SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 26
26 8. nóvember 2009 F átt hefur verið rætt meir í liðinni viku en tilburðir Nýja Kaupþings banka til að finna flöt til að afskrifa tugi milljarða króna hjá fyrrverandi eigendum Baugs, fyrirtækis sem muldi flest undir sig í íslensku þjóðfélagi á síðustu árum. Það félag virtist ganga um galopnar dyr alls íslenska bankakerfisins, og vera að auki með gagnrýnislausan pólitískan bak- stuðning hjá að minnsta kosti einum stjórn- málaflokki og slíkan aðgang að þjóðhöfðingja landsins, að hvergi hefur þekkst í lýðræðisríki. Eigendum þess tókst skömmu eftir atburðina í október á síðasta ári að fá afskrifaðar stórar fjár- hæðir í Landsbankanum af fjölmiðlaveldi sínu og var aðkoma fyrrverandi og þáverandi stjórnenda bankans að þeim gjörningi stórlega ámælisverð og hefur ekki verið skýrð til fulls. Er það eitt af fjöl- mörgum pukurmálum hins endurreista banka- kerfis, sem gerir því nær ómögulegt að öðlast á ný traust landsmanna, og er þó fátt þeim nauðsyn- legra. Nú telja virtir sérfræðingar líklegt að í risa- félaginu Baugi hafi sennilega aldrei verið um já- kvætt eigið fé að ræða, og er því sjálftaka þess í bankakerfinu enn stórbrotnari en áður var vitað. Þegar félagið var loks tekið til gjaldþrotaskipta var það ákaft gagnrýnt að maður með margvísleg tengsl við fyrri eigendur skyldi gerður að skipta- stjóra í félaginu en við blasti að leitast hafði verið við að færa þaðan eignir í persónulega þágu eig- endanna. Þeirri gagnrýni var svarað með mála- myndaaðgerð en hún látin standa að öðru leyti. Á föstudaginn var bárust enn fréttir, sem gera hér- aðsdóminum nánast ófært að láta fyrri ákvörðun standa. Geri hann það engu að síður er full ástæða til að hafa áhyggjur af þeim málatilbúnaði öllum. Ólíkt hefst hann að Fyrir skömmu varð uppi fótur og fit þegar spurð- ist að Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor sonur hans hefðu gert Nýja Kaupþingi banka tilboð um að greiða helming af tiltekinni skuld sinni við bankann gegn niðurfellingu hins helm- ings hennar. Varð mönnum mjög um að þessar hugmyndir kynnu að vera uppi og voru höfð uppi stór orð af því tilefni. Einn af þeim sem ekki hik- uðu við að gagnrýna slík áform harðlega var fjár- málaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, sem taldi fráleitt að slíkur gerningur gengi fram. Eng- inn fann að þeirri afstöðu og eftir atvikum af- skiptum Steingríms ráðherra. Sami ráðherra átti ekki til nægjanlega stór orð til að lýsa fordæmingu sinni á framgöngu annars banka í svokölluðu barnalánamáli, en bankinn var þá með í athugun hvernig með skyldi fara. Ekki var heldur gerð at- hugasemd við þau orð ráðherrans. Þess vegna kom mjög á óvart að Steingrímur var allur annar maður þegar hann var spurður um hugsanlegar tugmilljarða afskriftir á skuldum eigenda Haga og 1998. Þá var farið undan í flæmingi og sett upp embættismannahúfan sem fer þessum baráttu- glaða orðháki ekki vel. Nú var komið annað hljóð í strokkinn, því maður í hans stöðu hvorki gæti né mætti tjá sig um mál af þessu tagi og allra síst ef ummæli hans gætu litið út sem óbein fyrirmæli. Nú vill þannig til að Steingrímur er með sérstakan trúnaðarmann sinn í sæti formanns bankaráðs Nýja Kaupþings banka, svo öll þessi látalæti eru einkar ótrúverðug, ekki síst í ljósi þeirra ummæla sem hann hefur nýlega látið feimnislaust falla í sambærilegum málum. Hvern einasta dag eru fjölmiðlar að færa fréttir af vafasömum gerðum gömlu bankanna, sem loks leiddu til hruns þeirra með alkunnum afleið- ingum. Þar virðist veruleikafirringin hafa verið á háu stigi og háar þóknanagreiðslur af yfirtöku og kaupum á margvíslegum fyrirtækjum víða um lönd sannfært stjórnendur bankanna um að þeir hefðu fyrir velvild örlagadísanna fundið upp ei- lífðarvélina sem prentar peninga í öllum mynt- um. Og vissulega voru hinir vörpulegu íslensku bankavitringar sem héldu inn í hina gullnu veröld hönd í hönd með útrásarsnillingunum ekki einir í heiminum. Eilífðarvélin reyndist tálsýn Margir fréttaskýringaþættir hafa verið gerðir um framgöngu alþjóðlegra bankamanna og ofur- fjárfesta og þeir sýna að margt er líkt með skyld- um. Í þætti sem sýndur var hér á landi í vikunni var fjallað um fall fimmta stærsta banka Banda- ríkjanna, Lehman Brothers, virðulegs banka, sem stóð á gömlum merg. Þar kom fram að stjórn- endur bankans höfðu gersamlega ofmetnast yfir þeirri velgengni, sem bankinn virtist búa við og hagnaðartölur undanfarinna ára sýndust staðfesta með afgerandi hætti. Bankastjórarnir og þeir sem sátu í kringum þá í efstu hæðum margra tuga hæða aðalbyggingar töldu sig ekki geta gert mis- tök, og nýja hagkerfið, sem svo var kallað, hafði bægt einföldum sannindum sem áður giltu út í hafsauga. Hinar nýju stjörnur bankanna, ofur- stærðfræðingar, verkfræðingar, heimspekingar og hagfræðingar, komu úr fínustu háskólum heims með hæstu prófgráður og fengu tug- eða hundraðföld laun foreldra sinna frá fyrsta starfs- Við það verður ekki unað Reykjavíkurbréf 06.11.09
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.