SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 6
Lagt er upp með að
þetta verði „sam-
stöðuprófkjör“, eins
og það er orðað en
vonast er til að með
því verði spornað við
harkalegum innri átök-
um sem meðal annars
þótti setja skugga á
prófkjörið fyrir síðustu
þingkosningar.
Í því felst að frambjóð-
endur fá aðstöðu í Val-
höll og þar verða
haldnir sameiginlegir
fundir, opnuð verður
sérstök vefsíða fyrir frambjóðendur og gefið út öfl-
ugra blað en oft áður, auk þess sem sett verður
þak á kosningabaráttuna upp á 1,5 milljónir.
„Ég held að frambjóðendur viti að það skiptir okk-
ur miklu máli að sýna samstöðu, þannig að þetta
verði blanda af félögum í leik og auðvitað um leið
einstaklingum að kynna sína sérstöðu,“ segir
einn frambjóðenda og endurspeglar það afstöðu
flestra en jafnframt óttann við að baráttan fari úr
böndum.
Þó að frestur til að skila inn framboðum renni út á
föstudag er ólíklegt að kosningabaráttan fari á
fullt fyrr en eftir áramót enda kemst fátt annað en
helgihaldið að í jólamánuðinum.
Ljóst er að bitist verður um annað sætið í prófkjöri
sjálfstæðismanna í borginni. Af þremenningunum
sem þegar hafa verið nefndir til leiks varð Gísli Mar-
teinn Baldursson efstur í síðasta prófkjöri.
Þá hafði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson betur í slag um
leiðtogasætið og hafnaði Gísli Marteinn í þriðja sæti,
en hlaut engu að síður flest heildaratkvæði allra og
5.193 atkvæði í efsta sætið. Gísli Marteinn var sem
formaður umhverfis- og skipulagsráðs hvatamaður að
grænu skrefunum, umhverfisátaki borgarinnar. En er
helst gagnrýndur fyrir að hafa farið í meistaranám síð-
asta vetur í borgarfræðum í Edinborg, hluta af tím-
anum í leyfi.
Kjartan Magnússon hafnaði í fjórða sæti í síðasta
prófkjöri, en gaf kost á sér í þriðja sæti. Hann er for-
maður tveggja ráða, menntaráðs og íþrótta- og tóm-
stundaráðs, og hefur siglt jafnt og þétt til hærri met-
orða, þótt ekki hafi alltaf farið hátt um það. Hann er
kunnur fyrir að leggja mikla rækt við innra starf flokks-
ins og var drifkraftur í því að fá Ólaf F. Magnússon til
að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Það
reyndist ekki langlífur meirihluti, en varð þó til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn gat síðar myndað meirihluta
með Framsókn.
Júlíus Vífill Ingvarsson hafnaði í fimmta sæti í síð-
asta prófkjöri. En hafði þá dregið sig að mestu út úr
borgarpólitíkinni eftir að ekki varð af prófkjöri um leið-
togasæti borgarstjórnarflokksins. Hann hafði lýst
áhuga á þátttöku og mælst sterkur í könnunum, en
hætti við eftir að Inga Jóna Þórðardóttir dró sig til
baka og lýsti yfir stuðningi við Björn Bjarnason. Júlíus
Vífill gegnir formennsku í Skipulagsráði og steig fyrstu
skref sín í pólitík er hann tók þátt í prófkjöri árið 1998.
Það er styrkleiki hans í pólitík, að hafa ekki verið í póli-
tískum skotgröfum innan flokksins frá ómunatíð, en
um leið kann það að vera veikleiki, að hafa ekki bak-
landið sem stundum myndast á áratugum.
Allir þrír eiga sameiginlegt að hafa verið í hópi sex-
menninganna, sem tóku slaginn til að koma í veg fyrir
að REI-málið næði fram að ganga. En í kjölfarið á því
hófst sturlungaöld í sölum Ráðhússins.
Slagurinn um annað sætið
6 8. nóvember 2009
flokksins, heldur ætla varaborgarfulltrúarnir einnig að
láta slag standa og stefna vísast á öruggt sæti eins og aðrir.
„Aldrei að vita hvað maður gerir fyrir lokun,“ segir Sif
Sigfúsdóttir og hlær en hún situr sem varaborgarfulltrúi í
áttunda sæti listans. „Ég held að það stefni allir á fram-
boð, borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar líka. Og svo
bætast einhverjir við síðasta daginn.“
Bolli Thoroddsen, sem er í 9. sæti, býður sig þó ekki
fram þar sem hann er í viðskiptanámi í Tókýó og vinnur
þar fyrir Actavis. En sé litið til þrettán efstu sæta listans,
sem öll eru skipuð þátttakendum í síðasta prófkjöri, þá
hefur Marta Guðjónsdóttir þegar tilkynnt framboð og
Ragnar Sær Ragnarsson og Björn Gíslason ætla í framboð.
Ekki náðist tal af Kristjáni Guðmundssyni.
Svo munu Áslaug Friðriksdóttir og Elínbjörg Magnús-
dóttir að líkindum gefa kost á sér en þau eru efst þeirra
sem stillt var upp til að styrkja listann fyrir síðustu kosn-
ingar. Þetta er því þeirra fyrsta prófkjör og eru þau
óskrifað blað að því leyti.
Nokkrir hafa verið nefndir til sögunnar utan raða borg-
arstjórnarflokksins. Árni Helgason, lögfræðingur og for-
maður Heimdallar, veltir því fyrir sér að gefa kost á sér og
einnig Fanney Birna Jónsdóttir sem áður var formaður fé-
lagsins. Þá eru orðuð við framboð Óttar Guðlaugsson,
Edda Borg og Emil Örn Kristjánsson en þau hafa meðal
annars starfað í hverfafélögunum.
Haft var samband við nokkra, sem orðaðir hafa verið
við framboð, en þeir neituðu því að þeir hygðust bjóða sig
fram, þar á meðal Geir Sveinsson og Guðfinna Bjarnadótt-
ir. Orðrómur er á kreiki um að von sé á þungavigtarfólki í
framboð, utan þess hóps sem hér hefur verið nefndur. En
slíkur orðrómur er svo sem engin nýlunda þegar prófkjör
er á næsta leiti.
E
kkert bendir til að slagur verði um leiðtogasæti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur í
prófkjörinu 23. janúar næstkomandi, en víst er
að tekist verður hart á um önnur sæti listans.
Svo virðist sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
verði ein um að gefa kost á sér í efsta sæti enda mál
manna innan flokksins að það hafi að mestu skapast friður
um störf borgarstjórnar síðan hún tók við því embætti.
Óvissa um framboð Vilhjálms
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins munu þrír borg-
arfulltrúar að líkindum gefa kost á sér í annað sæti listans,
Gísli Marteinn Baldursson, Kjartan Magnússon og Júlíus
Vífill Ingvarsson.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir kann að blanda sér í þann
hóp en samkvæmt heimildum stefnir hún á að ná sæti í
borgarráði, þar eiga nú sæti þrír borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins. Hanna Birna hefur ekki verið einn þeirra,
heldur setið borgarráðsfundi sem áheyrnarfulltrúi. Ef svo
verður áfram, ætti því annað til fjórða sætið að vera ávís-
un á sæti í borgarráði. Líklegt er að hún setji markið á
þriðja sæti og það sama gildir um Jórunni Frímanns-
dóttur.
Eini borgarfulltrúinn sem ekki hefur sagt til um hvort
hann gefi kost á sér í prófkjörinu er Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri. Hann segist ætla að
upplýsa það þegar þar að kemur en framboðsfrestur renn-
ur út 13. nóvember. Vilhjálmur hefur raunar þegar lýst því
yfir í fjölmiðlum, að þetta verði hans síðasta kjörtímabil,
en heyrst hefur að undanfarið hafi hann gefið því undir
fótinn í samtölum við sjálfstæðismenn á förnum vegi að
hann haldi áfram.
Ekki er aðeins mikil þátttaka af hálfu borgarfulltrúa
Hanna Birna
óumdeild
sem leiðtogi
Tekist á um önnur
sæti í prófkjörinu
Vikuspegill
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Allt bendir til að vopnabræðurnir Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon og Gísli Marteinn Baldursson tak-
ist á um 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokks, en hér sjást þeir á borgarstjórnarfundi. Fleiri kunna að slást í hópinn.
Morgunblaðið/G.Rúnar
www.noatun.is
KALKÚNN
FROSINN
KR./KG
998
VERÐ
FRÁBÆRT
Ódýrt
og gott
í Nóatúni
Samstöðuprófkjör
Hanna Birna Kristjánsdóttir