Organistablaðið - 01.09.1972, Síða 22
messa. AS þessu sinni var i fyrsta
sinn notað klassiskt messuform með
altarisgöngu í messunni. Organistan-
uin var gefið tækifæri, að taka ferm-
ingarbörn í sértíma, til þess að út-
skýra fyrir þeim messuformið og vekja
skiining þeirra á því. Auk þess færð-
ist mikið líf yfir kirkjukórinn með
því að æfa óvant messuform.
Rut Magnúsdóttir.
Káljatjarnarkirkja.
Sunnudaginn 25. júní var kirkju-
dagur í Kálfatjarnarsöfnuði. Guðsþjón-
usta var kl. 14.00 í kirkjunni Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson pródikaði, en
söngfólk úr GarSakórnum, Garða-
hreppi og Kirkjukór Kálfatjarnar-
kirkju söng undir stjórn Jóns Guðna-
sonar, organleikara.
Hveragerðiskirkja.
Þann 29. júni, kl. 21.00 voru
haldnir tónleikar í hinni nývígðu
kirkju í Hveragerði. Sigurveig Hjalte-
sted og Jón H. Jónsson sungu ein-
söng. Sólveig Jónsson lék einleik á
slaghörpu og Páll Kr. Pálsson lék ein-
leik á orgel. Kirkjukórar Hveragerð-
is og Kotstrandarsókna sungu undir
stjórn Jóns H. Jónssonar. Tónleik-
arnir voru haldnir til efiingar pípu-
orgelsjóði kirkjunnar.
Kirkjukórasamband íslands.
Aðalfundur kirkjukórasamhands
íslands var haldinn í 1. kennslustofu
Háskólans 21. júní sl. Fundinn sátu
17 fulltrúar frá 15 kirkjukórasambönd-
um, auk söngmálastjóra Þjóðkirkjunn-
ar, Róberts A. Ottóssonar, og aðal-
stjórnar K.í.
1 skýrslu formanns, Jóns ísleifsson-
ar, kom fram, að 6 tónlistarleiðbein-
endur liefðu starfað á vegum sambands-
ins sl. starfsár í 4 kirkjukórasam-
böndum. Þrjú sambönd efndu til söngs-
móta á árinu. þ. e. Árnes-, Borgar-
fjarðar- og Þingeyjarprófastdæmi. —
Auk þess að liafa fjölmarpr kirkju-
kórar staðið fyrir samsöngvum og
kirkjukvöldum í sinum byggðarlögum.
Á þessu starfsári var gengið endan-
lega frá aðild Kirkjukórasambands
íslands að Sambandi norrænna kirkju-
tónlistarmannu.
Á fundinum var skipuð nefnd til
að endurskoða lög sambandsins.
Stjórn K.í. skipa nú: Formaður Jón
Isleifsson, organleikari Reykjavik, rit-
ari frú Hrefna Tynes, Reykjavík
gjaldkeri Finnur Árnason. fulltrúi,
Hafnurfirði, séra Sigurður Kristjáns-
son, Isafirði, Jakob Tryggvason, org-
anleikari, Akureyri, séra Einar Þór
Þorsteinsson, Eiðum og Eirikur Isaks-
son, fulltrúi, Rauðalæk Rangárvalla-
sýslu.
Ymsar fréttir.
Árrii Björnsson, tónskáld, hlaut ný-
lega 1. verðlaun í norrænni samkeppni,
sem danska útvarpið efndi til um lúðra-
sveitarverk, annars vegar fyrir tré-
blásturshljóðfæri og hins vegar málm-
blásturshljóðfæri.
Verðluunaverk Árna nefnist: „Frum-
samið stef og tilbrigði i íslenzkum
þjóðlagastíl", og er samið fyrir tré-
blástursbljóðfæri. Verkið tekur innan
við 10 mínútur i flutningi svo sem
kveðið var á um þau verk, er bárust
í þessa samkeppni.
Verðluunin voru 6000,00 danskar
krónur (um 75.000,00 ísl. kr.), og var
verkið frumflutt i danska útvarpinu
hinn 18. júli sl.
22 ORGANISTABLAÐIÐ