SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 19
8. nóvember 2009 19 The End er yfirskrift sýningar Ragnars Kjartanssonar á Feneyjatvíæringnum, en verkið er tvískipt. Í hliðarsal er myndbandsverk frá Klettafjöllunum og tekur Ragnar undir að tengingin á milli myndbandsverksins og mál- arans á vinnustofunni sé ekki augljós. „Þetta er eins og tengslin á milli ljóða í ljóðabók,“ segir hann. „Einhvern veginn tengjast þær. Í báðum er vinskapur, tveir menn við öfgakenndar aðstæður og Caspar David Friedrich svífur yfir vötnum. Í þekktu málverki eftir gamla þýska rómantíkerinn eru tveir menn að dást að tunglinu. Það er ofboðslega fallegt málverk og lykilverk að andrúmi þessara verka – báðir staðirnir eru raunverulegir, Klettafjöllin og Feneyjar, en þó er eins og þeir séu afsprengi ímyndunaraflsins. Ekki klisjur, en öfgakenndir staðir.“ Myndbandsverkið er fimm rása og tekið upp í Kan- ada, en tónlistina fyrir það sömdu Ragnar og Davíð Þór Jónsson saman. Í því eru áhrifamiklar tökur, þar sem þeir spila á ólík hljóðfæri á snævi þöktum víð- áttum í grennd við Klettafjöllin og það í 30 stiga stiga frosti. „Mig langaði til að vinna verkið í Banff, en þar er öll aðstaða fyrir hendi, enda hafa eyðimerkurvestrar verið teknir þar upp, nú síðast mynd- in um Jesse James, og líka vetrarvestrarnir, eins og Brokeback Mountain og River Runs Through It með Robert Mitchum. Eitt atriði úr þeirri mynd með Marilyn Monroe var tekið upp nákvæmlega þar sem við gerðum myndbandsverkið.“ – Og þetta er staður á jaðri veraldar sem ber endalokin í sér? „Já, það er fyndið með Klettafjöllin, að margir halda að það sé Ísland.“ – Þannig að þetta er góð landkynning, eins og þú leggur auðvitað upp með! „Fyrst og fremst, þá vil ég vera landi og þjóð til sóma,“ segir hann há- tíðlegur. „Ég notaði þessi kanadísku fjöll, af því þau eru flottari, en fólk kemur til Íslands, því það heldur að þau séu þar.“ Á slóðum Marilyn Monroe fara á Lido og upplifa hátíðina. Svo eru fleiri hátíðir, eins og róðrarkeppnin upp kanalinn, en þá eru gamlir skrautbátar dregnir á flot, barokkbátar sem tólf menn róa.“ – Og þeir sigldu inn í Endalokin? „Já, borgin rennur inn í gjörninginn og síast inn í verkin. Þessi dagur er í einu málverkinu.“ – San Siro í öðru! „Já, Palli heldur þar á treflinum. Tvíæringurinn lokar á mánudögum og þá getum við skotist frá. Við brugð- um okkur til Mílanó á viðureign AC Milan og AS Roma á San Siro og það var ótrúleg upplifun. Ég hafði aðeins séð KR gegn Fram. Þetta voru aðeins betri fótbolta- menn.“ – Nú gagnrýnir þig áreiðanlega einhver fyrir að taka listina ekki alvarlega! „Það er mikilvægt að koma fram við myndlistina eins og lífið. Maður flissar sig í gegnum alvarleikann – og þykist vera kærulaus þótt lífið sé dauðans alvara.“ Hrun, vonleysi og drungi Hugmyndin að verkinu The End eða Endalokunum kviknaði á sama tíma og hrunið varð á Íslandi, í lok september árið 2008. „Ég var í þessum pælingum í bú- stað pabba og Sirríar í Borgarnesi. Tryggvi Þórhallsson sagði í sjónvarpinu að allt væri í góðu lagi og ég kinkaði bara kolli: „Já, það er allt í góðu.“ Ég var líka í bú- staðnum þegar Davíð kom í Kastljósinu fræga. Ég vona að þetta hafi einhvern veginn smitast inn í þetta verk. Það er erfitt að festa hendur á því, en eitthvað af von- leysinu og drunganum í verkinu – það leiðir af þessu áfalli.“ Það var í bústaðnum sem hugmyndin kviknaði að því að fá Pál í verkið. „Ég sá fyrir mér mynd af manni á sundskýlu á þessum örlagaþrungna stað við Canale Grande,“ segir hann. „En tildrögin voru líka bréfa- skriftir við Andreas, sænskan listamann, en öll verk hans eru í bréfaformi og hann býr til persónur í kring- um þau. Ég hef fengið bréf frá fólki sem ég kannast ekkert við, stúlku í Belgíu sem skrifaði svo fallega um upplifun sína af því að vinna í blómabúð. Svo var það bara Andreas sem hélt um pennann. Ég kynntist hon- um þegar ég var skiptinemi í Svíþjóð. Það er það ex- ótískasta sem ég hafði gert fram að þessu – að búa hálft ár í Stokkhólmi!“ Eiga Stravinsky mikið að þakka Það er orðið rökkvað. Við sitjum í hægindastólum á litlu bryggjunni við skálann. Skammt undan ýtir maður gondól frá bryggju með risastórum svörtum hundi um borð og það glampar á glyrnurnar í myrkrinu. Ragnar skellir upp úr. „Þessi staður er svo yfirhlaðinn merkingu, dauðinn í Feneyjum og allt það. Maður fær það á tilfinninguna að þetta sé Styx – þegar farið er á gondólum hér yfir er það eins og að fara út yfir gröf og dauða.“ Páll er kominn með trefil og er í nýjum ullarsloppi. „Við dressuðum karlinn svolítið upp,“ segir hann brosandi. „Við fórum í verslunarmiðstöðina Coin, sem er dýra útgáfan af Rúmfatalagernum.“ Hann er farinn að þekkja hvern ranghala og hlið- argötu í Feneyjum eins og lófana á sér, eftir þrotlausar kvöldgöngur, og hefur innbyrt ósköpin öll af heim- speki og fögrum bókmenntum undanfarið hálft ár. Þegar hann lá í sófanum nýverið og las Nietzsche, eins og menn gera þegar þeim leiðist, þá gekk til hans ævareið bresk kona og kvartaði undan því að það væru aðeins karlmenn í myndbandsverkinu The End. Hann veifaði Nietzsche og sagði: „Sérðu það ekki, við hötum konur!“ „En við pössum upp á að hafa breidd í bókmennt- unum,“ segir Ragnar. „Þess vegna urðum við okkur úti um sendingu af Séð og heyrt til að fara með á klósettið og slá á heimþrána.“ – Hvernig semur ykkur eftir allan þennan tíma? „Það er mesta furða,“ segir Páll brosandi. „Palli var voðalega fyndinn um daginn og setti leirklump inn á skýluna sína,“ segir Ragnar. „Ég fattaði ekkert allan daginn, en svo kom fólk á vinnustofuna og greip fyrir augun á börnunum sínum.“ „Þann daginn var þetta nútímalist,“ skýtur Sigurður inn í, sem er starfsmaður sýningarinnar, en áður gegndi Þorlákur því virðingarembætti. Það má þó ráða af gestabókinni í anddyrinu að flestir gestirnir eru himinlifandi með The End, allmargir segja þetta bestu sýninguna á Feneyjatvíæringnum og margir skrifa langar færslur við nafnið sitt. Yfirleitt eru listamennirnir líka ánægðir með gestina. „Einstaka sinnum sest einhver í sófann, sem við ætlum aldrei að losna við,“ segir Ragnar. „Þá setjum við Stra- vinsky á plötuspilarann og hækkum í botn. Ef við ger- um það bregst ekki að fólk lætur sig hverfa. Við eigum því Stravinsky mikið að þakka.“ Sigurður læsir útidyrunum. Klukkan er orðin sjö. Og Ragnar grípur gítarinn og syngur: „Every day I got the blues …“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.