SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Síða 50

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Síða 50
Lesbók 50 25. október 2009 Á veggnum í vinnustofu Hild- ar Bjarnardóttur eru ljós- myndir af spunavél sem hún fann í gamla landbún- aðarskólanum í Ólafsdal. Hildur lag- færði vélina, spann í henni þráð og prjónaði úr honum föðurland sem hún sýndi í Ólafsdal í ágúst. Þarna eru líka verk sem hún hefur ofið úr hör eins og notaður er til að vefa málarastriga, og ljósmyndir af verkunum á sýningunni Þræddir þræðir sem nú stendur yfir í Listasafni Árnesinga. Hildur er yngst fjögurra listakvenna sem eiga þar verk en sýningin hefur vakið talsverða at- hygli. Það má annars segja um feril Hildar, verk hennar hafa vakið athygli hér heima og erlendis síðan hún lauk framhaldsnámi í New York um miðjan síðasta áratug. Hún var í textíldeild Myndlista- og handíðaskólans og verk- in hennar fjalla um textíl og hennar eigin bakgrunn. Hildur hlaut Sjónlist- arverðlaunin árið 2006. „Í verkunum vísa ég mikið aftur í söguna,“ segir hún. „Mamma var handavinnukennari og ég lærði margt af henni. Ömmur mínar voru mjög flinkar í handavinnu og systur mínar eru það líka. Ég er umkringd handverki og textílhefð sem ennþá er mjög sterk á Íslandi.“ Gömul tækni er Hildi hugleikin. „Nú hugsa ég mikið um að nota íslenska ull og íslenskar jurtir til litunar. Það er eitthvað sem ég reyndi að forðast þegar ég var í námi,“ segir hún og brosir. „Þá vildi ég aðskilja mig frá hefðinni og skapa mér sérstöðu. Í dag er ég að vinna með staðbundnar aðstæður, með íslenskt umhverfi, og það má líta á það í samhengi landslagsmálverks þar sem ég tek íslenskar jurtir og lita hráefnið með þeim.“ - Þú ert í samræðu við myndlist- armiðlana. „Ég er mjög meðvituð um það. Ég fékk bæði handavinnu- og myndlist- aruppeldi. Ég hafði sem barn mikinn áhuga á myndlist, fór á sýningar og teiknaði, en ég hef líka velt mikið fyrir mér þessari forgangsröðun sem hefur verið í myndlistinni, að textíll og hand- verk hafi verið sett skör lægra en mál- verk og skúlptúr.“ - Þú varst í einum af seinustu bekkj- unum í Myndlista- og handíðaskól- anum sem lærði handverk, þú varst í textíldeild. „Sú deild er ekki til lengur. Þar dýpkaði ég þekkingu mína á vefnaði, textílsögu, þæfingu, prjóni og fleiru. Þetta var mjög fín deild með frábæru fólki en sú deild var barn síns tíma. Í MHÍ lærði ég tæknina en hug- myndafræðina í Pratt í New York, en þar er engin textíldeild. Það virkaði vel fyrir mig að taka þetta svona aðskilið, en það er hægt að kenna tækni og hug- myndafræði samhliða.“ Striginn færður í forgrunn Viðfangsefni Hildar í myndlistinni voru frá upphafi samtímaleg, eins og til dæmis þegar hún heklaði dúk með skammbyssum. „Verkin voru strax í samtali við myndlistarsöguna. Ég hef alltaf séð mig sem myndlistarmann sem nota textíl sem miðil,“ segir hún. „Tæknileg þekking þarf ekki að vera heftandi, ef hún er notuð á réttan hátt.“ Hildur segir að hugmyndir um að vefa verk úr þráðum úr málarastriga hafi kviknað þegar hún bjó í Portland í Oregon og virt gallerí í borginni fékk hana til liðs við sig. „Þetta gallerí sýndi mest málverk og teikningar. Ég velti fyrir mér hvernig þetta gæti átt samleið, án þess að fórna mínum hugmyndum um textíl og handverk. Textíll og málaralistin mæt- ast í málarastriganum sem bókstaflega heldur málverkinu uppi. Það vatt síðan uppá sig, striginn getur til að mynda staðið fyrir hið kvenlega en málverkið það karllæga. Ég færi strigann, sem hefur alltaf verið í bakgrunni málverka, í forgrunn. “ Kennsla í textílhandverki Hildur kemur að þróunarvinnu fyrir væntanlegt nýtt textílnám en Myndlist- arskólinn í Reykjavík hefur fengið styrk frá Evrópusambandinu til að þróa það í samvinnu við erlenda listaháskóla, inn- Myndlist og textíl- hefðin mætast „Ég vinn sem myndlistarmaður en myndlist mín sækir mikið í handverkið. Ég gæti ekki unnið þessi verk án þess að hafa þessa tæknilegu þekkingu,“ segir Hild- ur Bjarnadóttir. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is M aður hélt að ánægjulegar fréttir væru hættar að berast af nokkrum hlut nema framförum í eyðingu lík- amsfitu á rasskinnum frægra kvenna þeg- ar allt í einu lýstur niður fyrstu nið- urstöðum úr rannsóknarverkefni Þorbjörns Broddasonar um lestur barna. Bóklestur eykst. Eftir samfellt hnign- unarskeið undanfarinna tuttugu ára hefur taflið snúist við og íslensk börn lesa nú fleiri bækur sér til ánægju en fyrir sex ár- um. Undanfarin ár hafa Íslendingar deilt áhyggjum sínum af minnkandi bóklestri með flestum nágrannaþjóðum sínum og fálmað eftir lausnum. Það væri ósann- gjarnt að segja að engin viðbrögð hafi ver- ið við niðurstöðum úr hinni stór- merkilegu rannsókn Þorbjörns Broddasonar fyrir sex árum þegar fyrir lá að enn einu sinni var lestur barna, ekki síst drengja, á niðurleið, en í raun fór aldrei fram víðtæk umræða um hve hörmulegt þetta var. Það voru niðurstöð- urnar úr hinni viðamiklu rannsókn OECD á þekkingu skólabarna, PISA-könn- uninni, sem hreyfðu meira við fólki því þá varð hnignunin ekki aðeins ljós okkur sjálfum, heldur einnig heiminum. Í kjölfar hennar kom svo alþjóðleg könnun um lestrarkunnáttu níu ára barna, PIRLS- könnunin, árið 2007. Af þeim 45 löndum sem könnunin náði til var Ísland í 32. sæti, sem er langt frá þeim markmiðum sem við setjum okkur jafnan um að vera í fremstu röð og enn lengra frá þeim sjálfs- skilningi okkar að við séum bókmennta- þjóð á toppmælikvarða. Vonarglætan í PISA-myrkrinu var þó sú að íslensk börn lásu sér engu að síður til ánægju og að lestur þeirra réðist ekki af félagsstöðu og afkomu foreldra eins og annars staðar. Ís- lensk börn lásu sér til gamans hvort sem foreldrarnir komust á tekjulista Frjálsrar verslunar eða ekki. Þar var þrátt fyrir allt kominn raunverulegur grunnur að raun- verulegum lestraráhuga. Á þessum árum sem liðin eru frá því að vondu fréttirnar tóku að berast hafa fjöl- margir skólar, skólabókasöfn og einkaað- ilar og stofnanir unnið hver í sínu horni að því að styrkja innviði íslenskrar lestr- armenningar. Þegar best hefur látið hafa heilu sveitafélögin verið hvött til lestrar eins og í Reykjanesbæ. Ómetanlegt grundvallarstarf í að styrkja innviði sjálfs lesskilningsins sem undirstöðu alls náms og þar með námsárangurs hefur verið unnið við Háskólann á Akureyri og ein- stakir skólar bæði á höfuðborgarsvæði og á Norðurlandi fylgt eftir metnaðarfullum verkefnum á sviði lesskilnings með góð- um árangri. Prógrammið Skáld í skólum, þar sem rithöfundar heimsækja skóla og spjalla við nemendur um verk sín, sköp- un, skrif og lestraránægju, hefur svín- virkað og þá er ógetið einnar merkileg- ustu menningarstofnunar okkar, Stóru upplestrarkeppninnar, þar sem heill ár- gangur er hvert ár þjálfaður í framsögn og upplestri á bókmenntatextum. Samt er það þannig að þótt erfitt sé að finna þann mann eða þá konu sem beinlínis eru mót- fallin auknum bóklestri hefur ekki tekist að skapa grundvöll fyrir þjóðfélagsbaráttu á þessu sviði. Baráttan fyrir auknum lestri ætti að vera í sama flokki og áherslumál á sviði lýðheilsu, svo sem barátta fyrir minni reykingum, bættu mataræði eða öflugra umferðaröryggi. Það skrítna er að það er miklu afli veitt árlega í að stuðla að bættum lestri en hver fyrir sig gerir það í sínu horni og án tengsla við heildræna sýn á þessi mál, enda er hún ekki til. Eða minnist þess einhver að hafa heyrt um markmið stjórnvalda um að auka lestur? Við sem viljum hag lestrar og lestrar- menningar sem mestan vitum að það er tiltölulega einfalt að búa til samtengingu og heildarhugsun sem fengi hlutana til að vinna fyrir heildina. Ef þetta yrði gert nú á næstu mánuðum mætti fylgja eftir fyrstu góðu fréttunum af þessum víg- stöðvum um langa hríð og búa þannig í haginn fyrir næstu könnun Þorbjörns Broddasonar eftir sex ár. Veðjum á góðar fréttir árið 2015. Eftir samfellt hnign- unarskeið undanfar- inna tuttugu ára hefur taflið snúist við og ís- lensk börn lesa nú fleiri bækur sér til ánægju en fyrir sex árum. Fjölmiðlar Kristján B. Jónasson kbj@crymogea.is, Veðjað á góðar fréttir Börnin lesa bækur af kappi. „Íslensk börn lásu sér engu að síður til ánægju og lestur þeirra réðist ekki af félagsstöðu og afkomu foreldra eins og annars staðar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.