SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 5

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 5
leikar. Agüero var ekki búinn að vera inni á vellinum nema í þrettán mínútur þegar við- stöðulaus þrumufleygur hans þandi út net- möskva Chelsea-marksins. Við það rumskuðu þeir blástakkar, einkum endurnærður Didier Drogba, sem svaraði með tveimur mörkum. Hafði hann álíka mikið fyrir því framtaki og að reima á sig skóna. Nú skilur maður hvers vegna Atlético hefur fengið á sig 29 mörk í fimmtán leikjum í öllum keppnum á yf- irstandandi leiktíð. Í seinna markinu var engu líkara en Fílabeinsstrendingurinn væri úti að spóka sig með hundinn. Varnarmennina hristi hann af sér eins og flugur. Svona til mála- mynda. Eftir þátt Drogbas héldu Chelsea-menn að björninn væri unninn. Lái þeim hver sem vill. Sergio Agüero var á öðru máli. Þegar dæmd var aukaspyrna á gestina skammt utan vítateigs í uppbótartíma var ekki um annað að ræða en skrúfa tuðruna í bláhornið. Petr Cech greip í tómt. Aumingja Tékkanum hefur örugglega liðið þetta kvöld eins og hann væri staddur á meist- aranámskeiði í skotfimi. Jöfnunarmarkið var svo sem akademískt. Chelsea marserar áfram í næstu umferð keppninnar en Atlético er úr leik. Samt slær langþráð von í brjóstum stuðnings- manna Madrídarliðsins – Kun er kominn á ról. Afleitt gengi hingað til á leiktíðinni Frammistaða Atlético hefur verið langt undir væntingum það sem af er leiktíð, auk þess að vera úr leik í Meistaradeildinni er liðið í fallsæti í spænsku úrvalsdeildinni, með aðeins sjö stig úr níu leikjum. Annað stóð til eftir að Atlético hafði hafnað í fjórða sæti deildarinnar í fyrra. Ógengið dró dilk á eftir sér. Í lok síðasta mánaðar var knattspyrnustjórinn Abel Resino, sem um árabil lék með Atlético, látinn taka pokann sinn eftir aðeins átta mánuði í starfi. Inn á sviðið steig Quique Flores, sem skólaður var til á næsta bæ – hjá Real Madrid. Hann á ærið verk fyrir höndum. Form Agüeros hefur verið í samræmi við form liðsins. Fyrir leikinn í vikunni hafði hann aðeins gert tvö mörk í deildinni og tvö mörk í for- keppni Meistaradeildarinnar. Meira er vænst af manni sem skorað hefur 47 mörk á tveimur síð- ustu árum og lagt upp önnur tuttugu. Skyldi tvennan í vikunni kveikja í Agüero? Ef til vill hefur hann haft gott af því að setjast á bekkinn. Agüero kom fyrir metfé, um 23 milljónir evra, frá Independiente í heimalandi sínu sum- arið 2006. Þar hafði hann slegið met sjálfs Die- gos Maradonas þegar hann hlaut eldskírn sína aðeins fimmtán ára og 35 daga gamall. Eftir frekar rólega byrjun í skjóli skæðasta miðherja heims, Fernandos Torresar, sprakk hann út vet- urinn 2007-08 og hefur haldið sínu striki síðan, fyrir utan örlítið hliðarspor að undanförnu. Agüero hefur verið einn eftirsóttasti miðherji Evrópu á umliðnum misserum og mörg fremstu félög álfunnar sýnt honum áhuga, svo sem Inter Milano og Manchester United. Þá hefur hann verið þráfaldlega orðaður við Chelsea. „Það er almennilegt af mönnum að halda því fram að ég hafi burði til að leika með Chelsea, einu besta liði í heimi,“ sagði Agüero við AS- fréttastofuna eftir leikinn. „Ég er stoltur af áhuga félaga af því tagi en það breytir ekki mér og mínum þankagangi. Í raun og veru langar mig ekki að hugsa um önnur félög. Ég er stað- ráðinn í að berjast til síðasta blóðdropa fyrir Atlético. Mér finnst næstum eins og ég hafi fæðst hérna. Ég hef gengið gegnum súrt og sætt með félaginu og líður ákaflega vel hjá því.“ Svo mörg voru þau orð. Áhugi stórveldanna og virðing fyrir kapp- anum hefur samt örugglega ekki dvínað í vik- unni. Alltént ekki Chelsea. Sex vinir alveg óháð kerfi Bestu vinir þínir eru bestu vinir þínir og Síminn elskar alla jafnt. Í Sex vinir óháð kerfi hjá Símanum velurðu þér sex vini hjá hvaða farsímafyrirtæki sem er og sendir þeim SMS eða hringir í þá fyrir núll krónur.* Skráðu þína sex vini á siminn.is, í næstu verslun Símans eða í síma 800 7000. 800 7000 • siminn.is Það er Sími Internet Sjónvarp * Mánaðarverð 1.990 kr. og upphafsgjald 5,90 kr. Þú hringir og sendir SMS á vini þína fyrir 0 kr., 1.000 mín. / 500 SMS á mánuði. Enda þótt Sergio Agüero sé kunn- ur fyrir eigin fótmenntir er hann ekki síður frægur fyrir að vera tengdasonur einnar mestu goð- sagnar í sparkheimum, Diegos Armandos Maradonas. Hann er kvæntur yngri dóttur goðsins, Gi- anninu, og ól hún honum soninn Benjamín Agüero Maradona 19. febrúar á þessu ári. Einhverjar vonir verða líklega bundnar við hann þegar fram líða stundir. Þeir tengdafeðgar, Agüero og Maradona, hittast ekki bara í fjöl- skylduboðum því sá síðarnefndi er eins og flestir vita landsliðsþjálfari Argentínu um þessar mundir. Argentínumenn reru mik- inn galeiðuróður til að tryggja sér þátttöku- rétt á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku næsta sumar en komust á endanum heilu og höldnu í höfn. Agüero var töluvert undir árum á leiðinni en missti sæti sitt í liðinu á lokasprettinum eftir að hin stríðmannaða framlína liðsins hóf að skjóta púðri. Ekki er þó ólíklegt að hann verði kominn aftur á sinn stað þegar HM hefst í júní. Agüero hefur þegar unnið til metorða með landsliðinu en hann varð ólympíumeistari með Argentínu í Peking í fyrra, gerði þá m.a. tvö mörk í fræknum sigri á erkifjendunum, Brasilíu, í undanúrslitum. Agüero kemur úr barnmargri fjölskyldu en hann á sex systkini. Hann ku vera mikill aðdáandi J.R.R. Tolkiens og er með nafn sitt, Kun Agüero, húðflúrað á framhandlegginn á því ástsæla tungumáli tengwar. Tengdasonur Maradonas Tengdafeðgar faðmast. Hlýtt er milli Agüeros og Maradonas. Sergio Leonel Agüero del Ca- stillo er 21 árs. Fæddur í Quilmes, Argentínu, 2. júní 1988. Hann lék 54 leiki fyrir Independiente (2003-06) og skor- aði 23 mörk. Hann hefur leikið 122 leiki fyrir Atlé- tico og gert í þeim 44 mörk. Tuttugu sinnum hefur Agüero skrýðst landsliðs- búningi Argentínu frá árinu 2006 og sjö sinnum komið knettinum í markið.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.