SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Side 39
8. nóvember 2009 39
Spegillinn er frá því um aldamótin 1900. Hann hékk á hóteli í París áður en Auður og Hjörtur keyptu hann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Marie Antoinette í eldhúsinu...
Console borðið sem Auður gerði.Heimilishundurinn er Pug og heitir Louis, oft kallaður Loðvík sextándi.
Auður smíðaði fallegan kertaarin sem prýðir stofuna.
Auður og Hjörtur framleiða kalkmálningu sem fæst í Byko og TEKK en selja
líka beint til viðskiptavina. Þau fluttu málninguna inn í góðærinu, Auður
vann mikið með innanhússarkitektum, og gerir raunar enn, en dreymdi allt-
af um að framleiða málninguna sjálf. „Þá var aldrei svigrúm til þess, það
var svo mikið að gera og fólk að flýta sér en eftir að kreppan skall á var
þetta heppilegt. Bæði var mjög dýrt að flytja málninguna inn og fólk er orðið
þolinmóðara. Íslendingar hafa lært að stundum þarf að bíða,“ segir hún.
Nú eru málningardósirnar ekki lengur fluttar til landsins í hraðpósti held-
ur er framleitt í Gránufélagsgötunni og biðin þarf ekki að vera löng nema
pöntunin sé stór. Þurfi einhver eina dós eða nokkrar gæti hann sótt þær
daginn eftir, jafnvel kíkt inn og þegið kaffisopa á meðan beðið er.
Þau fá kalk frá Belgíu og liti sem unnir eru úr jarðefnum í Suður-Evrópu,
Hjörtur vigtar allt af mikilli nákvæmni og blandar saman við íslenska vatnið í
gamalli hrærivél. „Ég er í vinnu hjá Auði; allt sem við gerum er hennar
hugarfóstur,“ segir Hjörtur þar sem hann stendur brosandi við vélina.
Málningin er alveg mött, allt öðruvísi en sú gljáandi plastmálning sem
langmest er notuð. Birta endurkastast ekki af kalkmálningunni. „Þetta er
mjög náttúrulegt og stemningin sérstök. Hún veitir mikla ró,“ segir Auður.
Nær allir viðskiptavinir þeirra eru konur og Auður segist beinlínis fram-
leiða málninguna sérstaklega með þær í huga. „Konur eru frábærir kúnnar;
þær segja hver annarri miklu frekar en karlar frá hugmyndum sem þær fá
og skiptast meira á upplýsingum um það sem þeim finnst sniðugt.“
www.kalklitir.com
Kalkið og litarefnið fá þau frá meg-
inlandi Evrópu í stórum pokum.
Hjörtur sér um að vigta og blanda efnunum saman í hrærivélinni.
Hjörtur veit vel hvað tímanum líður
þegar hann blandar málninguna.
Framleiða náttúruvæna
kalkmálningu