Sími 430 0000
Besta
Miðvangi 13
Egilsstöðum
Sími 470 0000
Besta
Egilsbraut 6
Neskaupstað
Sími 477 1900
A.Karlsson
Víkurhvarfi 8
Kópavogi
Sími 5 600 900
Allt það BESTA til
jólahreingerninga
SparCling
WC-hreinsir.
Fyrir harða sýruþolna fleti.
20%
afslátt
ur af h
reinsie
fnum
Tilboð
gildir ú
t nóvem
ber 20
09
eða me
ðan bi
rgðir e
ndast
il
il i i i
SparCreme
Burt með uppsafnaðann kísil
Frábært efni til að fjarlægja
uppsöfnuð óhreinindi, kísil og
sápuskánir. Notist á postulín,
keramik, ryðfrítt stál o.fl.
Blue Star
Öflugt hreinsiefni á gólf,
veggi og skápa.
Vinnur á hverskyns óhreinindum.
Þornar hratt og skilur ekki eftir
sig sápuskán.
Glerhreinsir Ultra
Hreinir gluggar.
Til notkunar á alla gler-
og plastfleti.
NABC
Baðherbergishreinsir.
Hreinsar, sótthreinsar
og eyðir ólykt.
sem púað er á, eins og gerðist í 1. maí-hátíðahöld-
unum þegar púað var á forseta Alþýðusambands-
ins þegar hann flutti ræðu sína?
Ég fæ næringu frá öllum þeim sem hringja í mig í
hverri einustu viku til að ræða verkalýðsmál, at-
vinnumál og byggðamál. Mér finnst skelfilegt að
horfa upp á að vera ýtt til hliðar, ekki vegna þess
að ég sé ekki að vinna vinnuna mína, heldur vegna
öfundar ákveðinna manna sem líkar ekki við
áherslur mínar. Manna sem sjá ofsjónum yfir þeirri
velgengni sem ég nýt, ekki síst meðal verkafólks.“
Hvar stendurðu í flokkspólitík?
„Ég er vinstrisinnaður maður sem lendir í vand-
ræðum á kjörstað. Það er ekki beint spennandi til-
hugsun að þurfa að velja á milli íslenskra stjórn-
málaflokka. Stjórnmálamenn okkar eru upp til
hópa óábyrgir. Við verðum þó að treysta á ákveðna
stjórnmálamenn. Mikið hefur mætt á Steingrími J.
Sigfússyni sem hefur allar byrðar á bakinu og
starfar eins og forsætisráðherra. Hann er öflugur
verkstjóri ríkisstjórnarinnar sem er aðdáunarvert
miðað við að hann ber ábyrgð á erfiðum mála-
flokkum og er auk þess með eigin flokk klofinn.
Svo er Jóhanna Sigurðardóttir sem hefur alltaf
verið sjálfri sér samkvæm og nýtur þess vegna
virðingar. Innan ríkisstjórnarinnar vil ég trúa því
að menn séu að reyna að vinna vinnuna sína en þar
er sundurlyndi. Það er svo ekki til að bæta úr skák
að stjórnarandstaða landsins er gjörsamlega óá-
byrg. Þeir flokkar sem nú eru í stjórnarandstöðu
bera að stórum hluta ábyrgð á því hvernig nú er
komið. Það eru þeir sem einkavæddu bankana og
bjuggu til stórgallað regluverk í kringum þá. Nú
ættu þessir flokkar að stíga fram og bjóða fram lið-
styrk sinn við uppbygginguna. Það gera þeir ekki
heldur ala á óróa.“
Óheiðarleg framkoma
Þú býrð á Húsavík, hvernig eru kjör fólks á
landsbyggðinni í kreppunni?
„Á góðærisárunum gekk fyrirtækjum og fólki á
landsbyggðinni víða illa að fá lán. Fyrir vikið
skuldar fólk á landsbyggðinni ekki eins mikið og
fólk á höfuðborgarsvæðinu þar sem aðgengi að
lánum var miklu betra og meira. Margir á lands-
byggðinni reiddust því á sínum tíma að fá ekki fyr-
irgreiðslu en í dag fagna menn því að hafa ekki
steypt sér í skuldir. Staðan er hins vegar sú að á
landsbyggðinni vantar áhættufjármagn til að koma
nýrri starfsemi í gang og mörg fyrirtæki hafa verið
að flosna upp undanfarin ár vegna þess að flutn-
ingskostnaður er hár. Það er erfitt að framleiða
vörur á landsbyggðinni og þess vegna hafa menn í
auknum mæli farið með starfsemina suður.
Það þarf að rétta við stöðu sjávarbyggðanna.
Ríkisstjórnin er með til skoðunar að breyta fisk-
veiðilöggjöfinni. Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra skipaði starfshóp sem er að störfum og á
að skila frá sér tillögum á næstu vikum. Með
ákveðnum breytingum á kvótakerfinu væri hægt
að bjarga mörgum sjávarplássum. Til dæmis ef
kvótinn væri unninn sem næst miðunum. Þekk-
ingin og tæknin er til staðar en það vantar kvóta.
Svo er stóriðjan. Það er ekki þannig að menn séu
að hrópa á álver í hvert krummaskuð. Fyrir norð-
an gerðist það að heimamenn, orkufyrirtæki, rík-
isstjórnin og Alcoa undirrituðu viljayfirlýsingu um
að vinna að því að reisa álver á Bakka enda reynd-
ist það hagkvæmt. Það er búið að setja mikla pen-
inga í undirbúning. En þá segir ríkisstjórnin allt í
einu stopp. Nú sitja menn uppi með skuldbind-
ingar og búið er að kasta fjármunum á glæ. Þetta er
óheiðarleg framkoma. Svona gera menn ekki. Fyr-
ir norðan finnst mönnum að stjórnvöld hafi haft
þá að fíflum.“
Finnurðu fyrir því í starfi þínu að fólki líði illa?
„Ég vinn við aðstoða fólk sem er í miklum
hremmingum og líður verulega illa. Við hjá skrif-
stofu stéttarfélaganna á Húsavík kappkostum að
veita góða þjónustu við okkar félagsmenn. Opið er
á skrifstofunni níu tíma á dag sem er það lengsta
sem þekkist hjá stéttarfélögum á Íslandi. Sama dag
og ég hitti þig fyrir þetta viðtal hringdi í mig nið-
urbrotinn maður. Honum fannst ekki komið vel
fram við sig á vinnustaðnum sem er ekki stór. Ég
hafði samband við yfirmenn hans sem telja að
hann sé að bresta vegna erfiðrar fjárhagsafkomu.
Fólk er margt svo illa farið. Það getur ekki beðið
lengur, það virðist engu máli skipta hvort það
borgar af lánum sínum, þau hækka bara. Ég vona
svo innilega að stjórnvöld geri nú allt til að ein-
beita sér að vanda heimilanna í landinu nú þegar
Icesave virðist vera á lokastigi. Heimilin þola ekki
frekara aðgerðarleysi.
Fólk kemur mikið til mín. Því finnst stundum of
formlegt að fara til félagsfræðinga, sálfræðings eða
prests en veit að það getur labbað inn af götunni til
mín. Síminn minn er opinn allan sólarhringinn og
ef einhver þarf á mér að halda þá hringir hann. Ég
skelli aldrei á nokkurn mann og hringi í alla sem
hringja í mig. Ég tala við fólk og miðla af reynslu
minni eftir fremsta megni.“
Aðalsteinn Árni Baldursson „Það sem
vantar í verkalýðshreyfinguna í dag er að
verkalýðsleiðtogar tali tungu fólksins.“
Morgunblaðið/Heiddi