SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 10
10 8. nóvember 2009 É g rifjaði það upp í pistli fyrir nokkrum vikum að breskur þingmaður Verkamannaflokksins, Jim Dowd, sagði í samtali við Morgunblaðið í apríl 2006: „Segja má að einstaklingur í dag geti farið í gegnum lífið allt og aldrei verslað annars staðar en í Tesco. Frá vöggu til grafar getur Tesco fullnægt öllum þörfum ein- staklingsins. Er það slík einsleitni sem við viljum festa í sessi?“ Þessi orð lét þingmaðurinn falla vegna þess að bresk stjórnvöldu höfðu og hafa áhyggjur af ráðandi markaðs- hlutdeild Tesco sem þó er ekki „nema“ um 30%. Ég segi ekki nema því markaðshlutdeild þeirra Bónusfeðga, Jóns Ásgeirs og Jóhannesar Jónssonar, er jú miklu meiri en þeirra hjá Tesco eða um 50%. Ólíkt breskum stjórnvöldum virðast þau íslensku ekki hafa hinar minnstu áhyggjur af ráð- andi markaðshlutdeild eigenda Haga því ekki er annað að sjá og heyra en það sé ríkur vilji fyrir því hjá stjórnvöldum að halda lífi sem lengst í þessum einokunarrisum smásölunnar, til dæmis með því að láta það gerast að banki sem enn er í ríkiseigu (eign fólksins í landinu), hvað sem verður eftir mánuð eða svo, afskrifi jafnvel tugi milljarða króna af samtals yfir 70 milljarða skuldum Haga og 1998 en Jón Ásgeir og fjöl- skylda fái samt sem áður að eiga áfram 60% hlut í Högum. Það eina sem eigendurnir virðast þurfa að gera á næstu dögum og vikum er að reiða fram 5-7,5 milljarða króna. Menn vita sem er að það er óhjákvæmilegt að afskrifa stór- an hluta skulda Haga og 1998 því smásölureksturinn rís ekki undir slíkri skuldsetningu. En það sem mönnum ofbýður er að Kaupþing sé með það í bígerð að leyfa þeim sem keyrðu Baug Group í yfir 300 milljarða króna gjaldþrot að halda áfram völdunum í Högum. Ef stjórnendur Kaupþings hverfa ekki frá slíkum áformum held ég að óhætt sé að fullyrða að hér verður allt vitlaust, enn á ný. Hafa menn velt því fyrir sér hversu mikla fjármuni eig- endur Haga hafa greitt sér út frá því að Baugur Group var tekið af markaði? Fróðlegt væri að fá upplýsingar um þær upphæðir og hvað varð um þá peninga. Að vísu gáfu yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í vik- unni, í þá veru að ekki sé sjálfgefið að eigendur stórfyrirtækja sem fá stórfelldar afskriftir í bankakerfinu komi áfram sem eigendur að rekstrinum, ákveðnar vonir um að stjórnendur Kaupþings og eigendur Haga og 1998 ehf. verði ekki látnir komast upp með þær fyrirætlanir sem augljóslega voru á prjónum þar á bæ. Hvað vakir fyrir mönnum í Kaupþingi og ríkisstjórninni ef það á að gerast að eigendurnir sem keyrðu félagið í þrot fá forkaupsrétt á 60% hlutafjár í Högum á brunaútsöluprís? Væri ekki vitinu nær og réttlætinu að Kaupþing yfirtæki allan rekstur Haga og hlutafé eigendanna yrði skrifað niður í núll krónur, rétt eins og gert var þegar fyrrverandi eigendur Árvakurs hf. þurftu að skrifa sitt hlutafé niður í núll og hverfa frá rekstri Morgunblaðsins áður en Íslandsbanki bauð Morgunblaðið út í opnu útboðsferli? Hvað ætti að réttlæta það að Björgólfsfeðgar væru með- höndlaðir eins og Jón en Bónusfeðgar eins og séra Jón? Getur Kaupþing ekki minnkað eigið tap með því að yf- irtaka Haga með manni og mús, að undanskildum feðgunum, og boðið fyrirtækið svo út í opnu, gegnsæu ferli eða brotið upp báknið og boðið út smærri einingar? Lífeyrissjóðir landsins hafa verið að bræða með sér með hvaða hætti þeir gætu stutt við atvinnulífið í landinu. Þeir gætu, ef stjórnendur þeirra kærðu sig um, komið að eign- arhaldi á Högum. Það væri minnsta mál fyrir þá að snara út þeim 11 milljörðum sem virðist vera verðmiðinn á Högum ef marka má fréttir og eignast þar með Haga alla. Þannig mætti tryggja áframhaldandi rekstur á verslunum í eigu Haga og um leið yrði tryggt að landsmönnum stæði til boða matvara á sanngjörnu verði því varla leggjast lífeyr- issjóðirnir svo lágt að okra á eigendum sínum þótt vissulega þurfi þeir einnig að gæta að því að fá viðunandi arð á fjárfest- ingar sínar. Bónus frá vöggu til grafar Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is 5:00 Inga Fanney fer á fætur á meðan flestir eru enn í fasta- svefni. Hún byrjar daginn á sturtu og fær sér hafragraut í morgunmat. „Ég fæ mikla orku úr grautnum og hann fer ákaf- lega vel í maga og ég þarf þá yf- irleitt ekki að borða fyrr en á hádegi,“ segir Inga Fanney. Alla jafna hjólar Inga Fanney í vinnuna og aftur heim en því er öðruvísi farið í dag. „Ég tek sækinguna en bílstjórar sem byrja snemma eiga kost á því að vera sóttir heim. Mér finnst nú samt afskaplega gott að hjóla. Það kemur blóðinu á hreyfingu. Ég er búsett í Breiðholtinu og glími við Breiðholtsbrekkurnar og er búin að mastera þær þannig að nú hjóla ég án þess að stoppa.“ 6:20 Inga Fanney er mætt í vinnuna á Hesthálsi. „Það er örugglega leitun að öðrum eins vinnustað því fjörið uppi á Hesthálsi er bara ekkert venju- legt. Þar er hlegið, djókað og jafnvel dansað svona snemma að morgni,“ segir Inga Fanney bæði stolt af vinnustaðnum og vinnufélögunum. Ingu Fann- eyju er úthlutað leið 12 en hún keyrir allar leiðir og er aldrei meira en tvo daga á sömu leið. „Ég byrja á því að aftengja vagninn bæði lofti og rafmagni og geri hann kláran og fer á mína endastöð, sem er á Skelja- nesi úti í Skerjafirði,“ segir Inga Fanney um upphaf vinnudags- ins. Þegar klukkan er fimm mínútur gengin í átta leggur vagninn hennar af stað úr Skerjafirði og keyrir upp í Ártún með viðkomu í Mjóddinni. Inga Fanney fer reglulega í kaffihlé á endastöðvunum og þá sest hún niður og les blöðin. Inga Fanney er bráðum búin að keyra í 10 ár og segir starfið ákaflega skemmtilegt. „Í vinnunni hittir maður alla flóruna af fólki, frá tveggja ára leikskólabörnum upp í níræða heldri menn og frúr.“ 15:18 Vinnudegi er lokið. Nýr bílstjóri sest í sæti Ingu Fanneyjar og hún færir sig í far- þegasætið. Vinnufélaginn stoppar bílinn á viðeigandi stað enda vanur að Inga Fanney sitji í á heimleið þegar hún er ekki á hjólinu. Þegar heim er komið fer Inga Fanney að gera sig tilbúna fyrir ferðalag helgarinnar og tekur til við að strauja og pakka. Í vænd- um er helgi í Hveragerði með góðum vinum sem vita fátt skemmtilegra en að dansa. Þeg- ar búið er að strauja skyrtur og kjóla og raða ofan í tösku heldur hún í Skeifuna á dansæfingar. 18:00 Með þumlana í vösum og ameríska sveitatónlist í eyr- um dansar Inga Fanney línu- dans ásamt góðum vinum og Óla Geir í Húnabúð. Að línu- dansinum loknum skellir Inga Fanney sér yfir í Dansskóla Auðar Haralds ásamt félaga sín- um og saman dansa þau chac- hacha, samba og vals. „Þetta er svo gott þegar maður er búinn að sitja allan daginn og keyra að fá svona hreyfingu,“ segir hún. Eftir þrjár strangar en jafnframt skemmtilegar klukkustundir í dansinum fer Inga Fanney heim. Hún fær kærastann í heimsókn en hann er jafnframt dansfélagi og þau borða saman létta máltíð eftir erfiðið. „Svo setjumst við út á balkanið og spilum á gítar og syngjum smá- vegis. Við syngjum Fram í heið- anna ró og Liljuna og fleiri lög. Kærasti minn spilar bæði á gítar og nikku og þessar stundir eru voðalega indælar.“ Hún skríður þreytt upp í rúm og er sofnuð rétt eftir miðnætti. signyg@mbl.is Dagur í lífi Ingu Fanneyjar Jónasdóttur vagnstjóra Inga Fanney Jónasdóttir er bráðum búin að keyra strætó í 10 ár og segir starfið ákaflega skemmtilegt. Morgunblaðið/Kristinn Söngelskur og dans- andi strætóbílstjóri Sími 544 5858, www.frostmark.is Dalvegi 4 Kópavogi og Gagnheiði 69 Selfossi Staðlaðar lausnir – Sérlausnir Hönnun – Sala – Framleiðsla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.