SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 51
25.október 2009 51
lend fyrirtæki og Tækniskólann.
„Við ætlum að stofna deild þar sem
markmiðið er að koma aftur inn
kennslu í textílhandverki. Við verð-
um í rannsóknarvinnu fram á vor,
við að finna út hver þörfin er. Fólk á
að geta nýtt sér þetta nám, ef það
stefnir á myndlist, fatahönnun eða
textílhönnun. Ef það hyggst læra eða
vinna eitthvað tengt textíl getur það
nýtt sér þetta nám. Þarna á að leggja
áherslu á að kenna tækni og hug-
myndavinnu, textílsögu og efn-
isfræði.
Við skoðum hvenig námið getur
nýst markaðinum og í hvaða störf
eða framhaldsnám nemendur eiga að
geta farið í að þessu námi loknu. Það
er svo mikil speki í textíl, þetta er
svo skapandi vinnuferli. En það þarf
líka að læra að vera opinn og hugsa
út fyrir rammann. Það getur nýst
bæði hönnuðum og myndlist-
armönnum.“
Morgunblaðið/Ásdís
Hildur Bjarnadóttir mynd-
listarkona við vefstólinn í
vinnustofu sinni.
Verk eftir Hildi. Efst: Ólafsdals-
brókin, 2009. Ull, njóli úr Döl-
unum, prjónað. Stærð: „Large“.
Fyrir neðan: Punt, 2004. Borð-
dúkur, útsaumur, bómullargarn.
110 x 45 x 45 cm. Neðst: Ging-
ham Pathalo Turquoise, 2006.
Hör, akrílmálning, handofið. 80 x
80 x 1,5 cm.
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
VÖLVA
Völva er framsækið samrunaverk sem
byggir á Völuspá, endurortri af Þórarni
Eldjárn. Tónlist eftir Skúla Sverrisson.
SINDRI SILFURFISKUR
Nýtt ævintýri eftir Áslaugu Jónsdóttur
fyrir yngstu börnin um heillandi
sjávarverur.
Frumsýning í Kúlunni lau. 31. okt.
eftir Max Frisch
Hringdu í síma 551 1200 eða
smelltu þér á leikhusid.is
Magnað verk um hugleysi og græðgi
- fullt af eldfimum húmor
Nýjar sýningar í Kassanum og Kúlunni
„Eggert Þorleifsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir
... eru gamanleikarar af Guðs náð og hér fara
þau á kostum.“
Ingibjörg Þórisdóttir, Mbl 19. okt.