SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 36
36 8. nóvember 2009
Þ
egar Walter Ulbricht, leiðtogi Austur-
Þýskalands, svaraði á blaðamannafundi
síðsumars árið 1961 aðspurður hvað aust-
ur-þýsk stjórnvöld ætluðu að gera til þess
að stöðva straum fólks til Vestur-Berlínar sagði
hann að enginn hefði í hyggju að reisa múr. Um-
mæli hans vöktu litla athygli á þeim tíma, en voru
þeim mun oftar rifjuð upp síðar meir. Aðeins
nokkrum dögum eftir að hann sagði þessi orð var
hafist handa við að reisa Berlínarmúrinn. Múrinn
var á austur-þýsku embættismannamáli kallaður
„andfasískur skjólveggur“, en var í raun táknmynd
stjórnarfars, sem glatað hafði allri réttlætingu og
trúverðugleika.
Íbúar Vestur-Berlínar voru iðulega spurðir hvort
það fylgdi því ekki innilokunarkennd að búa í borg,
sem var afgirt með múr, en það var öðru nær. Vest-
ur-Berlín átti að vera sýningarglugginn til austurs.
Þeir sem voru hinum megin við múrinn voru lok-
aðir úti.
Hefði getað farið illa
Múrinn stóð í rúm 28 ár. 9. nóvember eru 20 ár lið-
inn frá því hann féll. Sú tilhneiging er rík eftir á að
hyggja að líta svo á að atburðarás sögunnar hafi
verið óhjákvæmileg. Múrinn hlaut að falla rétt eins
og sól rís í austri og hnígur í vestri. Það getur hins
vegar verið villandi að festast í sögulegri nauð-
hyggju. Það þarf ekki nema að líta til blóðbaðsins á
Torgi hins himneska friðar í Kína 4. júní til þess að
sjá hvað hefði getað gerst í Austur- og Mið-Evrópu.
Það segir sína sögu um hvað lítið þurfti að bera út af
að þegar fjöldamótmæli voru haldin í Leipzig 9.
október 1989 voru átta þúsund manns úr lögregl-
unni, hernum og Stasi tilbúnir gráir fyrir járnum að
láta til skarar skríða og stjórnendum spítala höfðu
verið gefin fyrirmæli um að búa sig undir að taka
við fólki.
Ef til vill varð harkaleg framganga kínverskra
stjórnvalda gegn mótmælendum til þess að bæði
stjórnvöld og mótmælendur í Austur-Evrópu gættu
þess að skærist ekki í odda. Á hinn bóginn lögðu
kínversk stjórnvöld sig fram um að greina hrun
kommúnismans í Evrópu og fall Sovétríkjanna til
þess að læra af mistökum kolleganna í Kreml og
finna leið til þess að tryggja að kínverski komm-
únistaflokkurinn héldi völdum.
1989 er eitt magnaðasta ár seinni tíma sögu. Al-
menningur tók völdin í sínar hendur, ekki bara í
Austur-Þýskalandi, heldur um alla Austur-Evrópu.
Í Póllandi var Samstöðu hleypt að borðinu og í júní
vann hún stórsigur í kosningum. Pólverjar höfðu
reyndar alltaf verið kommúnistastjórninni óþægur
ljár í þúfu og spyrntu gegn ítökum Sovétríkjanna og
mun Stalín einhvern tímann hafa sagt að komm-
únismi passaði Pólverjum eins og hnakkur kú. Í
Ungverjalandi opnaði kommúnistaflokkurinn fyrir
fjölflokka kerfi. Sagnfræðingar hafa komist að því
að kommúnistar í Ungverjalandi höfðu glatað
valdaeinokun sinni þegar í janúar. Eitt af öðru köst-
uðu þessi ríki af sér oki, sem þau höfðu borið frá
lokum heimsstyrjaldarinnar síðari.
Gorbatsjov ákvað að standa á hliðarlínunni
Lykilatriði var að Sovétríkin ákváðu að grípa ekki í
taumana, heldur leyfa atburðarásinni í leppríkj-
unum að hafa sinn gang. Þegar í janúar var Míkhaíl
Gorbatsjov orðið ljóst að staða Sovétríkjanna væri
orðin það slæm að sovéskum hermönnum yrði ekki
beitt utan landamæranna. Sovéski herinn yrði kall-
aður brott frá Afganistan þrátt fyrir beiðni lepp-
stjórnarinnar í Kabúl um frekari hjálp. Leiðtogar í
Austur-Evrópu fengju sama svar. Þegar Gorbatsjov
kastaði þeirri stefnu, sem kennd var við Leoníd
Brezhnev, að styðja þyrfti við kommúnistastjórnir
hvar sem þær væru, fyrir borð opnaðist farvegur
fyrir frelsisbaráttu almennings.
Gorbatsjov kom til Berlínar á þjóðhátíðardegi
Austur-Þýskalands 6. október og mátti heyra kurr í
mannfjöldanum. „Lífið refsar þeim, sem kemur of
seint,“ sagði Sovétleiðtoginn við Honecker, sem
entist ekki mánuðinn á valdastóli. Þótt Gorbatsjov
ætti eftir að sitja tveimur árum lengur biðu hans
sömu örlög. Og á afmæli byltingarinnar í Moskvu 7.
nóvember stóð hópur andófsmanna með skilti
nokkra kílómetra frá Rauða torginu. Á eitt þeirra
var letrað: „Öreigar allra landa – fyrirgefið okkur.“
Misskilningur á misskilning ofan
Höfundur yfirlýsingarinnar, sem leiddi til þess að
Berlínarmúrinn féll heitir Gerhard Lauter. Fyrir há-
degi 9. nóvember sest hann að verki með þremur
starfsfélögum sínum. Þeir ákveða að ganga lengra
en þeim hafði verið falið án þess að spyrja yfirboð-
ara sína. Slíkt hefði verið óhugsandi nokkrum árum
fyrr. „Hægt er að sækja um einkaferðir til útlanda
án þess að uppfylla þurfi skilyrði (tilefni ferðar eða
aðstæður skyldmenna),“ hljómar ein lykilsetn-
ingin. Til að koma í veg fyrir að almenningur héldi
að við tæki yfirgengileg bið eftir vegabréfsáritun
sagði síðan: „Leyfi verða afgreidd með stuttum fyr-
irvara.“ Lokasetning yfirlýsingarinnar var á öðru
blaði. Þar stóð að breytingarnar ættu að taka gildi
10. nóvember.
Þegar textinn var tilbúinn var allt kapp lagt á að
Saga
Mistökin
sem breyttu
sögunni
9. nóvember hið örlagaríka ár
1989 féll Berlínarmúrinn og
heimssagan fór í nýjan farveg.
Það var hins vegar alls ekki ætlun
austur-þýskra stjórnvalda að
opna þennan dag.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Taumlaus fögnuður braust út þegar hlið Berl-
ínarmúrsins voru opnuð og mikill mannfjöldi
safnaðist saman við múrinn og á honum.
Ó
sló er borg sem hefur upp á
afar margt að bjóða jafnt á
sumri sem vetri. Borgin er
notaleg og fólkið gestrisið og
hér er Íslendingum tekið opnum örmum
enda kalla Norðmenn okkur frændur sína
með stolti.
Frognergarðurinn
Það er gaman að ganga um miðbæ Óslóar
enda er borgin græn og margir fallegir
garðar sem er dásemd að njóta. Helstan
má nefna Frognergarðinn (Frognerparken)
en allir sem heimsækja Ósló ættu að gera
sér ferð þangað. Garðurinn er mjög stór og
jafn fallegur og ævintýralegur á sumri sem
vetri.
Í Frognergarðinum miðjum er Vigeland-
garðurinn sem er heimsins stærsti skúlp-
túrgarður en skúlptúrarnir eftir Gustav
Vigeland eru einmitt það sem gerir garð-
inn svo ævintýralegan. Vigeland vann
fyrst og fremst með mannslíkamann og
hafði samband manns og konu og dauð-
ann sem uppáhaldsviðfangsefni. Stytt-
urnar hans svo tilfinningaþrungnar og
svipbrigðamiklar að maður kemst ekki hjá
því að verða fyrir hughrifum þegar skúlp-
túrarnir hans 200 eru skoðaðir. Vigeland
var merkilegur skúlptúristi sem sjálfur
hannaði garðinn, sem var byggður upp á
árum seinni heimsstyrjaldar. Inn í Frog-
nergarð eru margar leiðir en aðalinngang-
urinn er íburðamikið hlið sem stendur við
Kirkeveien.
Astrup Fernely-safnið
Á göngutúr um Ósló er einnig áhugavert
Hrafnhildur
Smáradóttir
Íslendingum tekið
opnum örmum