Organistablaðið - 01.04.1972, Qupperneq 2
LOUISA ÓLAFSDÓTTIR ÁTTRÆÐ
Við sitjurn inni í li.llu vinalegu stofunni hennar Louisu Ólafs-
dótlur einn sunnudagseftirmiðdag í janúar.
Iíér inni er andblær margra liðinna ára. Hver Mutur á sína sér-
stöku sögu. Hér er gamalt harmonium sem faðir hennar átti, og
,J>ar fyrir ofan gömul veggklukka, sem minnir á löngu liðna dvöl
í sveit. A öðrum vegg er stór mynd af sveitabæ ásamt heilli tjald-
borg. Þar er kominn áningarstaður Iians hátignar Friðriks áttunda
,á ferð um landið. Þetta er Arnarbæli í Öliusi og Louisa tekur
fram áletrað guilúr, sem konungur hafði gefið föður hennar. Svipa
hangir á vegg ásamt öðrum gömium munum, 'á skáp stendur liófur
af hesli, hvortveggja vitnandi um ást manns og hests á löngum
ferðum um landið.
Tilefni heimsóknar okkar var að heilsa upp á 'húsráðanda Jiessarar
stofu, áltræða konu, Louisu Ólafsdóttur, organista Kotstrandarkirkju
og rabba við iiana um liðna daga og störf.
Louisa fæddist 12. des. 1891 að Sandfelli í Öræfasveit. Foreidrar
hennar voru sr. Ólafur Magnússon og kona ihans Lydia Angelica
Lúðvíksdóttir. Sr. Ólafur jijónaði Sandifelli til ársins 1903, en gerð-
ist |)á prestur í Arnaribæli í Ölfusi og var þar til ársins 1940.
Sr. Ólafur var músikalskur maður og lærði að leika á harmonium-
Auk þess hafði hann góða söngrödd. Hann stofnaði vísi að kór í
Arnarbæli 1915, sem síðar varð kór Kotstrandarkirkju. Sá kór hefur
slarfað óslitið síðan. Sr. Ólafur stóð einnig fyrir söngnámskeiðum.
Á einu slíku, sem ihaldið var í Þjórsártúni voru tvcir ungir menn,
som sr. Ólafur hvatti eindregið til frekara náms. Þessir menn voru
Kristinn Ingvarsson og Kjartan Jóhannesson. Þeir urðu báðir kunnir
fyrir tónlistarstörf slín.
Louisa hóf að nema orgelleik hjá föður sínum um fermingaraldur.
Hún naut ekki annarar kennslu. 1911 gerðist hún organisti að Ifjalla
í ölfusi og gegndi því starfi i 4 ár. Þá voru árslaunin 40 krónur.
Arið 1909 voru Arnarbæliskirkja og Reykjakirkja sameinaðar í
eina kirkju, sem reist var á Kotströnd og þar tók Louisa við organ-
2 O RGA NISTA Ií I.AÐIÐ