SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 41
8. nóvember 2009 41 Hvítlauksís Þessa uppskrift fékk Sverrir Páll senda frá aðstandendum hinnar árlegu Gilroy- hvítlaukshátíðar í Kaliforníu. 2 blöð af matarlími ¼ bolli af köldu vatni 2 bollar af mjólk 1 bolli af sykri örlítið salt 2 msk. af sítrónusafa 2 hvítlauksrif, smátt söxuð 2 bollar af rjóma Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn. Mjólkin, sykurinn og saltið hitað að suðu. Mat- arlímið leyst upp í heitri mjólkinni. Mjólkurblandan er kæld nokkuð. Þegar hún er ylvolg er hvítlauknum og sítrónusaf- anum bætt út í. Þessi blanda er kæld vel, uns hún rétt byrjar að þykkna eða stífna. Þá er þeyttum rjómanum bætt út í, hrært vel og varlega og blandan loks sett í skál eða bök- unarform og fryst. Mokkaís með kaffibættum rjóma og möndluflögum Ísinn: 125 g suðusúkkulaði 4 egg 4 matskeiðar sterkt kaffi 1¼ bolli rjómi 1 msk. kaffilíkjör ½ bolli sykur Rjóminn: ¼ til ½ l af rjóma 1-2 msk af rótsterku espressókaffi Hnefafylli af ristuðum möndluflögum Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Þegar það er bráðið, hrærið eggjarauðunum vand- lega út í einni og einni í einu og kaffinu líka. Stífþeytið rjómann og bætið út í hann kaffilíkjörnum. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið sykrinum smátt og smátt saman við þær. Hrærið fyrst saman blönduna með súkkulaðinu og rjómann. Hrærið síðan eggja- hvítublöndunni saman við. Fryst í bökunarformi. Borið fram í smáskálum og skreytt með kaffibætta rjómanum og möndluflögunum. Hvítlauksís og mokkaís – góðir saman 3 cl ljóst romm 4 teskeiðar af hrásykri ½ lime (súraldin) 4 matskeiðar af íslenskum aðalbláberjum 4 myntulauf 15 klakar Sprite (Lime er sítrusávöxtur sem er minni og hnöttóttari en venjuleg sí- tróna). „Kjötið“ úr ávextinum, hrásykur- inn, bláberin, klakarnir, myntulauf- ið og gosið allt hrært saman í blandara. Romminu bætt við, gæti þurft að bæta meiri klaka við ef drykkurinn er of vatnskenndur. Jarðarberja-mojito er gerður eins. Þegar Akureyri og Havana hittast á Strikinu Hnetukurli stráð yfir ísinn. Frábær tvenna, segir hann um hvítlauks- og mokkaísana sína. „eða sýni krökkunum hvað hægt er að gera við fiskflak, kjötsneið eða kjúk- lingabringu. Það þarf ekki að vera flókið en menn þurfa að hafa hugmyndaflug. Sumir krakkanna kunna bara að henda núðlupakka í pott. Það verður enginn fullorðinn á því!“ Hvítlaukur og kúamykja Einhverju sinni var Sverrir Páll á ferð um Kaliforníu ásamt fóstursyni sínum og konu hans; þau óku um sveitir norður til San Francisco en ákváðu að stoppa og forvitnast þegar þau komu að bæ þar sem mikill og góður hvítlauksilmur tók allt í einu við af kúamykjulyktinni. „Það var í Gilroy. Við komust að því að í bænum er árleg hvítlaukshátíð þar sem fram fer matreiðslukeppni. Þar er líka tónlist- arhátíð og meira segja hjólreiðakeppni; Tour de Garlic. Ég veit reyndar ekki hvernig hún tengist hvítlauknum!“ Í bænum borðuðu þau Sverrir Páll ýmsa afbragðs rétti úr hvítlauk. Þau komust að því að árið áður hafði upp- skrift að hvítlauksís unnið til verðlauna á hátíðinni, hann var ekki til að þessu sinni en mörgum árum síðar fann Sverrir heimasíðu keppninnar á vefnum, sendi út línu og falaðist eftir uppskriftinni. Fékk hana senda um hæl og kveðst hafa sagt mörgum frá. „Sumir þekkja mig sem manninn sem bjó til hvítlauksísinn.“ Hann segir lykt af ísnum ekki mikla en bragðið sé yndislegt. Meginuppskriftina að mokkaísnum sem hann gefur fann Sverrir Páll í kaffibók fyrir mörgum ár- um. Þetta er frábær tvenna segir hann; hvítlauks- og mokkaís. Í takt við tímann Lambal æri kry ddað kr. kg 1259 Frábær t verð! Krónu k júkling abringu r kr. kg1598 kr. stk.179 Sprite Zero 2 lítrar ÓDÝRT Í KRÓNUNNI ! kr. stk.149 Egils jó laöl 0,5 l kr. pk.156 Homeb lest 30 0 g kr. pk.279 Metro kaffi, 5 00 g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.