SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Qupperneq 48

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Qupperneq 48
48 8. nóvember 2009 F réttastofa Stöðvar 2 var fyrst til að segja frá því á sunnudags- kvöldið að til stæði að Nýja Kaupþing afskrifaði stóran hluta skulda Haga og fengi menn í stjórn fé- lagsins. Síðan þá hefur Morgunblaðið fjallað ítarlega um málið bæði á forsíðu og á innsíðum. Þykir mönnum þar á bæ skrítið að eigendur Haga fái að halda 60% eignarhlut í félaginu, sem giskað hefur verið á að sé 20 til 50 milljarða virði, leggi þeir fram 5 til 7 milljarða. „Svarar engu um traust“ var fyrirsögn einnar forsíðu- fréttarinnar. Var þar átt við bankastjóra Nýja Kaupþings sem hafði verið spurður hvort bankamenn geri upp á milli fyr- irtækja þegar þeir ákveða hver aðkoma skuldara eigi að vera að stjórn fyrirtækja og hversu mikla eftirgjöf skulda þeir fái. Í þessum samanburði fékk málið hins vegar litla athygli í Fréttablaðinu. Á mánudag var sagt frá því í smáfrétt á síðu sex að Nýja Kaupþing gæti eignast 40% hlut í Högum vegna endurskipulagn- ingar. Daginn eftir var vitnað í nýleg orð þingmanna um að brýnt væri að ferlið við skuldaniðurfellingu væri gagnsætt. Á miðvikudag var aftur smáfrétt um málið. Nú um að engar skuldir hafi enn verið af- skrifaðar og vitnað í fréttatilkynningu frá bankanum því til sönnunar; en líka var tekið fram að við vinnslu fréttarinnar hefði ekki tekist að ná í neinn sem vissi um málið. Það gekk þó eftir síðar því á fimmtudaginn var haft eftir Finni Svein- björnssyni bankastjóra að bankinn myndi reyna í þaula að ná samkomulagi við eigendur eignarhaldsfélags Haga áður en leitað yrði til annarra mögulegra fjár- festa. Munurinn á framsetningu blaðanna um þetta mál er sláandi. Fréttirnar í Frétta- blaðiðinu voru allar lágstemmdar og á jákvæðum nótum; skrifaðar í gagnrýn- islausum fréttatilkynningastíl. Morg- unblaðið sló málinu aftur á móti upp með feitum fyrirsögnum. Leitað var álits hóps manna sem allir höfðu efasemdir um að sanngirni væri gætt. Þeirra á meðal voru ýmsir forystumenn þjóðarinnar og menn úr atvinnulífinu sem sögðu að banka- kerfið hefði ekki farið um þá jafnmjúkum höndum og nú stæði til að gera með Haga. Þegar Jóhannesi í Bónus fannst nóg komið sendi hann Morgunblaðinu grein sem birtist á miðvikudaginn. Í henni sagði m.a. að það væri „ekkert óeðlilegt við það að bankinn vinni með núverandi eigendum, sem þekkja félagið og hafa stofnað til góðra viðskiptasambanda í gegnum áratugi, enda um verðmætar eignir að ræða.“ Greinina nefndi hann „Hafa skal það sem sannara reynist“ og vitnaði máli sínu til stuðnings til orða forsætisráðherra um að Davíð Oddsson hefði a.m.k. kostað þjóðina 300 milljarða og því ekki hægt að búast við miklu úr þeirri áttinni. Fréttaval fjölmiðla er ekki hafið yfir gagnrýni eins og oft hefur sýnt sig. Orð sem fallið hafa opinberlega um fjöl- miðlana benda til að margir séu þess full- vissir að þeir séu handbendi tiltekinna hagsmuna og sjónarmiða. Til dæmis má skilja á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að hann trúi að Samfylkingin stýri frétta- flutningi RÚV. Undir þetta hafa ein- hverjir sjálfstæðismenn tekið og bæta þá líka gjarnan Fréttablaðinu við. Aðrir hræðast aftur á móti að ráðning Davíðs Oddssonar sem ritstjóra Morgunblaðsins geri það að málgagni Sjálfstæðisflokksins og því ótrúverðugt. Allt eru þetta vís- bendingar um að traust til fjölmiðlanna er í lágmarki ekki síður en traust á fjár- málakerfinu. Sjálf hlakka ég þó alltaf til að setjast með kaffið og blöðin á morgn- anna en ég svara samt engu um traust. Pistlahöfundur segir umfjöllun fjölmiðla um afskriftir Kaupþings vera mismunandi. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Svarar engu um traust Fjölmiðlar Stefanía Óskarsdóttir stefosk@hi.is Fréttaval fjölmiðla er ekki hafið yfir gagnrýni. F jórtánda og níunda. Splunkuný verk og ekki annað hægt en undrast mátt orðanna, og heim- inn sem virðist frjórri en nokkru sinni. Gyrðir Elíasson hefur sent frá sér tvær nýjar bækur; fjórtándu ljóðabókina, Nokkur almenn orð um kulnun sólar, og níunda smásagnasafnið, Milli trjánna. Ritdómarar hafa lofað þessar nýju bækur, og ekki síður almennir lesendur í mín eyru, og þekktu ekki allir vel til heims Gyrðis fyrir. Hann sendi fyrstu ljóðabók- ina, Svarthvít axlabönd, frá sér árið 1983 en 21 ár er nú síðan Bréfbátarigningin kom út, en í henni eru nokkrar tengdar sögur. Milli trjánna er stærsta sagnasafn hans til þessa, með nær 50 sögum. „Af einhverjum ástæðum þróuðust þessar bækur samhliða og vissir hlutir í þeim skarast beint. Ljóð kallast á við sög- ur. Það er hægt að tala um sterk tengsl á milli bókanna þótt þær standi líka sjálf- stæðar,“ segir Gyrðir. Við sitjum í stofunni heima hjá honum í Hveragerði, rammaðir inn af þunghlöðnum bókaskápum, mál- verkum og grafíkverkum, og við hlið mér er skápur fullur af geisladiskum. Svartur loðinn köttur andar niður hálsmál mitt og hvæsir ef sá bröndótti kemur of nálægt. Gyrðir hefur áður gert þetta, að senda samtímis frá sér ljóð og sögur. „Þetta er ekki endilega eitthvað sem ég fer af stað með í upphafi en mjög fljótlega tekur ferl- ið þessa stefnu. Þessi handrit voru ekki komin langt á veg þegar ég átttaði mig á því að bækurnar myndu verða samferða alla leið,“ segir hann. – En kveikjan, hugmyndin. Þegar hún fæðist ratar hún þá strax í ljóð eða sögu? „Eins og flestir höfundar nota ég minn- isbækur þar sem ég punkta hluti hjá mér, en það er allur gangur á því hvort ég átta mig á því strax hvort hugmyndin eigi heima í ljóði eða sögu. Í einstaka tilfellum verður það hvort tveggja. En það sem skiptir máli er að maður verður að ná hugmyndunum upp úr minnisbókinni, ef þannig má orða það, yfirfæra þær í annað form.“ – Hvernig geta hugmyndirnar verið? „Eitthvað sem ég sé á göngu kveikir kannski einhver tengsl. Í framhaldi af því getur orðið til ljóð eða saga. En það er oft erfitt að henda reiður á því hvernig svona verður til, ekki síst þegar frá líður.“ Þótt yfirborð heimsins sem Gyrðir fjallar um sé oft hversdagslegt á yfirborð- inu, þá má iðulega skynja, eða lesa inn í þau viðbrögð við umhverfinu, einhverju sem er að gerast í samfélaginu. „Það er alveg rétt,“ segir Gyrðir. „Þótt ég sé oft að taka upp eitthvað sem ber fyrir mig prívat í daglegu lífi, þá síast umheim- urinn inn að einhverju marki. Það fer ekki hjá því.“ – Má þannig túlka hina kulnandi sól, sem vísað er til í heiti ljóðabókarinnar, sem íslenska hagkerfið? Höfundurinn hlær. „Kannski hafa ein- hverjir gert það. Þótt ég hafi ekki hugsað það þannig! Hins vegar hafa umhverfismál lengi verið mér hugleikin, og þar er bein vísun. Það er eittvað sem mér finnst brenna enn meira á mannkyninu en hag- tölur – en eins og menn vita þá tengjast hagtölur og mengun jarðar samt mjög nöturlega.“ Blandar saman raunsæi og fantasíu – Nú býrðu í Hveragerði, bæ sem er þekktur fyrir grósku og góða uppskeru. Má þakka staðsetningunni hvað þessar nýju bækur eru miklar að vöxtum? „Það er allavega nógur tími til að hugsa og skrifa hérna,“ segir hann og brosir. „Síðan má segja að andrúmsloftið í þess- um bæ, síðan hér voru margir rithöfundar og listamenn, sé vinsamlegt. Að mörgu leyti er þægilegt að stunda þetta starf hérna. Sumir hafa spurt hvort það sé svona leiðinlegt hér að ég geti ekki gert neitt annað en skrifa; ef svo er þá er það ekkert endilega bænum að kenna. Maður tekur sjálfan sig með hvert sem farið er.“ Í Milli trjánna eru fleiri sögur en í fyrri söfnum Gyrðis og þrátt fyrir að verkið sé afar heilsteypt verður furðu margt að sögu. Við rekumst á Strindberg í IKEA, bræður fá það verkefni að husla skrímsli, rottuhalar eru afgangs eftir matartilbún- ing og í tónlistarbúð við Vesturgötu er hlustað á óþekkta tónlist eftir Beethoven og Neil Young. „Það er ekkert sem ég lagði upp með þegar ég tók að skrifa þessar sögur,“ segir Gyrðir þegar ég tala um hvað söguheim- urinn er víðfeðmur en þó heill. „Fljótlega fóru þær þó að raða sér saman. Nánast sjálfkrafa. Það er nokkur vinna að fá þetta margar sögur til að mynda heila bók, að raða þeim upp á réttan hátt. En ég fór fljótlega að sjá ákveðna þræði sem mér fannst ástæða til að spinna áfram.“ Stílista- stimpill getur fælt fólk frá „Mér finnst ekki hægt að aðskilja stíl og efni,“ segir Gyrðir Elíasson og er ekki sáttur við það hvernig stílistastimpillinn hefur loðað við feril hans. Gyrðir hefur sent frá sér tvær nýjar bækur, ljóðabók og smásagnasafn. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.