SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Blaðsíða 44
44 25. október 2009 Matur Þ egar Guðbjörg Gissurardóttir fann enga matreiðslubók sem hentaði henni í bókabúðum stórborgarinnar New York ákvað hún að skrifa hana sjálf. Hún segir einfaldleika og skapandi hugsun bráð- nauðsynlega í eldhúsinu og hagsýnin er aldrei langt undan við eldamennskuna. „Þegar ég flutti að heiman um tvítugt kunni ég ekkert að elda,“ segir Guðbjörg. „Nokkrum árum síðar var ég þó farin að bjarga mér en var ansi einhæf í elda- mennskunni. Á þessum tíma bjó ég í New York og langaði að þróa matseldina. Ég gat ekki notað þær matreiðslubækur sem ég átti því oft fengust ekki hráefnin, ég þekkti þau ekki eða þau voru of mörg.“ Eftir langa en árangurslausa leit að réttu matreiðslubókinni í bókabúðum New York ákvað Guðbjörg að taka málin í sínar hendur og gefa út sína eigin mat- reiðslubók, Hristist fyrir notkun, sem kom út 2002. „Og ég lærði heilmikið af því að gera bókina.“ Útgangspunktur hennar er að upp- skriftin sé einföld, fólk þekki hráefnin (eigi þau helst inni í skáp) og að inni- haldsefnin séu ekki fleiri en sex til átta. „Ég bjó til hugmynd sem gengur út á að „bæta, breyta eða sleppa“ hráefnum. Þannig er hver uppskrift sveigjanleg en mér finnst mikilvægt að vera skapandi í matseldinni. Bókin mín snýst svolítið um að ýta fólki út fyrir þann ramma sem uppskriftin er.“ Guðbjörg leggur ekki síður áherslu á að vera hagkvæm í matseldinni. „Það hlakkar í mér þegar ég stend frammi fyrir afgöngum því mér finnst svo spennandi áskorun að sjá hvað ég geti gert úr þeim. Maðurinn minn fær ekki að henda hálfri kartöflu sem verður afgangs við kvöld- matarborðið því ég nýti allt. En þar sem hann er lítið hrifinn af afgöngum þýðir ekkert annað en að búa til eitthvað nýtt þar sem afgangarnir eru í felum.“ Þessa dagana vinnur Guðbjörg að næstu matreiðslubók, þar sem viðfangs- efnið verður matur fyrir yngstu kynslóð- ina, en hún er væntanleg á næsta ári. Á meðan má enn nálgast eldri bókina í verslununum Kokku og Eymundsson. Súpuna sem hér er gefin uppskrift að þróaði Guðbjörg eftir að hafa smakkað samskonar súpu í matarboði í New York. Seinna uppgötvaði hún að súpan hafði verið keypt tilbúin í dýrri sælkeraversl- un. Þessi súpa er þó síður en svo dýr; Guðbjörg hefur reiknað út að sé hún eld- uð skv. grunnuppskriftinni kosti hráefn- ið í hana um 150 krónur á mann. Engu að síður er hún slíkt lostæti að hver sem er getur verið stoltur af því að bera hana á borð í matarboði. ben@mbl.is Morgunblaðið/Heiddi Sælkerasúpa fyrir 150 krónur á mann Tryggvi Jónsson, eins og hálfs árs „hjálpar“ mömmu sinni Guðbjörgu iðulega í eldhúsinu. Skolið leirtauið ávallt með ylvolgu vatni áð- ur en það er sett í uppþvottavélina, en alls ekki með heitu vatni. Setjið aldrei grunnan disk fyrir framan djúpan disk og ekki flokka hnífapörin í hnífaparagrindina. Ekki skal setja áláhöld í uppþvottavélina og ekki heldur hnífa með tré- eða plastskafti, þessa hluti skal þvo í höndunum. Athugið að mikilvægast af öllu er að geyma efnið sem fer í uppþvottavélina á öruggum stað og aldrei má setja það í aðr- ar umbúðir. Þetta er hættulegasta efnið sem finnst á heimilinu. Margrét Dórothea Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans. Húsráð Margrétar Fáir kokkteilar eru vinsælli, alltént á suðrænum slóðum, en þjóðardrykkur Púertó Ríkó, Piña Colada. Sagan segir að fyrsti maðurinn til að þróa drykk af sambærilegum toga hafi verið sjóræninginn Roberto Cofresí frá Púertó Ríkó. Til að efla liðsandann um borð mun hann hafa blandað fyrir menn sína drykk sem innihélt kókoshnetusafa, ananas og romm. Þegar Cofresí féll frá árið 1825 fór uppskriftin hins vegar í gröfina með honum. Það var ekki fyrr en árið 1954 að Piña Colada varð til í núverandi mynd. Hús- bændur á Beachcomber-barnum á Hil- ton-hótelinu í San Juan í Púertó Ríkó höfðu lengi suðað í hinum annálaða hanastélsfrömuði Ramon „Monchito“ Marrero að kynna til sögunnar nýjan ein- kennisdrykk sem fengi fastagesti, sem margir hverjir heyrðu til þotuliði þess tíma, til að standa á öndinni. Marrero hristi og hrærði þrotlaust í þrjá mánuði áður en hann datt niður á drykk sem hlaut nafnið Piña Colada. Það myndi líklega útleggjast Kreistur ananas á íslensku. Helsti mun- urinn á uppskrift Marreros og gamla sjóræningjans er sá að Marrero notaðist við kókoshneturjóma. Þannig þykir drykkurinn bestur. Drykkur vikunnar Piña Colada Uppskrift 3 sl ljóst romm 3 sl kókoshneturjómi 9 sl ananassafi Kokkteillinn er ýmist hristur eða hrærður með ísmolum, skreyttur t.d. með ananassneið, kirsuberi eða súkkulaðispæni og borinn fram. fyrir ca. fjóra 4 bollar blandað grænmeti ( t.d. paprika, gulrætur, gular baunir eða bara það grænmeti sem er til. Ég nota stundum frosið grænmeti í pokum) vænn bútur af engifer 4 hvítlauksrif 1 stk laukur 1 dós kókosmjólk 1 dós tómatpuré 4 bollar grænmetissoð Eins er mjög gott að setja bolla af mat- reiðslurjóma út í og niðursoðna tómata eða eitthvert sjávarfang. Þegar ég vil gera réttinn aðeins sparilegri splæsi ég í kórí- anderlauf til að strá yfir í lokin. Hitaðu olíu í potti og steiktu smátt skorinn lauk, hvít- lauk og engifer þar til laukurinn er mjúkur. Settu smátt skorið grænmetið út í pottinn og snöggsteiktu við háan hita í 3-4 mín. Helltu soði, kókosmjólk og tómatpuré út í pottinn (einnig er hægt að mauka græn- metið fyrir þá sem vilja „creamy“ súpu). Kryddaðu með salti og pipar og láttu malla í 20 mín. Kókossúpa með engiferkeim Bláberja er kannski best að njóta í laut þar sem þau bíða á lyngi. Henti það ekki er prýðiseftirrétti að fá á Friðriki V á Akureyri. Strákarnir í eldhúsinu fá að leika sér, eins og Friðrik tekur til orða. „Það heldur okkur á tánum.“ Panti sælkeri sér eftirréttinn Ber tvisvar í sömu vikunni getur hann átt von á gjörólíkum rétti í seinna skiptið. Aðra helg- ina í ágúst tíndi Helgi Pétur Gunnlaugsson, einn „strák- anna í eldhúsinu“, bláber í grennd við heimili sitt í Klaufa- brekknakoti í Svarfaðardal og hefur varðveitt þau í frysti síðan. Þeir Jón Pétur Hraunfjörð útbjuggu freistandi eftir- rétt í vikunni í því skyni að gleðja lesendur. skapti@mbl.is Í blárri lautu þar geymi ég gullin Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sælkeramatur frónbúans Bláberja- og skyrfantasía fyrir 6 til 8 manns Bláberjasaft 400 g villt bláber (úr frystinum), 200 g hrásykur; sjóðið saman í 15 mín. og sigtið berin frá saftinni. Bláberjahlaup 2 dl bláberjasaft, fjögur matarlímsblöð. Blöðin lögð í bleyti í ís- kalt vatn og svo leyst upp í volgri saftinni sem síðan er hellt á bakka og kæld. Bláberjafroða 2 dl bláberjasaft, 1 dl eggjahvítur (3 stk). Blandað saman, sett í sprautuflösku og þeytt með tveimur gashylkjum. Geymt í kæli þar til á að nota. Bláberjakrapís 4 dl vatn, 400 g sykur. Soðið saman og kælt. 100 g af berjum úr saftgerðinni, 3 dl hvítvín, safi úr einni sítrónu. Öllu blandað saman og fryst í ísvél og síðan geymt í frysti við 9-11°. Skyr- og kókósfroða 1 dl eggjahvítur, 2 msk flórsykur, 100 g skyr, 1 dl kókos- rjómi. Öllu blandað saman og sett í sprautuflösku, þeytt með tveimur gashylkj- um og geymt í kæli þar til á að nota. Setjið smávegis af afgangsberjunum á diskinn og í fallegt glas. Sprautið froðunum til skiptis í glasið þangað til það er fullt að ¾. Skerið hlaup- ið í mjóar ræmur og leggið á diskinn, gerið fallega kúlu úr krapísnum og berið fram með. Gott að skreyta með súkkulaði og þurrkuðum ávöxtum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.