SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Síða 42
Ferðalög
42 25. október 2009
Þungskýjað í grennd við Nýjadal en sólin lætur ekki buga sig. Ekta íslensk stemmning, dimmt landslag sem ekki er að þykjast vera eitthvað annað en það er.
Þær láta ekki allar mikið yfir sér, íslensku sveitakirkjurnar.
„Ísland er
öðruvísi“
Hedi Kairouannais er franskur arki-
tekt og ljósmyndari heillaður af Íslandi
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is
H
edi Kairouannais er
franskur arkitekt,
hann er fertugur og
býr og kennir við
arkitektaháskóla í Lyon. En hann
er líka þjálfaður áhugaljósmynd-
ari og hefur tekið ástfóstri við Ís-
land en hann kom hingað fyrst
árið 1993. Frá 2003 hefur hann
verið hér á hverju sumri og
stundum dvalið í nokkra mán-
uði. Og Hedi þekkir landið betur
en margir innfæddir þar sem
hann hefur farið í ótalmargar
gönguferðir um hálendið og ekki
síst Vestfirði.
Fékk áhuga á fólkinu
„Fyrst var ég aðallega áhuga-
samur um landslagið en fékk
seinna áhuga á fólkinu og menn-
ingunni,“ segir Kairouannais.
„Ég var bæði að læra að taka
myndir og átta mig á Íslend-
ingum!
Sjálfur er ég frá svæði sem er
nálægt Ölpunum og fór þar oft í
gönguferðir og kleif fjöll. Ég er
því vanur gönguferðum í erfiðu
landslagi en Ísland er á margan
hátt öðruvísi, ekki síst vegna
veðursins, allra umhleyping-
anna. Menn verða að læra á þetta
og það tekur tíma að átta sig á því
hvernig maður bjargar sér hér í
gönguferðum.
Ég hef gengið mikið á svæðinu
í grennd við Þórisjökul nálægt
Kaldadal. Þetta var svolítið snú-
ið, engar merkingar og ég var
einn. Eini félagsskapurinn var
landslagið. Og auðvitað erfitt af
því að ég bar allt sem ég þurfti á
bakinu, tjald og þess háttar.
Í sumar gekk ég um svæði hjá
Langjökli við Hvítárvatn. Það var
fín ferð, jökullinn var alls staðar
svo nálægur og heillandi. En ég
hef líka farið með jeppamönnum
í Naustavík sem er ekki langt frá
Akureyri, þeir voru á Landro-
verjeppum. Það var líka mjög
gaman, þetta var skemmtilegur
félagsskapur.
En ég reyni alltaf að verja að
minnsta kosti einni eða tveim
vikum á Vestfjörðum þegar ég
kem hingað, það er svo sérstök
stemmning þar og landslagið
engu líkt. Ísland skiptist í mínum
huga í þrennt. Fyrst er það
Reykjavík. Svo landsbyggðin en
Vestfirðir eru svo þriðja landið,
eins og annars konar Ísland.
Þoka á Hornströndum
Ferðalögin hafa valdið því að
landið hefur opnast fyrir mér.
Öðru hverju lendir maður í svo-
lítið ískyggilegum aðstæðum.
Klukkan var þrjú að
morgni á Snæfells-
jökli, ég tók mér
smáhvíld við tindinn.
Polarolje
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Minn læknir mælir með
Polarolíunni, en þinn ?
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð
Nú líka
í hylkjum
Nýtt!